Kæru vinir,
sendið bréfin hér að neðan til utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra, eða önnur eins. Þetta getur ekki gerst, en það virðist eiga að gerast strax í bítið.
---
bjb (hjá) althingi.is, bjorn (hjá) centrum.is
Ágæti Björn Bjarnason,
ég vil höfða til mannúðar þinnar og biðja þig að gera það sem þú getur til að koma í veg fyrir að Paul Ramses Oduor verði sendur frá Íslandi, þegar hann hefur leitað skjóls hér frá yfirvofandi dauða í heimalandi sínu, Kenýa. Hann segist vera á aftökulista ríkisstjórnar þar, og engin ástæða virðist til að rengja það.
Að senda málið til afgreiðslu í öðru landi, vegna þess að það er heimilt, þegar kona hans og nýfætt barn verða eftir hér, er í besta falli ómannúðlegt.
Mér og mörgum öðrum blöskrar.
Með innilegri von um skjót viðbrögð, þó fyrirvarinn sé hrikalega stuttur,
NAFN MITT.
---
isg (hjá) althingi.is
Kæra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
ég vil höfða til mannúðar þinnar og biðja þig að gera það sem þú getur til að koma í veg fyrir að Paul Ramses Oduor verði sendur frá Íslandi, þegar hann hefur leitað skjóls hér frá yfirvofandi dauða í heimalandi sínu, Kenýa. Hann segist vera á aftökulista ríkisstjórnar þar, og engin ástæða virðist til að rengja það.
Að senda málið til afgreiðslu í öðru landi, vegna þess að það er heimilt, þegar kona hans og nýfætt barn verða eftir hér, er í besta falli ómannúðlegt.
Mér og mörgum öðrum blöskrar.
Með innilegri von um skjót viðbrögð, þó fyrirvarinn sé hrikalega stuttur,
NAFN MITT.
9 ummæli:
Gott framtak Haukur Már. Var einmitt að hugsa hvað væri hægt að gera.
http://kaninka.net/arngrimurv/2008/07/03/paul-ramses-taka-tvo/
ég sendi bréfin, takk fyrir uppskriftina.
Ert þú ekki fréttamaður hjá Rúv? Samrýmist þetta starfsreglum þar að hvetja til svona mótmæla við ráðherra? sama hversu málstaðurinn er góður?
Samrýmist það starfsreglum (og lögum) að ráðherra á Íslandi sendi mann í dauðann?
varðhundar kerfisins birtast og gjamma útum allt. passa upp á Bjössa sinn.
...mega fréttamenn hjá Rúv ekki hafa skoðanir og láta þær í ljósi á prívat vettvangi?
...eru hér varðhundar að passa upp á að sumir misstígi sig ekki (les: nú geturðu misst vinnuna vinur því ég tala við yfirmenn þína og læt þá vita að þú stígur ekki í takt! - minnir þetta á eitthvað: nasisma?)
Nafnlaus 1 og nafnlaus 2: Það er rétt að ekki finnst öllum þetta við hæfi. Þó varðar það hvernig fréttamaður tjáir sig utan starfs sín ekki við neinar skráðar starfsreglur Ríkisútvarpsins. Sjálfur lít ég svo á að vinna eigi ekki að vera undanskilin mannlegri tilveru, hún veiti ekki hlé frá tilvist í samfélagi við annað fólk eða frá borgaralegri skyldu.
Hér er líka ekki beinlínis um pólitískt mál að ræða, það er hvort íslenska ríkið og þar með allir borgarar þess, sendi aðkomumann áleiðis fyrir aftökusveit. Það stangast svo á við öll þau grundvallaratriði sem við öll játumst, að málið liggur utan stjórnmála, eins og það orð er yfirleitt notað.
Nafnlaus 2: Við skulum spara stóru orðin. Ég get skilið áhyggjur af því hvað fréttamenn gera opinberlega utan vinnutíma, vegna trúverðugleika fréttamiðilsins sem þeir starfa fyrir – sérstaklega þegar um ríkismiðil er að ræða. Ég held það sé ekki algengt að fréttamenn Ríkisútvarpsins beiti sér svona, þó að engar skráðar reglur gildi um það, að ég viti. Það þarf enga varðhunda eins né neins til að velta vöngum yfir slíku. Vangaveltur nafnlauss 1, út af fyrir sig, minna mig þannig ekki neitt sérstaklega á nasisma.
Ég er að spá í að biðja ykkur að nota allavega dulnefni, ef ekki raunveruleg nöfn, svo það verði auðveldara að vísa til ykkar, ef svörunum fjölgar.
Nú er athyglisvert að fylgjast með því að háttvirtur dómsmálaráðherra segir skringilega frá því hvað Evrópuherrar hafast að í sambandi við innflytjendareglur.
www.jonas.is
08.07.2008
Spiegel er gott vitni
Þannig hefst enska útgáfan af fréttinni um innflytjendamál Evrópusambandsins í Spiegel í dag: "Sarkozy Fails to Push through Fortress Europe Plan. The EU has agreed on a future immigration policy, dismissing several hardline proposals forwarded by French President Nicolas Sarkozy." Spiegel hefur hingað til verið talinn nákvæmur fjölmiðill.
08.07.2008
Evrópa hefur ekki steinhjarta
Björn Bjarnason innflytjendaráðherra fór með rangt mál við blaðamenn í gær. Sagði Evrópusambandið hafa samþykkt tillögu Frakklandsforseta um strangari meðferð innflytjenda. Sambandið felldi raunar allar tillögur Sarkozy um þetta. Í staðinn samþykkti sambandið í Cannes allt aðrar og vægari reglur. Þær fela í sér einföldun verka, svo að ákvarðanir taki styttri tíma. Áfram verður ríkjum heimilt að veita landvist af mannúðarástæðum. "Við erum ekki að breyta Evrópu í virki", sagði Schäuble, innanríkisráðherra Þýzkalands. Björn fer oft rangt með staðreyndir, segir gjarnan það sem honum hentar.
Skrifa ummæli