Þetta er ekki hægt:
Íslendingar stía sundur hjónum og barni til að senda manninn í opinn dauðann, enda er hann frá Kenýa.
Ingibjörg Sólrún? Stefán Pálsson? Hver kemst?
Á Íslandi er rekin rasísk stefna í málefnum útlendinga og hefur verið allt frá því stjórnvöld lögðu fram þá einu kröfu til bandaríska hersins að hingað kæmu engir svertingjar. Sem stóð fram á 8. áratuginn, þegar málið varð skandall í bandarískum fjölmiðlum. Valur Ingimundarson hefur rakið þetta.
Umsóknir fólks frá Afríku um ferðamannaleyfi til Íslands daga uppi í kerfinu, en í dag vísa yfirvöld á skandinavísku sendiráðin í viðkomandi löndum, sem taki við umsóknunum, og afgreiðslu Schengen. Ábyrgðin er out-sourcuð, eins og virðist stefna nýrrar aldar.
Allt um það, geymum stærra samhengi – er hægt að gera eitthvað til að þessi maður deyi ekki? Til að við drepum hann ekki?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli