12.9.08

Mótmælum framkomu við hælisleitendur í Njarðvík 14:00

Boðað er til mótmæla fyrir utan lögreglustöðina í Njarðvík, kl. 14 í dag, föstudag 12. september, vegna framkomu lögregluyfirvalda við fólk sem leitar hér hælis. Engin samtök efna til mótmælanna en ég er meðal þeirra sem ætla að mæta og tók að mér að senda ykkur fréttatilkynningu. Í henni eru drög að yfirlýsingu sem lesin verður á fundinum, og spurningar sem beint er að lögreglu og dómsmálayfirvöldum.

Sumar spurninganna snúa beint að aðgerðunum í gær, þegar 58 lögreglumenn og sérsveitarmenn tóku þátt í „rassíu" inn á staðina þar sem hælisleitendur eru hýstir á meðan þeir bíða synjunar umsókna sinna. Aðrar snúast um meðferð mála hælisleitenda almennt.

Í meðfylgjandi drögum að fréttatilkynningu eru líka drög að yfirlýsingu sem lesin verður á staðnum.

Mótmælin verða við lögreglustöðina í Njarðvík kl. 14 í dag, föstudag.

Mótmælin eru ekki skipulögð af neinum tilteknum hópi, þau eru sjálfsprottin.

Vitaskuld verða þau friðsamleg af hálfu mótmælenda.

Ég hvet ykkur öll til að koma, alla þá sem komast frá vinnu eða öðrum verkum.

Fréttatilkynningin fylgir.


---

Fréttatilkynning:


Mótmæli


Boðað er til mótmælasamkomu fyrir utan Lögreglustöðina í Njarðvík í dag, föstudaginn 12. september, klukkan 14:00, til að mótmæla meðferð hælisleitenda á Íslandi og krefja lögregluna svara um aðgerð gærdagsins.


Við krefjumst þess að allir hælisleitendur á Íslandi fái sömu meðferð og væru þeir ráðherradætur, ráðherrasynir.


Til lögregluyfirvalda beinum við þessum spurningum:

Hvaða framkoma við hælisleitendur krafðist 58 lögreglumanna gegn 40? Hvaða aðstæður kröfðust aðkomu sérsveitarmanna?

Hvaða vopn báru sérsveitarmenn við aðgerðirnar, var þeim beitt, og hvaða tilefni þótti þá til þess?

Margir voru handjárnaðir við aðgerðirnar, að sögn lögreglu. Hversu margir, af hvaða tilefni og hversu lengi? Voru þeir handteknir? Verða þeir kærðir?

Hvaða lagaheimildir lágu að baki aðgerðinni? Ræðst lögmæti hennar af því hvaða gögn komu í leitirnar og hvaða upplýsingar þau geyma? Ef svo er, hvaða gögn voru það og hvernig er mikilvægi þeirra metið?

Voru allir hælisleitendur beittir sömu meðferð, en ekki aðeins þeir grunuðu?

Gerði lögreglan lögmætar eigur hælisleitenda upptækar? Eða er sannað að þetta hafi verið þýfi og/eða ólögmætar tekjur? Eru lagaheimildir lögreglunnar til þessarar aðgerðar skýrar?

Var brotið á viðurkenndum mannréttindum og lýðréttindum hælisleitenda í aðgerðinni – friðhelgi einkalífs, réttinum til réttlátrar málsmeðferðar?


Dómsmálaráðuneytið spyrjum við:

Er það satt að eftir mánaða eða ára bið í algjörri óvissu frétti hælisleitendur á Íslandi af brottvikningu sinni með 10-15 mínútna fyrirvara, áður en þeir eru fluttir á Leifsstöð?

Starfar Útlendingastofnun út frá óskrifuðum reglum um meðferð fólks á grundvelli kynþáttar, upprunalands og/eða fjárhags og stéttar?

Er réttarstaða hælisleitenda og annarra útlendinga sem hingað koma tryggð með lögum og varin með eftirlitsstofnunum? Eða hafa lögregluyfirvöld frjálsar hendur gagnvart þessu fólki? Ráða duttlungar för í meðferð þess?

---

Tekið skal fram að svona samkoma er lögmæt. Á Íslandi er rétturinn til að koma saman til mótmæla ekki háður leyfisveitingum.

20 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æi elsku kallinn minn...

Nafnlaus sagði...

Lögreglustöðina í Njarðvík :) gæti reynst erfitt að finna hana.

Það verða kannski nokkrir mótmælendur, þú og einhverjir "hælisleitendur".

Nafnlaus sagði...

Mótmæla út af útlendingum, er ekki allt í lagi hjá ykkur. Þvílíkt bull, Meirihlutinn af þeim útlendingum sem eru hér á landi eru með eitthvað saknæmt á bakinu í sínu heimalandi. Burtu með allt þetta helvítis lið, styð lögregluna heilshugar og hvet þá til þess að halda áfram.

Nafnlaus sagði...

Gott framtak. Þrátt fyrir að ég sé mjög sáttur við það að lögreglan sé að koma upp um glæpi þá verður alltaf að fara eftir lögum og reglum og það er frábært ef fólkið í landinu gagnrýnir og veitir ríkisvaldinu aðhald.

Varðandi þá staðreynd að 58 lögreglumenn hafi farið á staðinn þá finnst mér það ekki óskynsamlegt í ljósi þess að útlendingar hafa verið að ráðast á lögreglu undanfarið sem er háalvarlegt mál. Þeir hafa haft fulla ástæðu til að vera varir um sig. Það er ömurlegt að sjá hvernig um er að litast á Íslandi í dag.

Nafnlaus sagði...

Sammála Gunnari Þór

Nafnlaus sagði...

Hahaha.... fáið ykkur vinnu.

Nafnlaus sagði...

Hafið þið ekkert þarfara að gera?, mér sínist full ástæða til svona aðgerða af hendi lögreglu, allavegna fundust vegabréf þannig að eitthverjir eru að reina að villa á sér heimildir og láta íslenska-skattgreiðendur greiða fyrir sig fæði og húsnæði!

Nafnlaus sagði...

Nafnlaus;

Það er ekki erfitt að finna lögreglustöðina í Njarðvík ef þú þekkir eitthvað til á suðurnesjum ;) Lögreglustöðin í keflavík er á hringbraut, Njarðvík mun þá vera í grænás... ;)

Nafnlaus sagði...

Hvernig vinna þessir menn sér inn 12-1300 þús þegar þeir meiga ekki vinna hér á meðan mál þeirra eru í meðferð. Hvernig stendur á því að menn sækja hér um hæli eftir að hafa farið inn og út úr mörgum löndum. Hvað er næsta örugga land á leið frá TD Irak og til Ískands

Nafnlaus sagði...

Lögreglan á hrós skilið fyrir þetta. Það þarf að tryggja að þetta fólk sé ekki að koma sér hér inn á fölskum forsendum. Kynntu þér málið, athugaðu hvað lögreglan fann við þessa leit. Mótmæla þessu, fáránlegt.

Nafnlaus sagði...

Mér er sagt að þarna séu menn sem hafa stundað það að fara lend úr landi til að sækja um hæli. Mér er sagt að þarna séu menn sem stundi vinnu og noti síðan hælismeðferðina til að fá frítt húsnæði og smá pening. Þið ættuð að kynna ykkur málin áður en þið æðið af stað til að mótmæla.

Nafnlaus sagði...

Það er engin Lögreglustöð í Njarðvík

Nafnlaus sagði...

Það er víst Lögreglustöð í Njarðvík. Það eru reyndar tvær ef menn vita almennilega.. Ein í grænás og svo tilheyrir stöðin á Hringbraut Njarðvík. Njarðvík nær nú Á pizza 67 þannig að..
En heitir þetta ekki allt Reykjanesbær í dag.

Nafnlaus sagði...

Ertu ruglaður

Nafnlaus sagði...

Þú átt heima á hæli

Unknown sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Mótmæla !!!! ert þú hælisleitandi eða hefur þú hagsmuna að gæta vegna þessarar leitar !! viltu ekki bara fara með þeimsemverða sendir úr landi ?? já eða bara fara einn??

Nafnlaus sagði...

Þetta er ótrúlegt! Lögreglan hefur ástæður fyrir því að fara í svona aðgerðir. Hún hefur rökstuddan grun um að þarna séu gögn sem sanni það að þessi einstaklingar sem um ræðir séu að koma fram á fölskum forsendum, þ.e.a.s glæpamenn. Lögreglan má orðið ekki vinna vinnuna sína nema allt verði vitlaust. Það mætti halda að það byggju bara anarkistar á þessu landi. Lögreglan þarf að tryggja öryggi sitt. Og þarf sem fólk einsog þú ert mótfallið því að lögreglumenn fái að bera sjálfsvarnartæki við sín störf þarf að kalla út víkingasveitini. Ofbeldi gagnvart lögreglunni er orðið æ algengara og grófara. Það hlýtur að vera réttmæt krafa þeirra að fá að vera öruggir við störf sín!

Nafnlaus sagði...

Shit, ég myndi vilja búa með hælisleitendum mun frekar en þessum nafnlausum gimpum sem commenta hérna...

Dagný

Nafnlaus sagði...

Mér ofbýður ofstopinn í Íslendingum, sem sjá ekki sóma sinn í því að veita yfirvöldum aðhald. Vilja halda áfram að vera þrælar, lágt launaðir, greiðandi okurvexti. Halda áfram að vera snatar fyrir Sjallana.

Evrópa byggði auð sinn upphaflega á því að ræna og rupla í Afríku og það er kominn tími til að við tökum við fólki. Afríka logar af fátækt og barnadauða.