20.11.07

Gengi útlenskra nauðgunarfórnarlamba

„Flugmaðurinn er sakaður um heimilisofbeldi gegn stúlkunni en hún hefur mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom hingað til lands í september á síðasta ári.“

Segir Vísir í frétt hérna. Er það bara ég, eða má lesa þá afstöðu úr frásagnarmátanum að blaðamaður sé „með flugmanninum í liði“? Er einhver önnur forsenda fyrir því en sú að stúlkan er útlensk? Við vitum öll að heimur fréttanna er annar en sá sem, raunverulegar manneskjur lifa í dag frá degi – má skilja þetta svo að í hliðarveröld frétta(ma)nna séu ekki lengur bara til erlend nauðgaragengi sem leggi undir sig miðborgina um helgar, heldur gengi nauðgarafórnarlamba í þokkabót?

Annars er hitt jafn skrítið, að í þessari löngu, löngu frétt virðist alveg fljótandi hver segir frá: fréttamaður, flugmaður, stúlkan frá Venezúela, skýrsla héraðsdóms … ég get mér þess til að þetta sé vegna þess að fréttin sé í flýti copy-peistuð upp úr dómsgögnum eða slíku – þá væri skýring, en ekki afsökun, fréttamannsins sú að þessi texti allur sé framleiddur „hinu megin vits og greindar“, eiginlega hafi tölvan gert þetta, það er: þetta sé ekki heimska, heldur gerviheimska.

2 ummæli:

Hildur Lilliendahl sagði...

Það er annað merkilegt í þessari frétt:

Hann hélt áfram að móðga stúlkuna, reif af henni sængina og vildi kynlíf. Hún neitaði þar sem hann var drukkinn.

Eins gott að hún hafði góða ástæðu.

Einar Steinn sagði...

"...að Rauði kross Íslands hafi hvatt hana til að BÚA TIL LÆTI"*?

Uhh.. eru það læti að leita réttar síns? Þykir mér einum eitthvað bogið við þetta orðalag?

*leturbreyting mín