– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
8.11.07
90 ára afmæli réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags
Árni Daníel Júlíusson skrifar frábæra grein til að fagna 90 ára afmæli rússnesku byltingarinnar:
„Á okkar dögum liggja hvers kyns mannréttindi, stjórnmálaréttindi og félagsleg réttindi undir árásum. Sigurför nýfrjálshyggjunnar heldur áfram, og grímulaus heimsvaldastefna Bandaríkjanna og bandamanna þeirra veður um heimsbyggðina. Það er þörf á að spyrna við fótum. Rússneska byltingin blés á sínum tíma fólki í brjóst vonir um að tímar óréttlætis og kúgunar væru að baki, og tímar réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags stæðu fyrir dyrum. Hún gjörbreytti valdahlutföllum í heiminum og leiddi í raun og veru til víðtækra umbóta og gífurlegra framfara hvað varðar rétt, aðbúnað og lífskjör almennings. Sú arfleifð verður aldrei máð út og heldur áfram að vekja skelfingu hjá valdastéttum heimsins. Arfleifð og áhrif rússnesku byltingingarinnar er fyrir þeim ófreskja, skrímsli sem var magnað upp, draugur sem gengur ljósum logum og hefur reynst ómögulegt að kveða niður. Fyrir þeim sem notið hafa og njóta ávaxtanna af rússnesku byltingunni er hún frelsistákn, vonarneisti í óréttlátum heimi sem aldrei mun slokkna á ný.“
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli