21.11.07

Þegar peningahagkerfinu lýkur verð ég reiðubúinn

Ég bíð spenntur eftir þessu símtali: „Sæll, Haukur, þetta er fulltrúi grundvallarráðsins. Peningahagkerfið virðist ekki ætla að ganga upp, getur þú hjálpað okkur að finna upp betra skipulag? Við megum engan tíma missa.“ Ekki mun standa á mér, ég hef um fátt annað hugsað frá því ég fékk fyrst leiðbeiningar um hvernig maður svarar ef einhver bankar og krefst þess að hitta foreldra manns eða fá sjónvarp þeirra með sér burt. „Já,“ mun ég svara, „hlustaðu nú og skrifaðu hjá þér því þetta segi ég aðeins einu sinni: Hver manneskja má aðeins eiga það land sem hún getur sjálf ýtt bílnum sínum um frá dögun til miðaftanbils á jafndægrum …“.

Engin ummæli: