4.6.05

Tiðindalaust

Æi …

nenni ekki neinu. Í dag.
Geri ekki neitt í dag. Þarafleiðandi.

Er með bíl í láni frá vestfirska tröllinu … fékk mér bíltúr um Grafarholt í von um að hrista úr mér leiðann. Haha! Djöfull getur maður fengið afspyrnuslæmar hugmyndir.

Þarna er vatn sem heitir Reynisvatn og í því liggja þúsund dauðir fiskar, eldisfiskar sem er sleppt í vatnið á vorin til að skapa meiri náttúru - eins og grenitrjánum sem er plantað allt í kring – hann fiskaði mest í dag sem gekk um með gráan poka og safnaði fiskunum saman með höndunum.

Þeir eru svo lífsleiðir að þegar þeir stranda á milli steina liggja þeir bara þar og bíða dauðans.

Sólin var samt ágæt.

Róm er á bömmer. Og svo var ég að hlusta á Víðsjá, það er maður þarna úti sem er hættur að skrifa, segist snúa sér að stangveiðum og kukli. Ég skil.

Ég var búinn að treysta á veðurspána sem sagði að í dag myndi rigna.

3 ummæli:

Þór Steinarsson sagði...

Kukli? Hverslangs blasfamí er þetta eiginlega?!

Ég bendi þér bara á að þetta "kukl" er okkar eina von. Er ekki annars rétt skilið hjá mér að frjálsir andar veiði hvali?

Þór Steinarsson sagði...

best að hafa þetta undirritað...

Þór

Nafnlaus sagði...

"Og hvar er stúlkan sem spurði mig úr nafnleyni hvort ég væri á lausu? Ég vil að fleiri reyni við mig, ég vil geta vísað hundruðum stúlkna á bug á einu eftirmiðdegi, ég þrái að manneskjur með vagínur þrái mig."

Stúlkur með vit í kollinum tæla ekki drengi á föstu með útlenskum blóðheitum konum.


Og svo er þessi tiltekna stúlka (sem hefur fagran talanda og ræður yfir þokkalegu ritmáli) orðin ástfangin af verkamanni.

Þráin er síðan ofmetið fyrirbæri.

So long...