Nei, heimurinn er ekki fullur af ævintýrum, heimurinn er bara hey – en það eru ævintýrafullar sálir sem fara um og sáldra gleði eins og aðrir kasta af sér vatni.
Sagði maðurinn þar sem hann sat í kytrunni sinni á fimmtu hæð frílanshússins og nennti ekki að þýða meira þann daginn. Hann hafði hins vegar einsett sér að þýða og einmitt þess vegna afþakkað öll mannamót og fannst sér einmitt þess vegna ekki stætt á því að fara út og ganga um bæinn því hann gæti rekist á einhverja sem hann hafði áður ekki sagst hafa tíma til að hitta.
Einmitt þess vegna, las hann, skrifaði, raulaði og kveikti sér í sígarettu.
Það virðist vera nóg sagt í heiminum og jafnvel nóg hugsað, hugsaði hann þá og skrifaði og þótti ágætt að hafa sett í svona fá orð hvað honum þótti þetta allt erindislaust.
Hann rámaði líka í einhverja tilhugsun um að þetta væri allt blekking og ákvað að setja hana niður: Sýndarveruleiki er ekki það sem fram fer í tölvum og farsímum, heldur sú staðreynd að eftir þróun tækni, stjórnmála og efnahags síðustu aldar og ennfremur síðustu ára, er allt sem við gerum þannig séð óþarft og ekki tilkomið af þörfum mannsins gagnvart veruleikanum heldur vana og hefðum mannsins og hugmyndum hans um hvernig lífið á að ganga fyrir sig. Það er staðreynd að við þurfum ekki lengur að snæða kvöldverð, alla næringu er raunverulega hægt að fá úr Herbalife.
En við höldum áfram eins og ekkert hafi í skorist því þetta er allt saman of sláandi.
Niðurstaða tuttugustu aldarinnar var, öðru fremur, þegar allri hugmyndafræði er vikið frá, sú að láta sem ekkert hafi í skorist. Hunsa það að enginn þarf að svelta, hunsa það að enginn þarf að vinna, hunsa það að enginn þarf að segja eða gera nokkurn skapaðan hlut. Also: hin öndverða hlið frelsisins sem vann hugmyndafræðina er sú sameiginlega ákvörðun mannkyns að hunsa frelsið og lifa hér eftir sem hingað til en halda þó áfram að bölva því.
Er þetta varanlegt jafnvægisástand? Munum við halda áfram að versla í matinn fram í rauðan dauðann?
Munu bókaforlög láta sem þörf sé fyrir þau til hinsta dags?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli