Mín er freistað að taka aftur upp hann Wittgenstein fyrri og krefjast þess að fólk tali skýrt og greinilega. Við erum stödd í ákveðnum vítahring. Fólk segir allskyns moð og kemst upp með kjaftæði. Þá lærir það að hægt er að tala skýrt og greinilega, og gera megi kröfu um slíkt. Stundar það um hríð, en liggur meira á hjarta en kemst fyrir í orðunum, uppgötvar að sumt verður ekki sagt nema með rofi í tungumálið, rýfur tungumálið en missir fótanna og byrjar aftur að bulla.
Og nú semsagt, finnst mér við öll bara vera að bulla.
Ég átti frábæra kvöldstund í gær með vini mínum sem bauð mér í mat. Við grilluðum. Já, við grilluðum eins og sá hjartahlýi, marineraðan kjúkling. Þetta með afmælið féll semsagt niður, Hreinn. Og þegar við vorum búnir að grilla og borða fékk ég skilaboð frá ritstjóra í bænum sem bað mig að taka viðtal við Dag Kára við tækifæri – við vinirnir höfðum hvorugur séð myndina, og stukkum af stað við boðin, fimm mínútum fyrir sýningu og hjóluðum eins og … fætur toga … í Háskólabíó, sáum myndina … hún var jafnvel betri en maríneraði kjúklingurinn. Ég steig út upplyftur, uppljómaðir vorum við báðir, og hjóluðum til baka út að strönd þar sem sólin var sest en himininn roðabjartur og djúpur, hafið silkigult og þar sem við stóðum og göptum á mótum Bónusvídeós, Krónunnar, Byko og gömlu Lýsisverksmiðjunnar annars vegar og vatnslitaguðdómsins hins vegar kom herskari af útlenskum unglingum hlaupandi niður Hringbrautina, tíu, tuttugu álappalegar verur með bjórdósir sem freyddi úr, á harðahlaupum og ég spurði mig í gríni hvort þau væru að hlaupa til að horfa á himininn – og það var einmitt tilfellið, þær, þeir, þau staðnæmdust við sjóinn, stóðu, göptu, þögðu og supu bjór en eitt kærustupar kysstist.
Þetta var semsagt ógurlega fallegt kvöld. Eftir dagslestur af manifestóum ítalskra fútúrista.
Og ég ákvað að fara til fjalla.
Er ég að tala skýrt og greinilega? Ekki enn. Nei, ég áskil mér einum rétt til að vera myrkur í máli eins og véfréttin frá Delfí. Kröfur gerir maður til annarra.
Hafa annars allir séð Voksne mennesker? Er til sterkara atriði í íslenskri kvikmyndasögu en brúarsenan?
1 ummæli:
join Transcend and i will unscramble those letters for you!
Skrifa ummæli