Það er langtum auðveldara að skilgreina hægri og vinstri í pólitík en að skilgreina hægri og vinstri í evklíðsku rúmi.
Hefur einhvern tíma verið gerð teiknimyndasaga um bólfarir Evklíðs? Sá brandari virkar náttúrulega bara á íslensku … að því leyti sem hann virkar yfirleitt. Jæja:
2 tesur og syntesa: Vinstrimaður er sá sem hefur krónískt á tilfinningunni að þetta sé ekki réttur heimur. Vinstrimaður er sá sem elskar eða leggur sem fram um að elska það sem er ekki eins og hann. Þetta tvennt sameinast svo loks í því að hann hefur raunar, lengra niðri, krónískt á tilfinningunni að hann sé ekki hann. Og er þannig ólíkur sjálfum sér. Og til að elska sjálfan sig verður hann því að vera fær um að elska annan.
Ef til vill hefur hægrimaður sömu grunngerð en neitar að gefa henni gaum. En ef til vill eru hægrimenn einfaldlega þeir sjálfir. Hægrimaðurinn elskar í öllu falli fyrst sjálfan sig, og svo aðra að því leyti sem þeir eru eins og hann.
Zizek segir að sjálfsveran sé klofin – kannski er það bara vinstri sjálfsveran. Þar liggja jafnvel rætur „klofningssögunnar“ …
Ryanair er lélegt flugfélag og tafir á dagskrá þess hafa kostað Íslendinga morð fjár í dag. Íslenska þjóðin er æf, um leið og hún iðar í skinninu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli