1.3.05

Eitt af 1500 .doc skjölum a tölvunni minni

Athuganir

Grimmu smáfuglarnir á stéttinni.
Stelpan með byssuna.
Sá sem reynir aldrei að drepa viðfang ástar sinnar undir eiginleikakvíar, og hinn sem segir alltaf þegar hann kynnist nýju fólki: „Já, þú ert svona …“
Óhugur þegar einstaklingnum er lokið upp. — blóð, uppskurðir.

Leiðarspurning

Fagna ég þessum fíflum
eða finnst það miður
þau séu til?

Fagna ég
syndum mínum?

Fagna ég
löstum heimsins?

Vegsama ég sjálfan mig?

Skrásetning rannsóknar

Rétt eins og í kvikmynd
rignir nú úti
einmitt um leið og rignir inni.
Við erum öll svo fegin
– náttúran,
borgin
og ég –
fengum öll fréttir
af unnum orrustum.
En ég þarf að fara.

I.

Gluggi á lest.
Grænar línur.
Blóm í flugumynd.
Eyjur úr trjám
í grashafinu
– eyja úr trjám og húsi
– á plægðum akri,
enn ósáðum,
ógurlega endast teinarnir.

II.

Æ, þessi endurteknu helvítis mistök
að fróa sér í morgunsturtunni,
í dag verður þoka.

III.

Stóð heima. Ég er á skipi. Hafið hefur loks látið freistast og leitar á himininn og himininn leitar á okkur, mennina með fartölvurnar, konurnar með börnin, sem erum á leiðinni milli borga og skiljum ekki þennan – stað? Veruleikinn rétt situr eftir í bláum plastdúk á þilfarinu og vélarhljóði, dempuðu vélarhljóði.

Niðurstaða

Ég vegsama sjálfan mig.
Og lestirnir eru líf mitt.
Og heyrðu þetta:
löngu úrelt tónlist
tilheyrir næstum
æsku minni. – (?)

Engin ummæli: