25.3.05

Obærilegur lettleiki frettaflutnings

Cutnpaste póesían tröllríður heiminum, hér fer smá mega-meta-cutnpaste, af mbl.is sem sjálfsagt verður búið að leiðrétta sinn texta innan stundar og draga þannig dulu yfir þá annars vel kunnu staðreynd að fréttamiðlar lítilla landa eru fyrst og fremst ljósritunarstofur. Feitletrun er hvalsins:

Samkvæmt skjölum bandaríska hersins, sem gerð hafa verið opinber, hafa bandarísk stjórnvöld staðfesta vitneskju um það að Osama bin Laden, leiðtogi al Qaeda-samtakanna, hafi verið á Tora Bora hellasvæðinu in Afganistan er Bandaríkjaher gerði áhlaup á það í desember árið 2001. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

---

Fyrst og fremst ljósritunarstofur – helvíti var þetta samt smart hjá Stöð 2. Í fyrsta sinn á Íslandi: Hin hreina frétt. Koma Bobby Fischer er ekki atburður, hún er frétt. Enda hafa atburðir og heimurinn sjálfur verið sams konar óþolandi vesen fyrir fréttastofur hingað til og kúnnar eru fyrir starfsfólk verslana, námsmenn fyrir starfsfólki LÍN. Ég játa það á mig að hafa horft á hálfa beinu útsendinguna – eftir á – og ég get svo svarið það að ekkert gerðist. Þó var ekki um að villast og mátti ráða af svip allra sem að málinu komu að þarna var frétt á ferðinni – frétt flogið inn í beinni útsendingu á einkaþotu Stöðvar 2, með sjálfan fréttastjórann til að fylgja henni yfir landsteinana. Fréttamaðurinn í stúdíóinu lét móðann mása um fréttina og þar kom meðal annars fram að fréttin væri óvenju hraðskreið, hún færi á 800 kílómetra hraða og kæmist auk þess í 40.000 feta hæð, sem er og óvenjulegt fyrir einkafrétt – flestar farþegafréttir færu ekki hærra en 30.000.

---

Hvað gekk síðan unga manninum til, þessum snyrtilega með Sigurrósar/netbanka-hárgreiðsluna? Var hann svona hrifinn af yfirlýsingum Fischers um Gyðinga, Bandaríkin eða Japani? Eða hélt hann almennt að allt sem Fischer segi sé snjöll og djúp analýsa á ástandi heimsins? Hann var í öllu falli með ljóst hár og blá augu.

Ef til vill fæðist loks í kringum Fischer kynþáttahatursfylkingin sem íslenskir vinstrimenn hafa beðið óþreyjufullir eftir að fá að berjast gegn í yfir áratug.

Hvað sem öðru líður: Velkominn HEIM! Fischer, nú ertu ÍSLENDINGUR, sem þú varst eiginlega alltaf því þú talar eins og hver annar sjómannsraftur.

Engin ummæli: