Förum yfir stöðuna – fari ég yfir stöðuna og geri ég það ófeiminn, hvergi banginn, standi ég á mínu!
Er þetta boðháttur fyrstu persónu eintölu? Hann þyrfti sannarlega að vera þjálli, en gott og vel!
Í fyrsta lagi birtist blogger.com mér þessa dagana á kínversku, hverju sem það sætir. Ég held allavega að þetta sé kínverska og tel mig þekkja muninn á ritmálum helstu Austurlanda …
Í öðru lagi (2) er nú sunnudagur, aftur, og dagbókin mín segir að ég standi á milli 9. og 10. viku ársins. Þá eru þetta 42 vikur eftir. Það er nokkuð.
3. Ókurteisasti maður sem ég þekki og kalla vin minn fór frá borginni í gær, til Danmerkur og heldur þaðan til Íslands, eftir að gista hjá mér í tæpar tvær vikur. Heimsóknin var ágæt, enda er ég of umburðarlyndur.
4. Sama dag, semsagt í gær, og ég hef tafið eina þrjá liði við að segja þetta, því mér finnst það ekki hafa þá merkingu, í raun, sem það hlýtur um leið og ég færi það í orð, flutti Dódó út frá mér. Það hafði staðið til um nokkra hríð að þetta myndi gerast einmitt núna, því íbúð vinkonu hennar í eftirlætishverfinu hennar myndi losna og hún myndi leigja hana með annarri vinkonu og við myndum fara yfir stöðu mála og svo framvegis, en samt tókst mér ekki beinlínis að sjá það fyrir eða trúa því fyrr en það gerðist því einhvern veginn hef ég, upp á síðkastið, ekki beinlínis trúað á framtíðina. Mér bregður á hverjum morgni við það að ég skuli vakna enn einu sinni – þannig var það allavega, það hefur verið að gróa í mig framtíð á ný en ekki nóg, ekki nóg. Ég er semsagt einn í íbúðinni þennan mánuðinn, sem:
5. ég hef ekki borgað leigu af fulllengi. Ég er blankur, í rólyndislegri vinnuleit, hún hefur verið of rólyndisleg, í borginni þar sem enga vinnu er að fá, þar sem forsíðuefni tímaritsins TIP sem inniheldur staðardagskrá hálfs mánaðar er í nýútkomnu tölublaði „Überlebungskünstlern“ eða afkomulistamenn borgarinnar – viðtöl við fólk um hvernig það impróviserar lífsviðurværi sitt frá degi til dags, því hingað koma fyrst og fremst auðnu- og iðjuleysingjar heimsins, þeir sem neita að borga fyrir að vera til.
6. Ég veit hvað ég vil verða, ég vil verða Pasolini! Ég á raunar eftir að lesa bækurnar hans, sem aldrei hafa verið þýddar á íslensku, en ég lýsi þessu yfir hér og nú. Pier Paolo Pasolini var séní, á Ítalíu betur þekktur fyrir skrif sín en kvikmyndir, fyrir samfélagsgagnrýni og persónulega fagurfræði – seint og um síðir hóf hann að túlka sál sína, líkama og samtíma í kvikmyndir. Ég neita að láta mér liggja á, ég neita að rembast við að senda frá mér nokkurn hlut á meðan ég hef ekkert að segja, sú er staðan núna, ég hef sagt flest sem brennur á mér allavega einu sinni, og ef fáir hafa heyrt það er það ekki óréttlæti heldur ólán.
7. Ég skrifaði grein á logs.is, frá Berlinale hátíðinni, og þar er undirritað að höfundur sé kvikmyndagerðarmaður. Hér er um tvennt að ræða, annað hvort að ritstjórinn sé óhemju glöggskyggn, jafnvel forspár, og átti sig á því sem ég er ekki viss um sjálfur, að ég eigi eftir að gera kvikmyndir, eða að hann sé, ef til vill fyrir kurteisis sakir, að ljúga, einfaldlega vegna þess að mig vantar ásættanlegt stöðuheiti. „Staða höfundar í heiminum er óljós“ væri trúlega bæði heiðarlegra og skemmtilegra, en það er trúlega erfitt að kyngja orðum frá slíkri persónu.
Ef til vill ætti að standa við lok hverrar útgefinnar skáldsögu: „Höfundur er rithöfundur“ eða jafnvel „Höfundur er höfundur“. „Þessi bók er bók“ myndi áreiðanlega líka sefa einhverjar sálir.
8. Mér finnst Hermann Stefánsson skemmtilegur og smásagnasafnið hans það besta sem lengi hefur komið út á Íslandi, að því ólesnu, án þess að ég hafi einu sinni haft það undir höndum. Bloggið hans, sem er ekki til, er líka með þvi allra gjöfulasta.
9. Mér finnst enn merkilegt, eins og mér þótti níu ára gömlum – eða var ég sextán? – að heimurinn greiði mönnum hærri þóknun fyrir að vinna á honum skaða, en fyrir að gera ekki neitt. Töluvert hærri, jafnvel.
10. Pasolini var drepinn eftir viðbjóðslega meistarastykkið Salo eða 100 daga Sódómu – skotinn af fasista. Ég vildi gjarna sneiða hjá því að vera skotinn af fasista, þó ekki sé nema vegna ákveðins metnaðar sem ég hef, um að lifa að eilífu. Þá er trúlegt að ég geti – ja, öruggt – að ég geti fyrr eða síðar greitt allar skuldir mínar, með einum hætti eða öðrum.
11. Ég skrifaði í vetur skáldsögu, eða einhvers konar bók, sem flestir virðast nú sammælast um að sé hreint ekki góð. Þetta var opinbert erindi lífs míns í nokkra mánuði, meiri tími og atorka fór þó í aðrar hliðar tilverunnar … þrátt fyrir það, þrátt fyrir að ég ljóstri því upp núna að ég hef fyrst og fremst verið að stofna til sambúðar, í tilraun til að lifa fyllilega, í samfélagi, og aðeins í hjáverkum sinnt þessari framleiðslu, verð ég að bæta því við að ég held samt að ritið eigi sér viðreisnar von, og hef nú tekið til við að klippa það. Það er gaman að klippa bækur.
12. Ég bíð svara um styrk til námsdvalar hér í borginni. Spenntur. Óttast að ég falli á skriffinnskutíma með háskólaumsóknina sjálfa.
13. Ég er ráðinn í hlutastarf hjá Reykjavík Grapevine, en hef ekki verið að sinna því sem skyldi.
14. Ég er vaknaður.
15. Það er vor, ég ætla að halda upp á næstu páska.
16. Þó manni gangi ýmislegt til er kannski i tilgerðarlegri kantinum að nefna aðalkarakter í skáldsögu Sören Kierkegaard. Ef til vill – hér hefur ekki verið úrskurðað.
17. Ég er stoltur af systkinum mínum og sé í þeim framtíðina.
18. Það er ást í heiminum og ég skal fallast á að Jesús frá Nasaret hafi komið þar að máli.
19. Frelsið er hræðilegt þegar maður veit ekki hvað maður vill.
20. Fyrir utan gluggann minn spila þrír ungir menn fótbolta … dagurinn er æði bjartur.
21. Mér virðist, þrátt fyrir tafir, glappaskot, taugaveiklun og stóikisma, að ég sé hið minnsta kominn jafn langt í kvikmyndabransanum og Halldór Laxness í sinni tíð – það eru nokkur mikilvæg nafnspjöld í veskinu mínu.
22. Í síðustu viku fór ég í drag í annað sinn, og ruddist inn í partí með vini mínum sem stóð fyrir uppákomunni, til að hrella staðarhaldara og gesti. Mér svipaði mjög til Prins Valíant, Prins Valíant kominn úr rassinum á David Bowie – þar held ég að stutt tímabil baksturs og sauma hafi náð raunverulegum hápunkti og ég geti snúið mér aftur að skeggvexti og svitalykt. Dódó setti á sig yfirvaraskegg og hatt og braut annarra manna handleggi og rifbein í trylltum dansi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli