27.2.05

raksápupáskar

Afsakið þetta … hér verður gerð bragarbót á, en einfaldasta skýringin á því að ég hef ekkert sagt æði lengi er að ég hafi ekkert haft að segja. Hér styðst ég við ýmis hugtök sem hvert fyrir sig má problematisera, hér er ekkert gefið … en ég tel mig bæta að nokkru leyti upp fyrir þögn mína með því að benda á þennan, að því er ég best veit, óuppgötvaða snilling – hann fann upp orðið grasasnadansasarg og galsinna gíraffar í gannislag svo ekki sé minnst á rafagnalagna langalangafar – já, það er sjálfur maðurinn með aftur á bak og áfram orðin!

Engin ummæli: