Donaskald er naesta sjalfgefid hugtak, sennilega er thad "donaskapur" sem glepur mann, afvegaleidir, "donask..." -- donaskapur, donaskidi, donaskip, donaskuldir, dona sko bla. Semsagt, Eirikur.
Jaeja ... dagarnir eru margir og snarir i snuningum, fljotari en eg, langtum. Reyndar var fostudagurinn i gaer frekar langur og drjugur en thad er aftur kominn laugardagur, lidur ad naestu leigu, og thar sem eg hef lokid thydingaverkefnunum sem eg hafdi undir hondum og geri thannig i augnablikinu ekkert fyrir peninga mun eg sitja her daegrin long, eda medan mer endast sentin min 40 og - blogga!
Mer finnst allar greinar a internetinu vera ad segja thad sama, tho mer hafi ekki tekist ad festa fingur a hvad thad er ... grunar ad thad se ekki neitt. Retti upp hond their sem hafa thessa tilfinningu thegar their skima um Arts&LettersDaily.
Semsagt, ekki ad thad se ekki nog af fullyrdingum, og misvisandi fullyrdingum jafnvel, um ymis efni ... thad er bara sama bragdid af ollu. Kannski vegna thess ad thad er allt a netinu, kannski bragdid komi af tolvuskjanum. Thetta er semsagt ekki igrundad og getur vel hugsast ad thad se bara eg.
Morgunsyfja, morgunslaevi, morgunslef ... er i midjum klidum ad setja upp eldhusbord, blablabla, horurnar haeglatar, fyrir ofan mig byr sidan islensk kona um thessar mundir, Marta nokkur, sem eg hef enn ekki hitt. Hun hefur buid thar i retta viku ef mer telst rett til, og eg heyrdi hana stiga inn i sina ibud i gaerkvoldi thegar eg var ad stiga inn i mina og velti fyrir mer: Hm, kannski eg fari upp og bjodi gott kvold, kynni mig, eg hafi heyrt af henni tharna uppi, en felagsosominn tok yfirhondina, felagsnidingurinn sem vill bara vera einn og horfa a hillu. Sat i klukkustund i gaerkvoldi, fyrir svefninn, og horfdi a hilluna mina. Andaktugur. Eg hef ekki adur borad hluti i vegg thar sem eg by, ekki talid mig thannig kominn til ad vera. Ad bora i vegg i ibud, er eins og ad leggja nedanjardarlestir um borg. Tilgatan er tha: Helsta astaeda thess ad engin lest er i Reykjavik er ad enginn truir thvi ad vid aetlum ad ilendast tharna. Hver vill hafa sinn bil til ad hypja sig burt thegar kallid kemur, og idealistann vardar engu ad thad er enn obruad fra Islandi til meginlandsins. Idealisti er sa sem hefur eyra i stodugri vidbragdsstodu, fyrir thvi ad kallid komi, ad allt breytist, sa sem litur ekki i raun svo a ad thetta geti verid allt og sumt. Islendingar eru ekki byltingarsinnar, thad gefur auga leid, en their eru idealistar. Serkenni idealista sem er ekki tilbuinn ad efna til byltingar eda standa uppi i harinu a yfirvaldi er hvad hann bolvar mikid.
Eg er ekki idealisti, eg bora i veggi. Eda bid vini mina ad bora i veggi. Eg segi vid heiminn: Eg er kominn til ad vera. Heimurinn svarar: Hvad er svona merkilegt vid thad ad bora i vegg? Eg svara: Thu skilur thetta ekki ...
Morgunsljovg, thad er skyjad i dag svo allt fer fram i haegdum sinum.
Thetta er nog. Ykkar,
madurinn med borinn.
1 ummæli:
Ég minni enn og aftur á Prenzlauer Allee 141, og þau átta göt sem við boruðum í veggina til að setja upp tvö skrifborð.
Og hananú!
Eiríkur
Skrifa ummæli