29.8.04

Eg er ekki þessi Anna Frank

Í fyrsta lagi er allt erfitt. Að getu ef ekki að virkni – allt er mögulega erfitt. Og því erfiðar í reynd sem maður er lélegri. Nú ætla ég að hringja í stelpuna sem hefur aldrei kallað neinn kærastann sinn, að mér meðtöldum.

Það væri nú ýmislegt hægt að segja um ástina, ha? En maður gerir það ekki … maður talar ekki um flókna hluti í bloggi og lætur ekki eins og eitthvað skipti raunverulega máli, því blogg eru svona dægurlög sjálfsástarbókmenntanna, maður bloggar ýmist á góðviðrisdögum eða rigningardögum en bloggi maður daginn sem snjóflóð drepur móður manns hlýtur að verða úr því – kitsj?

Og hvað finnst fólki í ljósi þessarar staðhæfingar um Írakann sem bloggaði gegnum stríðið? Anna Frank meets Baudrillard. Þegar maður gerir stórviðburði sem hefð er fyrir að séu allt að því handanlægir, yfirskilvitlegir, í mikilfengleik sínum – eins og raunveruleg stríð eru fyrir þorskastríðsþjóðir, eða raunverulegar tilfinningar fyrir þá sem aldir voru upp með Helgu Möller í útvarpinu – þegar maður gerir slíka atburði hversdagslega, sýnilega í gráustu smáatriðum og þar með kléna, er maður þá að fara á mis við þá, eða ef til vill sýna raunveruleika þeirra?

Ættum við öll að setja sárustu tilfinningar okkar, harðasta einmanaleikann og ljótustu langanir, hingað?

Ef ekki, hvers vegna ættum við þá að setja þær í skáldsögur?

Þaðan og annað. Léttara hjal, taka upp. Hífopp! Matarslagur í dag. Milli pönkaranna í Kreuzberg og pönkaranna í Friedrichshain. Fleirtölutonn af matvælum, hundruð fólks, lokuð fjögurra akreina brú milli hverfanna – klukkutími, vond lykt og ógurlega mikil kæti. Friedrichshain vann – þá hófust skærur. Merkilegt að fylgjast með framvindu orrustu, þó aðeins hafi verið barist með illa lyktandi grænmeti gekk víglínan fram og aftur um hríð, þar til Friedrichshain náði yfirhöndinni, rétt eins og í sjómann – það er ljóst að Kreuzberg mun tapa en andskotinn hafi það að nokkur gefi eftir heldur blánar framhandleggurinn og þrútnar af rembingi.

Melli og Dóri byggðu valslöngvu sem þeir báru með sér í bardagann. Hún og önnur keimlík tæki komu að takmörkuðu gagni í stríðinu sjálfu en litu þrusuvel út. Eins og landgönguherforingjar segja um loft- og sjóherinn í Bandaríkjunum. „When it comes to conquering your enemy there is no substitute for ripping his heart out,“ – þetta las ég í grein um daginn sem var vísað á af www.aldaily.com.

Nú jæja, jæja þá … japs.

Hórurnar eru hinar rólegustu. Ætti ég að tala um íslensku listaunglingana sem komu hérna? Og héldu, á það heila, vonda sýningu? Ætti ég að tala um algjört og þó vaxandi virðingarleysi mitt fyrir ungu listafólki, svona almennt? Nei, vegna þess að vinur minn listamaðurinn var að hringja dyrabjöllunni hér á skrifstofunni sem er heima hjá vini mínum heimspekingnum … ég – verð – að fara!

Engin ummæli: