12.8.04

Hlutir eru frekar fair

Er annars ekki haegt ad setja inn hlekkjasafn a svona sidu? Eg myndi rada upp Nyhil, bloggi brodur mins, bloggi Eiriks og blogginu sem allir thekkja og enginn verdur threyttur a fyrr en seint arid 2005, ad eg spai, also Hreini Hjartahly -- eg myndi ef til vill setja hlekk a www.perlentaucher.de i theirri von ad til daemis www.kistan.is gerdi ser svipadan vef en kannski er Island of litid fyrir slikt ... svo vaeri ekki ur vegi ad setja inn hlekk a SuKuLTuR, vinaforlag Nyhil i Berlin sem dreifir bokum i nammisjalfsolum medal annars ... eg myndi gera svo margt, og thad fyrir adeins 49 eurocent a klukkustund a netkaffihusinu handan vid hornid thar sem eg aetla ad stadsetja mig von bradar og halda afram ad pussa spytuna mina.

Thetta er adeins ein leid af hundrudum thusunda til ad soa tima ... hvad aetli seu annars margar raunhaefar leidir til ad soa tima i heiminum? Ekki hundrud thusunda, kannski ekki einu sinni hundrud ... yfirleitt er allt faerra en madur heldur. Thad hlytur ad hafa komid fyrstu ordabokahofundunum i opna skjoldu hversu litid heil thjodtunga laetur yfir ser thegar er buid ad safna thvi.

Sem minnir mig a, eg maeli eindregid med nyjustu grein Stefans Snaevarrs heimspekiprofessors i Noregi, a www.kistan.is.

Var ad sla afsloppunarmet, likamsvirkni maeldist sidustu minuturnar undir 0.3. Personuleg stadalvirkni min er 23, oskvirkni 77, en maeldist haest i 63 vorid 1997.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eiríkur segir:

Er það sama tímaeyðslan að blogga og að kommenta á blogg hjá öðrum? Eða er það önnur tímaeyðsla? Er réttara að segjast sóa tíma, eða eyða honum? Er glasið hálffullt eða hálftómt? Glasið er alltaf barmafullt, að springa á samskeytunum. Eða galfjáritómt. Nema þegar það er að fyllast, eða tæmast. Upp! Það er skál!

Skal drekka þig fullan í september, verðirðu ekki fullur fyrir.

Var ég búinn að segja þér að skv. nýjustu kenningum frá fatlaða skammtafræðingnum, þá er alls ekki hægt að fara neitt með svartholum - og stoðunum hefur þannig verið kippt undan Nýhil. Svartholið leiðir ekkert. Nýtt kompaní? Ég legg til að þegar við leggjum niður/seljum Nýhil þá gerum við það af ástæðum sem hljómsveitir hafa hingað til einungis beitt: það er, við bjóðum óvart einhverjum óþægilega lélegum (bassaleikara t.d.)að vera með, og höfum svo ekki hugrekki til að reka hann. Svo stofnum við nýtt félag, og komum og fáum bassann hans lánaðan, og látum Nýhil grotna niður á meðan við spilum að nýju með... yrðlingi! Ha ha, ég man eftir yrðlingi. "Ef ég ætti hálfa milljón núna strákar, þá myndi ég bjóða ykkur öllum til Amsterdam."

Nafnlaus sagði...

Hildur les. Hefur þess utan ekkert um málið að segja að svo stöddu.