31.1.07

Í guðanna bænum, enga kaldhæðni!

Þar sem sumir sjá bara vandamál sjá aðrir lausnir. Írak. Land tækifæranna.

Vandinn við heimspekinám, svona praktískt, hvað hversdagslegar forsendur lífsins varðar, er að það er sérmenntun einmitt í hinu, að sjá vandamál þar sem aðrir sjá lausnir. Þetta er voða gott fyrir mannsandann og stundum vonar maður að þetta geti reynst gott fyrir sitthvað fleira … hversdagslegra? Hvað er hversdagslegra en mannsandinn? – jæja, en frá degi til dags, þegar maður vill koma sér úr sporunum, þá er alltaf einhver helvítis Zenó í manni.

Næsta stig kapítalismans: þegar fátækasti verkalýður þriðja heimsins sér um kaup og sölu hlutabréfa fyrir hönd eigendanna. Á ljósmyndum virðast reyndar kauphallir Vesturlanda og skóverksmiðjur þriðja heimsins ekki svo ólíkar …

30.1.07

Auðmagn ljóðanna

Jæja, ég get ekki sagt að gagnrýnendur hafi kokgleypt bókina mína þessi jól, þó einhverjir hafi verið hrifnir. Einn mikils metinn rithöfundur sagðist þó vera orðin grúppían mín og annar, jafnvel eftirlætis höfundur sjálfs mín, bloggaði einhvers staðar af öðru tilefni að ég væri skásti rithöfundurinn meðal nýhilista. Ætla ég að espa lesendur til að kaupa Svavar Pétur & 20. öldina á þessum hæpnu forsendum? Já, og það sem meira er, ég ætla að lofa öllum sem finnst þeir sviknir áheyrn, og mun reyna að mæta þörfum lesenda betur í næstu bók.

Ég er annars kominn í vinnu fyrir alþjóðlegt risafyrirtæki – þegar ég mætti í þýðingaklefann í gær beið mín verkefni fyrir ekki minni kúnna en Google. Þeir þarna, sniðugu strákarnir, eru að fara að herja á íslenskan auglýsingamarkað. Og hvernig er það þá að vera hnit í svona yfirgengilega íturvöxnum hýper-auðmagnsstrúktúr? Notalegt. Mér finnst ég aðeins meira til en áður.

Ég lofa að nota 'auðmagn ljóðanna' aldrei sem titil á neitt nema þessa bloggfærslu.

29.1.07

Já, og Kristur er kominn

Djöfull er Guardian ó-geðs-lega skemmtilegt blað:

In a week in which we hardly need reminding that religion is the answer, not the problem, there is excellent news for imbeciles, or "Scientologists" as the sect's leaders euphemistically insist on referring to its followers. Specifically, Tom Cruise is the new Jesus. Right backatcha, Richard Dawkins!

Ef ég bara vissi hvað lögin heita …

Stráin stingast upp og innundir

stilla hjartans strengi í fimmundir.


Ólöf Arnalds lætur bráðum frá sér plötu sem ég nýt þeirra óheyrilegu forréttinda að hafa fengið að hlýða á síðustu vikur, óútgefna. Mann langar að tala kristilega, um náð og mildi … þið vitið það kannski ekki ennþá, en þið eruð að bíða eftir þessu. Í andakt. Ég hef ekki beðið um leyfi til að láta þessi textabrot hingað, og má það áreiðanlega ekki … en til að gefa mér örstutt hlé frá prófarkalestri oftáðurnefnds sölubæklings um tengivagna fyrir dráttarvélar leyfi ég mér það samt:


Ég hef ekki alla tíð

notið láns að vera fundvís

verið auðtrúa en

stundum undirförul samt.

Fetað hef ég margan stíg.

Setið lengur en ég undi,

ekki viljað stoppa

fyrr en staðnæmdist við þig.


Þegar allt kemur til alls

verður allt annað að engu.

Þegar allt í mér mætir öllu í þér

má ég vera hjá þér lengur?

24.1.07

Laun heimsins eru ekki vanþakklæti

Ég var að fá símtal. Bréf í Kópavogi. Stjórn ritlaunasjóðs þakkar mér fyrir að sækja um en því miður. Bendir mér á næsta umsóknarfrest. Ég sit annars í Reykjavíkurakademíunni og þýði sölubækling fyrir tengivagna, er í miðjum skelskrokksvagni með ábreiðuvindu. Ég verð þá bara hérna. Bið að heilsa heiminum, sjáumst að ári.

Laun heimsins eru mútur.

20.1.07

Virtúal

Engels er að vinna. Kínverjar skjóta niður gervihnetti – og nasistar opna höfuðstöðvar í landinu handan fjarskans. Allt sem heitir kapítal og andstyggð er að verða fullkominn skáldskapur um sjálfan sig og bráðum getum við sem erum ekki peningur verið í friði hérna megin línunnar sem skilur að það sem er til og hitt sem er það ekki. Bara nokkur skref í viðbót, Frodo, svona … henda hringnum …

Ég er annars búinn að skipta um skoðun á Moggablogginu. Ég er ósammála Stefáni Pálssyni, þetta er ágætt, það má jafnvel segja: þetta er þing. Gæti styst í lýðræði í landinu. Þrátt fyrir að ekkert gott gerist af sjálfu sér, eins og annað lögmál varmaaflsfræðinnar kveður á um, þá er óþarfi að vera bara svartsýnn um afleiðingar Netsins héðan af.