31.10.04

Kall og kyll

Það er þá helst í fréttum að vindmyllur sem tókust á loft í Suður-Evrópu fyrir margt löngu síðan eru farnar að láta á sér kræla í Skandinavíu, það glitrar fallega á þær í kvöldsólinni, flugumferðarstjórn hefur áhyggjur, vísindamenn spyrja sig hvort þær muni hafa áhrif á golf-strauminn og gróðurhúsa-þaðalltsaman – póstmarxistar velta fyrir sér hver ásetningur vindmyllanna sé en frá Cambridge og Brighton berast þau skilaboð að vindmyllur hafi ekki ásetning, aðeins atferli, hins vegar skipti það ekki máli.

Með öðrum orðum: Veit einhvern við hvern Stefán Snævarr er að tala í greinum sínum á Kistunni? Hverjir eru málfeigðarsinnarnir sem hann ávarpar?

Raunar skrifaði málfeigðarsinninn jonf@hi.is í Morgunblaðið á dögunum – það er freistandi að finna hómófóbíu í þessu, en þó virðist frekar vera um heiðarlegan ótta við breytingar og misskilning á tungumáli að ræða … ég held ekki að þetta sé höfuðandstæðingur SS:

Það er alkunna að ensk tunga hefur mikil áhrif á íslensku. Áhrifanna gætir með ýmsum hætti. Eitt þeirra orðasambanda sem rekja má til ensku er koma út úr skápnum (e. come/be out of the closet). Í ensku er merkingin sú að sá sem kemur út úr skápnum segir öðrum að hann sé samkynhneigður eftir að hafa haldið því leyndu. Í íslensku var orðasambandið notað með svipuðum hætti og í ensku en nú bregður svo við að það er notað í merkingunni láta skoðun sína í ljós; sýna sitt rétta andlit; koma fram, t.d.: ráðherrann verður að koma út úr skápnum og tjá sig; [Skjár einn] kom rækilega út úr skápnum síðast liðið vor þegar Egill Helgason var flæmdur burt af stöðinni (10.7.04); Guðfræðin kemur út úr skápnum (25.8.03) og [Mogginn] kom út úr skápnum og fór að púsla saman greinum í leiðara sína (7.7.04). Umsjónarmaður kann þessu illa og telur að í þessu efni sem öðrum sé best að saman fari kall og kýll, hið enska orðasamband hafi verið fengið að láni ásamt merkingunni.

Hvernig birtir maður myndir á blogger? Ég er með íðilfagra mynd af verkum brennuóðra vandala sem fóru um hverfið mitt í gær og hlýddu kalli náttúru sinnar.

Hvalveiðisandalar fást á ebay.

H.

30.10.04

Fjarlægðingar

Er búið að semja siðareglur bloggara? Einhvern veginn finnst mér mér ekki stætt á því að fjarlægja færslu næturinnar … ber hins vegar fyrir mig áfengi, símtali og tölvuskeyti.

Johanar og lifshaskar

Lífsháskinn. Gleymið því ekki að Godot kemur ekki!
Og gleymið því samt, því það er unaður að hunsa.
Gleymið því ekki að þið munið deyja, og það von bráðar
– en gleymið þvi samt því það er unaður að lifa og algleymast
– gleymið því ekki, börn bavíana, að ykkur er ekki sjálfrátt
– og gleymið því þó og njótið frelsisins sem ykkur er gefið þó það liggi milli þess að klóra í handarkrikann og klóra í olnbogann, undir spennutreyjunni, með hökunni.
– Gleymið því ekki að þið eruð eilíflega föst í tungumálinu og komist ekki hjá þvi að vera menn
og gleymið þvi samt og blablabla … því tungumálið var sannarlega til annarra hluta skaffað og er í dag kjaftæði.
Gleymið því ekki að kjaftæði heimsins er kjaftæði heimsins og gleymið því þó því ennþá hefur enginn fundið neitt skemmtilegra en glaum og gleði og maður er manns …
matt er manns gaman,
mátt er manns gaman
– gleymið því ekki að tilfinningalíf ykkar er bundið hormónastarfsemi
og gleymið því eins og þið framast getið því ekkert er raunverulegri
og gleymið því samstundis að til eru menn sem hafa staðið á tunglinu og litið yfir jörðina og séð þessa vitleysu alla utan frá, þaðan sem jafnvel kínamúrinn hlýtur að vera hlægilegur,
þangað munið þið aldrei fara,
gleymið því ekki að þið eruð föst
og gleymið því samt meðan þið getið,
dag einn hætta fossarnir að niða,
að sólin gleypi jörðina er enginn skáldskapur,
eða að börnin borði byltinguna
eða að þögnin ein rokki.
Drepið ekki í dróma dauðvona börn,
en drekkið yss í
voninni er væflast
í tsjinntsjinnirí, tsjinntsjinnerí, tsjinntsjinntsjirú –
bla bla bla – good luck will rub off on you.

26.10.04

Eilifðin leggur niður flugleiðir

Eilífðin er miklu lengri en nokkurt okkar óraði fyrir og það eru flugur og móða á gluggunum og ef ekki væri hægt að fá góðan latte hérna þá … hvað? Þá myndi ég drekka vondan latte en hafa færri rúsínur í pulsuendann á niðurdrepandi málsgreinum. Og kveikjarinn minn deyr – bic kveikjarar eru frábærir á meðan þeir endast, en svo hætta þeir svo snögglega að virka – sannarlega meiri reisn yfir þeim en hinum hálfglæru algengari sem lognast hægt og bítandi út af nánast frá því maður kaupir þá, en þetta kemur samt alltaf svo flatt upp á mig.

Eilífðin já, hún er full af sjálfshjálparbókum. Er með eina um leti í höndunum, eða procrastination – procrastinazzione eins og það heitir sjálfsagt á ítölsku – sem mér virðist á samhenginu þýða þann sið að slá hlutum á frest. Ég hef í raun og sanni skrópað í skólann til að lesa í bókinni … það er þannig sem mér virðast sjálfshjálparbækur virka fyrir flesta. Ég hef horft upp á margan góðan mann falla í gildru heilræðanna og vona að ég varist hana sjálfur – ef ekki mun ég skrifa bók um hana „Sjálfshjálparbækur – hvernig maður losnar úr vítahringnum“ sem mun vera brandari af sama toga og farandsölumaðurinn sem selur skiltin „Enga sölumenn“.

Bof, eilífðin. Boff! Sumir hafa verið að drekka sig í gegnum eilífðina en hafa ákveðið að vinda sínu kvæði í kross og sækja AA fundi. Sjálfur drekk ég mestmegnis piparmintute og var raunar gefin kanna á dögunum, almennileg tekanna, sem er ágætt, því hún endist í þrjár stundir eða svo ef ég sit einn að svambli, en bolli aðeins 25 mínútur. Hér um bil. Og yfirleitt get ég tekið striklotu við vinnu á meðan ég hef te.

Eilífðin keyrir á loforðinu um að lífið sé rétt handan við hornið og henni hefur nú tekist að bæta á sig hornum á tíu dögum með undraverðum hætti. Lífið heitir Verónika og fyrst varð pabbi hennar alvarlega veikur daginn áður en hún ætlaði leggja af stað. Þegar pabbi hennar tók að braggast lagði flugfélagið sem sér um samgöngur milli borganna tveggja sem koma okkur við niður flug á milli borganna tveggja sem koma okkur við. Faðirinn er nú kominn af sjúkrahúsinu en þá er biðlisti í lestarferðir milli borganna, og mikil ásókn í sæti fyrirsjáanleg fram yfir mánaðamót, samkvæmt talsmanni. Lestafyrirtækisins.

Eilífðir geta alltaf á sig hornum bætt. Ég borða nutella á banana … nei, þetta er ekki þunglyndi. Mér bara leiðist.

Þrjár greinar og ein lítil þýsk ljóðabók á leiðinni … ásamt tveimur tónlistarmyndböndum. Þetta situr hérna hálfklárað á tölvunni minni og mér finnst eins og þetta væri áreiðanlega allt saman tilbúið ef ég hefði fengið dsl tengingu í dag eins og mér var lofað … en það er komin nótt og þá er eilífðin bærilegri vegna samkvæmninnar, eilífur dagur er asnaskapur en það býst enginn við því að nóttin taki enda hvort eð er. Maður getur séð myrkrið allt að endimörkum alheimsins, en dagurinn dregur mann á jörðina.

Jájá … maðurinn á AA fundunum sagði við mig um daginn, þá var hann á túr, að maður þyrfti að fara vel með myrkrið í sér.

Þar sem ég drakk latteinn minn úti á gangstétt í dag gekk fram hjá mér lágvaxinn en myndarlegur maður um þrítugt, ekki ósvipaður Michael J. Fox, með texta á A4 blöðum sem hann las upphátt í belg og biðu, um nasista. Taldi upp alla þessa helstu og vék svo yfir í eðlisfræðikenningar sem hreinlega fengju ekki staðist. Þær virtist hann kunna blaðalaust. Tók sér hlé og bað fólkið á næsta borði um eld af mesta látleysi, en hélt svo áfram eins og ekkert hefði í skorist. Þetta var geðsjúklingur. Þannig fer eilífðin með suma.

Ég hvet flugfélagið Volareweb til að endurskoða stefnu sína í málefnum Berlínar og lofa að hvetja alla sem ég þekki hérna til að fljúga oftar til Rómar ef þeir gefa okkur einn, bara einn séns enn.

Ykkar,

H.

24.10.04

Svifnökkvi og tvídrifshjól ásamt BT-10 þotu

GUÐBERGUR Bergsson, landsþekktur akstursíþróttamaður, var sýningarstjóri á Sportbílasýningunni í Laugardalshöll um síðustu helgi. Hann hleypur í skarðið fyrir Ragnar Halldórsson sem Sverrir Þóroddsson skoraði á í síðustu viku. Listi Guðbergs yfir þau tíu farartæki sem hann kysi helst í sinn bílskúr er af fjölbreyttara taginu. Þar má sjá þotu, þyrlu og ofursportbíla en líka mótorhjól af sverustu gerð. Fyrst myndi ég velja Lamborghini Gallardo. Ég er ekki farinn að keyra svona bíl en hann er ansi hreint fallegur. Ég þori ekki að nefna Ferrari Enzo því það er eiginlega ekki hægt að keyra hann hérna.

Gagnasafn mbl.is | mið. 16.6.2004 |