13.9.08

Flóttamaður bíður svara

Einn flóttamannanna sem lögreglan réðst inn hjá á fimmtudag hefur nú setið í sólarhring á bílastæðinu utan við lögreglustöðina og beðið þess að lögreglan veiti honum svör um tilgang og réttmæti aðgerðarinnar – hvers vegna eigur hans og annarra voru gerðar upptækar og hvað lögreglan ætlar að gera við fenginn. Hann heitir Farzad. Enginn fulltrúi lögreglunnar hefur enn fengist til að tala við hann.

Ég endurtek: hann situr þarna enn og sat í alla nótt. Ef enginn fjölmiðill sýnir því áhuga búum við ekki á landi heldur í díki.

Hér er góð umfjöllun um nálgun flestra fjölmiðla við málið:

1 ummæli:

Birgitta Jónsdóttir sagði...

ertu enn með sömu km gmail addressuna - langaði að senda þér nokkrar hugmyndir um hvernig við getum hjálpað ...