„Riddarinn sem var ekki til“ er ekki til. Á lager. Hjá neinum. Hún virðist vera alveg uppseld. Forlagið gæti lumað á eintökum, en það er ekki víst að ég nái að kría þau út, mig bráðvantar eiginlega bókina, að eign frekar en láni – ef einhver þarna úti skyldi luma á eintaki falast ég nú eftir því, heitt og innilega. Bókin er eftir Italo Calvino og kom út á svartri kilju frá forlaginu Máli og menningu. Hún lumar á nógu ríkum orðaforða yfir klæðaburð riddara til að gera fyrstu fjórar síðurnar ókræsilegar á ensku.
4 ummæli:
Ég skal leita eftir afskriftum á safninu, það er möguleiki.
ég á þessa bók, get látið hana
Takk kærlega fyrir, bæði tvö. Nú þori ég bara ekki að nálgast bókina, er farinn að gera mér mat úr fjarveru hennar.
ómæ...ég get komið henni til einhvers sem ég vil meina að þekki þig sem ég þekki?
Skrifa ummæli