4.7.07

Rekkverk

Jæja, því miður fær Hermann Stefánsson ekki leyniverðlaunin sem honum var heitið, fyrir að giska á að boðefni væru rót vandans og þar með lykillinn að lausn svefnleysis míns. Fyrir þessu eru tvær ástæður. Sú fyrri er að Hermann virðist hættur í Nýhil. Ég myndi aldrei vilja tilheyra klúbbi sem vildi ekki hafa mig fyrir meðlim er nýja ófyndna útgáfan af gamla marxíska brandaranum – en ég veiti heldur engum verðlaun sem ekki binst mér blóðböndum um eilíft órofa jábræðralag.

Seinni ástæðan er sú að túlkunin er enn opin, en trúlega má nálgast rétt svar með því að rekja sig gegnum siglingar mínar síðustu daga. Við erum að tala um heilu sjómílurnar á opnu hafi – í dag hélt ég um stýrið með ekkert fyrir augum nema sjóndeildarhring og áttavita. Og stöku öldudali. Ég hallast nú að því að þakka siglingu gærdagsins svefn minn í nótt sem leið, frekar en hvítvínsdreitlinum. Það útilokar ekki að lykillinn felist í boðefnum, og endorfínið eitt hafi velt mér yfir á réttan kjöl (ég mun líka tala um kúvendingar, beitivind og lens á næstunni, heill heimur af ekki svo nýju myndmáli er að opnast mér) – en við gætum hallast að existensíalískari nálgun. Eða vedískari – samkvæmt vedískri mælingu er líkamsgerð mín vata, og sem slík háð vatni, bæði innbyrðis og útbyrðis. Eða stjörnuspakari – merki mitt er einmitt vatnsmerki.

Þá er rétt að geta þess að samkvæmt óformlegu mati fulltrúa Félagsvísindastofnunar er ein nótt ekki markvert úrtak. Við þurfum að bíða og sjá.


Hrólfur hafði hins vegar augljóslega á réttu að standa í svari sínu við síðustu gátu: Bloggarinn á bakvið Die Hard 4 kvikmyndagagnrýnina var vitaskuld enginn annar en bjarnabófinn Jean-Paul Sartre. Því miður voru engin verðlaun í boði í þeirri gátu.

Ég hef nú sönglað fyrir munni mér „og allir komu þeir aftur og eeeenginn þeirra dó“ í rúman sólarhring.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hvaeretta, évilfávellaun. Kem aldrei hið minnsta í grennd við neitt nema neibræðralög, a.k.a gagnrýnið umhverfi. Hef meira að segja lausnina við gátunni: Flóuð mjólk. Sæki svo vellaunin á morgun.