Mér hlotnaðist nokkur nætursvefn eftir að sötra ódýrt hvítvín fyrir háttinn. Það telst væntanlega til boðefna, og Hermann á inni leynileg verðlaun hjá síðuhaldara.
Spurning dagsins er: Hver haldiði að bloggi eftirfarandi?
„Kvikmyndin Die Hard með Bruce Willis er talin magnaðasta spennu- og átakamynd kvikmyndasögunnar samkvæmt mælingum. Nú höfum við tækifæri til að sjá Die Hard 04 og veldur hún ekki vonbrigðum. Sögusviðið dregur athygli að hættum, sem steðja að hátæknivæddum þjóðfélögum okkar.“
Vísbending: Hann hefur löngum verið ráðherra.
1 ummæli:
Bjössi B. (lítur út eins og Sartre) eru verðlaun?
Skrifa ummæli