29.3.07

Verðbréfajóga

I will know my song well before I start singing – línan er sem greypt í höfuð mér, hún fyllir upp í tómið þegar ekkert annað hugsast. Og nýrri lína endurtekur sig upp á síðkastið, nýheyrð ef ekki nýsamin, og kom ekki fram í popplagi heldur samræðu: Tími er eitthvað sem mér finnst gott að vera í. Hlynntur hvoru tveggja.

Zizek er að koma – glymur við undirtóna frá Kókajólalestinni. Við erum á leiðinni út á völl, ungir menn sem reyna að klæða sig kæruleysislega í tilefni dagsins.

Engin ummæli: