13.7.05

Við sem bloggum

Einmanaleg þessi blogg. Það væri fróðlegt að bera saman hversu mikið af spjalli fer fram á ólíkum miðlum netsins, eftir þjóðum og menningarsvæðum. Blogg eru svona eins og stofan manns … eða garðurinn, kannski, maður er eitthvað að vökva blómin og þá gægist vegfarandi yfir girðinguna. Veffarandi. Og segir hæ. En hvert erum við í sínum garði. Alveg er ég viss um að í sólríkari löndum, þar sem fólk deilir torgum fleiri stundir lífsins en það hangir inni hjá sér, er í fyrsta lagi minni netumferð, en í öðru lagi hlýtur spjall þar að fara meira fram á opnum þráðum en í athugasemdum við bloggfærslur …

Ég held ég hafi nú í fyrsta sinn notað „við“ um bloggara. Okkur sem bloggum.

Ætlaði að vinna frameftir en er blessunarlega að þreytast, svo kannski mun ég eiga sólarhring þennan sólarhringinn. Hengja þvott fyrir svefninn, svo ég komist úr húsi á morgun. Þarf að vinna fyrir mér með því að fara í klippingu og út að borða. Hagkerfið er alveg stórundarlegt.

Allt annað er ágætt.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Og .... ertu kominn á laust?