4.7.05

Fær ekkert að vera i friði?

Kaffee Burger í Víðsjá?

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nei, ég ræni þig blindan. Ertu annars til í kaffi t.d. á morgun?
kv. Zizek

Nafnlaus sagði...

En Zizek er einmitt ég, rafaugað.

Haukur Már sagði...

Hljómar vel. Kálið sem er enn ekki fyllilega sopið þó það virðist sannarlega vera í ausunni (ef það lítur út eins og kál og lyktar eins og kál …) veldur því að ég get ekki hringt nein símtöl í augnablikinu. Heyrðu, enn betra: má ég ekki bjóða þér í leikhús á miðvikudagskvöldið? Einhver frumsýning, eitthvað Grapevine stúss, við getum gert fyrirtæki úr þessu og samið pistil i sameiningu, erum hvort eð er allir sama sinnis meira og minna, og með verktakasamninga við birtingaraðila – tökum fjórðu hverja viku og eigum frí á milli, útskýrum fyrir fjölmiðlum að þeir geti fækkað sér en neitum að taka á okkur tekjuskerðingu fyrir ábendinguna. Förum síðan um ólík svið hagkerfisins í ólíkum löndum, með sömu ábendinguna og fækkum launastöðum heimsins niður í hálfa – það mun þykja heiðursstaða að vera ýmist kosinn eða dreginn í happdrætti til að vinna einn dag á ári …

þetta væri góð tillaga, hún væri jafn firnagóð og hún hefur alltaf verið, ef manni virtist ekki einsýnt að fólk myndi nota frítíma sinn í að koma upp nýju hagkerfi og híerarkíu og maður spyr sig sem fyrr hvort einhver – að manni sjálfum meðtöldum – sé í alvörunni að bíða lausnar.

Og maður hrópar á sálgreiningu!

Nafnlaus sagði...

Þetta er tilboð sem ég get ekki hafnað. Er síminn lokaður í báðar áttir?

Haukur Már sagði...

Fæ SMS, já … nefndu stað og stund

Haukur Már sagði...

Ránargötumóttilboð þegið, með fyrirvara um hugsanlega örvæntingu, þar sem ég er að reyna að bjarga íbúðinni minni í Berlín úr klóm eigenda hennar.

Nafnlaus sagði...

Ok, þú kommentar bara ef eitthvað fréttnæmt gerist.