– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
24.11.07
Hvernig segir maður squirt á íslensku?
Þessi titill er bara popúlismi … ég meina: Lengi lifi vísindin, frjálst fræðasamfélag og sú skynsemi sem er söm í öllum sálum og hirðir hvorki um stétt, stöðu né kyn:
Þegar dagar peningahagkerfisins verða taldir mun ekkert heyrast meir um nærbuxur Britneyjar Spears

Auðvitað er þetta efni í fínt ljóð. Og ljóðviljaðir mega nú þegar líta á þetta sem slíkt. Það má líka finna hundrað önnur úrræði til að vera einfaldlega yfir þetta kjaftæði hafinn. En það er fáránlegt ástand að hver einasti meðlimur 300 þúsund manna málsamfélags þurfi að finna sér upphafningar- og flóttaleið burt frá fjölmiðlum sínum og þykjast yfir samræðu „þjóðarinnar við sjálfa sig“ hafinn. Því langar mig bara að biðja fjölmiðla að hætta að vera svona andstyggilega trívíal, forheimskandi og móðgandi fyrir það samfélag sem við tilheyrum hvort sem okkur líkar betur eða verr, og fara aftur að skipta máli. En leggja sig að öðrum kosti niður.
Ef þetta er einum blaðamanni að kenna gerir hann eða hún sennilega meira gagn á atvinnuleysisbótum. Hugsanlega má ráða bót á flestu böli okkar daga með því að gera atvinnuleysisbætur eftirsóknarverðari kost. Kalla þær til dæmis frístundagreiðslur. Og hækka þær. Það ríkir einhver misskilningur í þessu peningahagkerfi, um hvað „fólk vill“. Fullum blaðamönnum á börum verður tíðrætt um það, þeir segjast vera að birta það sem „fólk vill“. Ef þátttaka í peningahagkerfi væri gerð að hobbíi fárra frekar en kvöð allra, einhvers konar tölvuleik, gæti meirihlutinn sem stæði utan bankakerfisins farið að gera eitthvað verðmætara, á meðan fulli minnihlutinn léki sér að því að rétta hver öðrum peningaseðla á Eve Online fyrir að gera eitthvað sem fólkið vill, til dæmis birta frétt eftir frétt eftir frétt eftir frétt um hvaða konur eru í nærbuxum og hverjar ekki.
Vitaskuld mun koma að því. Sameiginleg lágmarksbjartsýni (raunverulega langlægsti samnefnari) allra þeirra sem fara fram úr á morgnana er sú sannfæring að heimsku mannanna séu takmörk sett. Í millitíðinni má kannski heimta að sálgreining verði niðurgreidd fyrir blaðamannastéttina. Og allir syngja með:
23.11.07
Nei, þetta var ekki óvart. Og nei, ekki þetta heldur.
Sá misskilningur veður uppi meðal manna sem hafa tekjur sínar af auglýsingum, að höfði auglýsingar til hóps sé það eiginlega bara óvart. Þetta er eitt af því sem ég vildi gjarna að hægt væri að særa út í eitt skipti fyrir öll, með því einfaldlega að nefna það: nei, auglýsingar eru ekki gerðar óvart.
21.11.07
Frægasti heimur allra tíma
Fólk verður nú hratt og örugglega frægara og frægara: hvert mannsbarn fékk aðeins um 100 flettingar á Google fyrir tveimur árum, en nú hefur meðaltal flettinga á hvert mannsnafn náð yfir 10 þúsund. Heimurinn allur er þar með orðinn hundrað sinnum frægari en hann var fyrir aðeins tveimur árum síðan, og miklu miklu frægari en þegar mælingar hófust. Það er hreint ekki líku saman að jafna.
Þegar peningahagkerfinu lýkur verð ég reiðubúinn
Ég bíð spenntur eftir þessu símtali: „Sæll, Haukur, þetta er fulltrúi grundvallarráðsins. Peningahagkerfið virðist ekki ætla að ganga upp, getur þú hjálpað okkur að finna upp betra skipulag? Við megum engan tíma missa.“ Ekki mun standa á mér, ég hef um fátt annað hugsað frá því ég fékk fyrst leiðbeiningar um hvernig maður svarar ef einhver bankar og krefst þess að hitta foreldra manns eða fá sjónvarp þeirra með sér burt. „Já,“ mun ég svara, „hlustaðu nú og skrifaðu hjá þér því þetta segi ég aðeins einu sinni: Hver manneskja má aðeins eiga það land sem hún getur sjálf ýtt bílnum sínum um frá dögun til miðaftanbils á jafndægrum …“.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)