30.8.07

The bottom line

„Fréttaskýrendur segja að stríð Írana og Bandaríkjamanna myndi valda gríðarlegri olíuverðshækkun, og sennilega heimskreppu.“

Rúv.is.

Jæja, Sumar ástarinnar 2007 gekk svona líka vel, þó að það hafi misskilist í þýðingu. Ekkert gjálífi og léttúð eins og þarna á meginlandinu, þar sem bylgjan hófst 1967 – á leiðinni yfir hafið varð hún að heitbindingum og giftingum. Eiríkur giftist Nödju. Örvar giftist Birgittu. Ýmsir aðrir hafa lagt í vana sinn að elda kvöldmat saman og sofna svo í sama rúmi. Á 40 árum verður allt að íhaldi og er það vel, sjálfur er ég íhaldsmaður í ástum, eins og spænskur anarkisti.

Gott og vel, haust, húm, he-hemm: þetta blogg verður áreiðanlega sérviskulegra héðan í frá en hingað til. Þema dagsins: miðaldir. Þessi tækni hér (sjá vídeó) er kannski stærsta yfirvofandi skrefið frá perspektífi endurreisnarinnar aftur að táknflatarlist miðalda – ég mæli eindregið með því að áhugasamir horfi:


Þetta er dásamlegt skref í augum uppveðraðra hegelista – raunveruleg syntesa. Ljósmyndin var fullkomnun perspektífs og raunsæis, en þegar vélræn framleiðsla og fjölföldun mynda fær að þróast áfram í friði endar hún á að neita grunnforsendu sinni, hinu vélræna raunsæi, og snýr aftur á upphafsreit – sem er hins vegar ekki alveg samur við sig.

Og jújú, vissulega var Photoshop þarna fyrir. En þetta sjálfvirka ferli er eitthvað annað – ef það verður jafn útbreitt og virðist trúlegt er eðli mynda orðið annað: ljósmynd er þá sarpur stærðfræðigreinanlegra táknmynda sem standa í lógískum venslum hvert við annað, frekar en afritaður raunveruleiki. Þetta hafa svosem margir lengi sagt, en upprunalega ljósmyndatæknin togaði þó flesta fastar í átt að raunsæistúlkuninni.

Helstu rannsóknarniðurstöður síðustu vikna: Finnland er allt í lagi en strangt til tekið óþarft. Sem verður seint sagt um Bandaríkin eða hvar væri þetta blogg án uppfinningagleði bandarískra háskóla og herja? Kvikmyndin dó ekki með Bergman, því síður með Antonioni, heldur er nú loks á lífi – það er lífið sjálft sem er, þegar fram í sækir, endurtekning, úrvinnsla, bið … en nú er þetta ekki hinn nýrakaði ég sem tala heldur einhver fúlskeggjaðri fauskur. Ég sjálfur hlakka til að sjá The Silence endurgerða sem Flash teiknimynd.

16.8.07

Riddarinn sem var ekki til

„Riddarinn sem var ekki til“ er ekki til. Á lager. Hjá neinum. Hún virðist vera alveg uppseld. Forlagið gæti lumað á eintökum, en það er ekki víst að ég nái að kría þau út, mig bráðvantar eiginlega bókina, að eign frekar en láni – ef einhver þarna úti skyldi luma á eintaki falast ég nú eftir því, heitt og innilega. Bókin er eftir Italo Calvino og kom út á svartri kilju frá forlaginu Máli og menningu. Hún lumar á nógu ríkum orðaforða yfir klæðaburð riddara til að gera fyrstu fjórar síðurnar ókræsilegar á ensku.

3.8.07

Skamm skamm skamm

Á ferðum mínum um Vesturlönd nær rakst ég á póststrúktúralíska stúlkukind, rammvillta uppi á heiði. Ég tók nokkrar myndir af henni, þær eru hér. Svo hélt ég bara áfram að guða hið smáa.
Ísafjörður er býsna góður bær, þar má guða bæði stórt og smátt. Þetta er allt annað líf eftir að ég hætti að lesa. Í alvörunni, drepið í bókunum og allt fær á sig nýjan blæ.

22.7.07

Fréttir

Manni, með óvenju lítinn heila, hefur tekist að lifa eðlilegu lífi í fjörutíu ár. Rannsóknir franskra vísindamanna á höfði hans sýna að hauskúpa hans inniheldur að mestu leyti vökva.

Fréttin er víst fengin hjá Ananova. Eftirlætisfréttamiðill minn er hins vegar Pravda.ru. Þar má lesa um mann sem var kærður fyrir kynmök við reiðhjól, auk þess sem dollarinn er alltaf að hrynja, Bretland að sökkva, nýtt kalt stríð alltaf handan við hornið.

20.7.07

Áhugamenn um táldrætti

Ég er að reyna að gera kvikmynd úti á landi, lofandi guð og kaósið, vonandi að örvænting, tilviljanir og hnatthlýnun hjálpi mér að klambra þessu saman … myndin skal bútasaumast úr brotum ýmissa þorpa, ég er byrjaður að safna flugum fyrir stúlku sem hrífst af þeim, enda eru flugur helsti örlagavaldur myndarinnar, þegar þær birtast í súpu – en ég stríði enn sem komið er við ákveðinn einbeitingarskort. Sem er hugsanlega alltílæ á fyrsta degi.

Hún er annars komin. Munið, ég sagði að við hérna strákarnir og stelpurnar í Nýhil hefðum skírt úr vatni og hún væri komin sem skírði úr eldi. Spádómarnir eru allir að uppfyllast, á hvítu skýi kemur hún með þúsundkall – sjá næsta reykvíska Eðalefni, það verður æði.

Vinur minn, áhugamaður um táldrætti, sagðist hafa lesið í bók um Neuro-lingustic programming að einfaldasta ráð til að heilla konu, nú eða karl, væri að lauma inn orðarunum í felum sem útskýrðu einfaldlega að viðkomandi 1 væri heillaður/uð af viðkomandi 2. Til dæmis svona: Hvað á ég að panta? – spyr konan á veitingastað. Hvað sem þú vilt, svarar þá karlinn og bætir við: Mig langar í lax. Þá er komin inn orðarunan: Þú vilt mig, án þess að nokkur hafi orðið þess var, og einmitt þess vegna sannfærist konan. Eða, semsagt, karlinn, ef málinu er snúið við, eða ef um samkynhneigða er að ræða, en eins og við vitum öll er samkynhneigð ekki til, eða hvers vegna passa typpi svona vel í brjóstaskoru?

Landsbyggðin er hressandi, en maður verður fyrir eilitlu stílsmiti af fjöllunum. Sjá bréfið hér að neðan.

Nöfn allra sem ég þekki byrja á B.

---

Elsku B.

Eins og flestir staðir eða bæir á Íslandi er Hólmavík nokkuð snoturt bæjarstæði en húsin tiltölulega ljót. Annars er ósanngjarnt að segja þetta – hvers eiga nýrri hús og þægilegri – praktískari – að gjalda? Mig langar að geta horft jafn rómantískum augum á praktískar nauðsynjar samtímans og á praktískar nauðsynjar liðinna alda. Það tekst með allt sem er nógu fjarlægt – byggingakrana, sjónvarpsloftnet, ég þarf ekki að snerta á þeim, en ég hef búið of oft í ljótum húsum.

Einhver raðhús – vatnstankur á hæð, hann heillar mig … hafið nær mér næstum því á sitt band – sálin er kannski hérna í firðinum en líkami minn er einhvers staðar í grennd við eitthvað annað.

Ég sit á hrauni, hér er lyng og mosi – ljótara en öll raðhúsin er síðan tjaldið sem við Kristín settum upp en ég sný baki í það núna. Ég ákvað að sofa í bílnum.

Einn túristi, bílfylli af unglingum, kríur eða eitthvað svoleiðis og ég. Allt annað í firðinum sofir.

( ) <— hér var ég kominn á fremsta hlunn með að segja eitthvað.

Unglingarnir keyrðu niður á bryggju. Kríurnar þögnuðu. Einhverjir eru að ríða nema þetta sé bíll að koma niður hlíðina.

Góða nótt,

H.