– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
29.4.07
Meira vesen
Niðurstaða lögreglurannsóknar hefur leitt í ljós að Kínverjinn sem fluttur var særður til Reykjavíkur frá Kárahnjúkum á sunnudagsmorgun veitti sér áverkana sjálfur og notaði til þess naglbít. Því hefur maðurinn neitað við yfirheyrslur og segir tvo grímuklædda menn hafa ráðist á sig. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði. Niðurstaða tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík, sem sá um vettvangsrannsókn, hefur verið studd með áliti réttarmeinafræðings.
NFS, 24. ágúst 2006 19:13
Á heimasíðu fyrirtækisins Alcoa segir að fyrirtækið hafi styrkt lögreglumenn á Eskifirði og Reyðarfirði til að sækja námskeið erlendis. Inger L. Jónsdóttir sýslumaður á Eskifirði segir að embættið hafi talið verjanlegt að taka við styrki frá Alcoa þar eð lögreglumennirnir sem hans nutu hafi tekið við honum í eigin nafni og nýtt hann í frítíma sínum.
Rúv 21. ágúst 2006 12:29/15:53
27.4.07
Úr tveimur húsum
Fyrir nokkrum dögum fluttu fjölmiðlar frétt af háhýsi, turni, sem Baugur mun reisa í Bergen og verður þeim Bergenum, þeim Bjargbúum, Óperuhöllin í Sydney, verður þeim Eiffelturn og Hallgrímskirkja. Fréttaskýring mbl.is hljóðar svo:
Fúll fnykur sem engar skýringar hafa fundist á liggur yfir miðborg Bergen og mörgum úthverfum, að því er Bergens Tidende greinir frá. Hefur heilbrigðisyfirvöldum ekki tekist að finna ástæður ólyktarinnar sem einn lesenda blaðsins lýsti sem blöndu af sorplykt og síldarbræðslu.
Upplýsingafulltrúi borgarinnar hafði samband við heilbrigðisyfirvöld, sem höfðu í dag enga skýringu fundið á fnyknum, sem fór að finnast í gærkvöldi og morgun. Yfirmönnum vatnsveitu borgarinnar og fráveitukerfis hefur ekki heldur tekist að finna skýringar.
Haft er eftir veðurfræðingnum Magnus Anglevik að mælingar á til dæmis svifryki og koltvísýringi væru eðlilegar.
---
Annars: iðjusemi er dyggð, dagurinn var góður, nú er mál að linni
því eybúinn talar jafnan um heimkynni sín
eins og hillingar séðar utan af hafi
þangað til menn verða sjóveikir að hlusta
og hann finnur aldri leiðina heim
utan at fara kring knøttin
– Úr Eybúasögu Þorgeirs Þorgeirsonar. Á íslensku og færeysku. Allt sem ég hef séð í Leshúsi er dáldið gott. Hann var fyrsti kvikmyndagerðarmaður landsins og trúlega er rétt að nefna hann fyrsta bloggarann líka. Síðustu 15 ár ævi sinnar barðist hann fyrir því að fá fellt út s í nafni sínu, og heita Þorgeirson en ekki Þorgeirsson í Þjóðskrá. Davíð Oddsson sýndi honum að lokum mildi, veitti honum lausn með einhverju tilmælabréfi, eftir að málið rataði fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ef ég man þetta rétt.
26.4.07
(Coco
Rjómi.
Mjólk.
Fólk.
Cogito.
Bó?
Nó.
Bó?
Nó.
Bóbó?
Nó nó.
Nó bóbó.
Flók. Bónóbó.
Bónó …?
Bónóbó.
Sei bónóbó?
Sónó bónóbó!
Che cogito!
Sí, stemmir,
aldrei séð annað eins kógító.
Coka kógító – cogitiamo?
Wake me up before you jaylo yo lomo,
wake me up before I nolo my mojo,
don't nolo my molotov mojo, bobino.
Kógító ergó … Rómeó?
Nó, hó sómó.
Og hó kógító
og dót,
kógítódót.
Úff! Hm … ha?
Rómó?
Ómórktók rómómók.
Con sómó,
ton
Homo bonobo.)
Af skopi
Fjömiðlafulltrúi Impregilo og blaðamaður Fréttablaðsins taka höndum saman í stéttabaráttu. Don't stop me now.
Af stöðu brandarans
Jósúa kemur til Rabbíans og segir: Faðir, ég finn fyrir losta.
Rabbíinn svarar: Nú, og hvað er svona slæmt við það?
Jósúa: Stúlkan er unnusta vinar míns.
Rabbíinn: Þú verður að bíða.
Jósúa: En faðir, ég get ekki beðið, bráðum verð ég tannlaus, og hvaða stúlka þýðist mig þá?
Rabbíinn: Jæja. Ef hjarta þitt brennur verðurðu að gera henni það ljóst og koma henni í skilning um hvorn ykkar hún ætti að velja. En engan hórdóm, Jósúa.
Viku síðar kemur Jósúa aftur til Rabbíans og segir: Faðir, ég hef fullnægt losta mínum.
Rabbíinn svarar: Núnú, gerði stúlkan upp hug sinn?
Jósúa: Nei, þess gerðist ekki þörf.
Hvernig þá, gerðist ekki þörf, spyr rabbíinn.
Ég var bara skotinn í alteregói hennar. Vinur minn er með henni sjálfri.
Einn af þekktari cyber-bröndurum Jans heitins Hirowitsch.
Gulltennur kosta annars um 200 þúsund krónur. Á Íslandi. Betri dílar í Harlem?
25.4.07
Allt í lagi, ekki blakmót
Gluggaveðrið segir mér að vera inni og sinna frestunaráráttu.
Líkingar ná ekki nema svo og svo langt. Ekkert tvennt er eins. Innsæi er skrítin deild.
Hugsun er eins og spæderman – eða þráðurinn sem hann skýtur og hreyfingin þegar hann sveiflar sér á milli húsa – húsin eru ekki til að lenda á þeim heldur til að komast áfram. Eða Voyager I eða II sem notar aðdráttarafl reikistjarna til að sveifla sér áfram að næstu og loks út úr sólkerfinu. Þetta fannst mér einu sinni gaman að segja.
Ég hef aldrei stundað blak, ekki einu sinni sem áhorfandi. Er til íþrótt sem minnir á kóngulóarmanninn? Víðavangssveifla?
Hugsun er göngutúr um borg. Mikið getur manni leiðst Reykjavík. Dadaistar og súrrealistar stunduðu flandur – að ráfa stefnulaust um stræti og torg. Sitúasjónistar áttuðu sig á að það dygði skammt – ljósaskiltin glepja undirmeðvitundir og glepja alla í sömu gönguna, svo þeir stunduðu þvingaða tilviljun – að draga upp kort af tiltekinni leið í London og leggja yfir París, eða ganga yfir útlínur ákveðinnar vangamyndar yfir kort af borginni. Hvaða göngutúr gæti túlkað okkar daga, Ingólfur (bannað að segja „út í sjó“).
Litríkasti bókstafur íslenskrar tungu: æ. Það lifnar yfir öllum setningum sem færa manni eins og eitt æ – að ég tali ekki um þegar æ og r liggja saman. Hlærðu? Nei, ég ræ.
