30.12.06

The Stupidity of Evil

Hvað skal segja? Ef það má hengja Saddam Hussein svo snarlega, í kjallaraholu, í gallabuxum með einhverja lopahettu yfir andlitinu, hvers vegna þarf ég þá að finna mér nýjar buxur fyrir brúðkaup frænku minnar? Og hvers vegna þurfti hún að bjóða mér með margra mánaða fyrirvara?

Nei, þetta er ekki mergurinn málsins. Mergurinn er þessi: hvernig í fjandanum varð valdið svona heimskt? Síðkapítalismi dugir ekki til skýringar, öll þessi heimska er ekki sjálfgefin þó að vélar heimsins gangi fyrir græðgi. Kapítalismi er ekki uppáhaldsvélin mín, en stríðið í Írak er samt ekki sjálfgefin virkni hennar … þar sem hengingin í morgun hafði ekkert með réttlæti að gera og rústar, ásamt aðdragandanum, öllum vestrænum hugmyndum um réttarfar, hvar liggja þá pólitísku klókindin í henni? Eða hverjir leggja niður vopnin nú þegar búið er að hengja vonda manninn í miðjum réttarhöldum?

Ég vildi að textinn hér að ofan lyktaði meira af lögfræði eða einhverju.

Réttlæti

Nú er eitthvað hryggilegt að gerast í Bagdað.

29.12.06

Ó þjóð mín þjóð!

Mér er sama hvað fyrirtæki heita. Mér er sama hvaðan úr heiminum þeir sem kaupa áfengi fyrir unglinga koma. Mér er alveg sama hvaða blaðamaður heldur áfram að vinna hvar og hvaða umbrotsmaður hættir. Á nýju ári vil ég að fjölmiðlar segi mér hvers vegna ég hef ekki aðgang að útlenskum vöxtum og hvaða gildu rök eru gegn því að Ísland gangi í Evrópusambandið ef nokkur en taki annars upp hanskann og berjist fyrir því að þetta land verði lagt niður.

Annars, þeim sem er annt um þjóðareinkenni: hér er þjóðareinkenni. Langt og ítarlegt.

Bezt

Hvort er betra, kvikmyndir eða bókmenntir? Skáldsögur eða heimspeki? Ég bið um einfalda heimsmynd, stigraðaða – í hvaða miðli er mestan sannleik að finna?

Annars: Ástin er måske blind en ekki heyrnarlaus, ótal ástarlög fara fram á það við hinn elskaða/hina elskuðu að hann eða hún hætti að tala: You say it best when you say nothing at all, er eitt stef sem ótal tilbrigði finnast við. Don't speak var kannski ekki ástarjátning … Stille, stille söng einhver við lag eftir Mozart … er þetta ekki eitthvað?

Ég er ekki nema óákveðið fornafn.

Nýir hlekkir hér fyrir neðan.

Heimili mitt er góður staður að vera á

Til er einhver óljós saga af óljósum gagnrýnanda sem varð fyrir því einhvern veginn að einhver nýumfjallaður höfundur hrækti á hann á götu. Óljóst er fyrir hversu mörgum árum þetta gerðist en því er ekki að neita að ég fann fyrir löngun til að gera gagnrýnanda eitthvað ljótt, sem ég gekk framhjá í dag, í Bankastrætinu … ég stillti mig ekki beinlínis um það heldur ólgaði blóðið svo í æðum mér að ég varð ófær um að svo mikið sem kinka kolli til kunnugra næsta hálftímann. Lamaður af beiskju. Ekki gott, vinna úr þessu, jóga eða afró-dansar … einhvers er þörf. Boxpúða í eldhúsið.

Einhver eitthvað alltaf. Sumir stundum. Alls ekki, alls ekki! Svo ég stílvitni í kunningjakonu mína. Kannski alltaf héðan af. Hispurs. Gott. Eitthvað hrrr …

25.12.06

Jólagrautur

Jólatíðindi af ljóðum: Ítalskt skáld fékk loksins að deyja – Piergiorgio Welby hét hann, það, skáldið, ég þekki því miður ekkert til hans og finn í fljótu bragði ekki ljóðin hans, en hér er þýðing á bréfi sem hann sendi forseta Ítalíu fyrir nokkru.

Allt um það, ég ætlaði í raun bara að minnast á bókaverslunina við Laugaveg þar sem ég keypti allt sem mig vantaði á Þorláksmessu, meira eða minna. Ég greiddi fyrir varninginn við kassa sem settur hafði verið upp í tilefni jóla, fyrir framan ljóðabóka- og orðabókahilluna. Ekki að ástæða sé til að ætla að nokkur myndi gefa ljóðabækur liðinna ára í jólagjöf … ekki að ástæða sé til neins yfirleitt. Og mér var greiði gerður – afgreiddur hratt og örugglega, engin biðröð. Ekki að blablabla, sama um ljóð, hvað, ha? Annars: Allir ættu að finna fyrir stílískri öfund til þessa hér.

Gleðileg jól, frá Arnarsmára, Kópavogi.