20.11.07

Gengi útlenskra nauðgunarfórnarlamba

„Flugmaðurinn er sakaður um heimilisofbeldi gegn stúlkunni en hún hefur mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom hingað til lands í september á síðasta ári.“

Segir Vísir í frétt hérna. Er það bara ég, eða má lesa þá afstöðu úr frásagnarmátanum að blaðamaður sé „með flugmanninum í liði“? Er einhver önnur forsenda fyrir því en sú að stúlkan er útlensk? Við vitum öll að heimur fréttanna er annar en sá sem, raunverulegar manneskjur lifa í dag frá degi – má skilja þetta svo að í hliðarveröld frétta(ma)nna séu ekki lengur bara til erlend nauðgaragengi sem leggi undir sig miðborgina um helgar, heldur gengi nauðgarafórnarlamba í þokkabót?

Annars er hitt jafn skrítið, að í þessari löngu, löngu frétt virðist alveg fljótandi hver segir frá: fréttamaður, flugmaður, stúlkan frá Venezúela, skýrsla héraðsdóms … ég get mér þess til að þetta sé vegna þess að fréttin sé í flýti copy-peistuð upp úr dómsgögnum eða slíku – þá væri skýring, en ekki afsökun, fréttamannsins sú að þessi texti allur sé framleiddur „hinu megin vits og greindar“, eiginlega hafi tölvan gert þetta, það er: þetta sé ekki heimska, heldur gerviheimska.

19.11.07

Forsíðufrétt New York Times um íslenska framúrstefnu

Íslensk erfðagreining sendir frá sér avant garde fréttatilkynningu, en það er sem fyrri daginn og við manninn mælt að á Íslandi er engin þekking eða skilningur á framúrstefnu. Þetta er ekki bara sci-fi, þetta er cyber-punk.

13.11.07

Lítið ljóð um smættun í barneignamjaðmir

Þá benda rannsóknirnar til þess, að börn sem unglingsstúlkur eignast, standa sig ver [!] á gáfnaprófum en önnur börn og er það rakið til þess, að mæður þeirra höfðu ekki nægilega mikið af omega-3 fitusýrum í mjöðmunum þegar þær gengu með börnin.

8.11.07

90 ára afmæli réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags

Árni Daníel Júlíusson skrifar frábæra grein til að fagna 90 ára afmæli rússnesku byltingarinnar:

„Á okkar dögum liggja hvers kyns mannréttindi, stjórnmálaréttindi og félagsleg réttindi undir árásum. Sigurför nýfrjálshyggjunnar heldur áfram, og grímulaus heimsvaldastefna Bandaríkjanna og bandamanna þeirra veður um heimsbyggðina. Það er þörf á að spyrna við fótum. Rússneska byltingin blés á sínum tíma fólki í brjóst vonir um að tímar óréttlætis og kúgunar væru að baki, og tímar réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags stæðu fyrir dyrum. Hún gjörbreytti valdahlutföllum í heiminum og leiddi í raun og veru til víðtækra umbóta og gífurlegra framfara hvað varðar rétt, aðbúnað og lífskjör almennings. Sú arfleifð verður aldrei máð út og heldur áfram að vekja skelfingu hjá valdastéttum heimsins. Arfleifð og áhrif rússnesku byltingingarinnar er fyrir þeim ófreskja, skrímsli sem var magnað upp, draugur sem gengur ljósum logum og hefur reynst ómögulegt að kveða niður. Fyrir þeim sem notið hafa og njóta ávaxtanna af rússnesku byltingunni er hún frelsistákn, vonarneisti í óréttlátum heimi sem aldrei mun slokkna á ný.“

4.11.07

Blorgunmaðið

Moggabloggið minnir mig meir og meir á kjallarann þar sem þeir hengdu Saddam Hussein. Mig langar svo að tala um hnignun.

Víkingar gera það virkilega gott á Filipseyjum – virkilega … mmmsmjatt!



Æ, ég hætti við að segja eitthvað um krata, kapítal, Filipseyjar ... orðin voru of gömul. Enn er ekki hægt að segja jöfnuður án þess að hlæja eða gretta sig. Sem er ekki við hæfi svo það heyrist bara ekki neitt. Þess vegna er hér vídeó.