13.7.06

Manni með hamar er serhver vandi nagli

To a man with a hammer every problem is a nail.
Japansk máltæki. Gott.
Manni með skriðdreka er sérhver vandi … yfirstíganlegur?

Eg elska lyktina af Zizek á morgnana


Er ekki kominn tími til að blogga spurði einhver – jú! Sannarlega, einmitt núna – smellið á myndina hér að ofan, og lesið – ég, persónulega, get ekki beðið eftir því að Einar Bárðarson flytji myndina inn. Og ætli sé ekki trúlegt að Kviksaga verði fyrri til …

Barcelona er ágæt, hér er heitt og ekkert hægt að gera nema vinna. Gott skrifborð. Góður matur. Það þarf að skrifa world guide fyrir fólk sem fer um aðallega í leit að borði undir fartölvuna sína. Mæli ekki með París – og mæli raunar enn ekki jafn rammlega með neinni borg og Berlín, nema þá ef vera skyldi Reykjavík sem er afar samtímavæn. Hef minni og minni samúð með hefðum en veit fyrir vikið ekki með hverju ég ætti að hafa samúð.

Fólkið sem ég bý hjá ætlar bráðum að gifta sig. Og í fyrrakvöld hitti ég japanskt par í honeymoon-Evrópureisu, hann ljóðskáld, hún plötusnúður og krakkar: Japanir yrkja ekki bara hækur!

Spurningin brennur vafalaust á mörgum: hvor eru betri, útlönd eða Íslönd? Svarið er vitaskuld afar einfalt: Ísland ætti að ganga í ESB. Þó ekki væri nema til að við getum öll farið að tala um eitthvað annað en gengi krónunnar og stutt síðan fótboltalið eftir stafrófsröð – eins og glöggir menn hafa væntanlega fyrir löngu gefið gaum er Ítalía næst á eftir Íslandi í upptalningu Evrópulanda. Ef Ísrael fer að láta ungu mennina sína æfa fótbolta frekar en hitt sem þeir eru að gera alla daga má kannski hleypa því á listann, en til að hafa allan varann á er ég frekar pró-latínisti en anti-semítisti. Í órum mínum.

Þýðingu Óraplágunnar er annars enn að ljúka. Og bókarskrifum. Mér leiðist að kalla bókina mína skáldsögu þó það sé hún … íslenska orðið skáldsaga lyktar svo mikið af hörðum spjöldum, stóru letri, of þykkum pappír, opnuviðtali í dagblaðsbroti … og því að næstum enginn lesi bókina. Það hangir of margt á spýtunni. Eða of fátt. Bók. Gott og vel, ég sé ekki betur en ég sé að klára bók, sem er ágætt.

Tölvur blogga ekki um fólk, fólk bloggar um fólk.

6.6.06

Nýmæli

„Ekki tala um þetta sem nýja ríkisstjórn. Þetta er sama ríkisstjórnin.“ – ávítar Geir H. Haarde, verðandi forsætisráðherra fréttamann ríkissjónvarpsins. „Ég legg áherslu á það að það er ekki stefnubreyting, þetta er sama ríkisstjórnin,“ heldur hann áfram til að slá á þá óskhyggju vinstrimanna að hægt sé að kalla það stjórnarkreppu að forsætisráðherra fari frá vegna goldins afhroðs í kosningum. Ég, persónulega, fagna skilgreiningarvaldi karlkyns, miðaldra verðandi ævisagnaritara, án þess væri ég ringlaður.

Er að fara í ferðalag, vona að ég líti ekki oft á myspace en stundum á tölvupóst.

26.5.06

Trúnaður

Tækið sem við höfum öll beðið eftir: Babble! Giving you the freedom to talk confidentially.

25.5.06

Ástkæru fjölmiðlar …

Í eitt skipti fyrir öll: Það heitir Pó-land. Ekki Pól-land, því það er ekki nálægt neinum pól, heldur alls konar hlutum sem heita Pó: á og/eða fjallgarði og/eða gresju. Við lögðum öll nóg á okkur í grunnskóla til að muna þetta, til að orðið ætti að komast óskaddað á forsíður. Nývaknaður og alveg brjálaður.

10.5.06

Reiðhjól

Það virðist enginn staður í borginni selja notuð reiðhjól, nema lögreglan sem býður upp þýfi þennan eina dag á ári – ég er semsagt á höttunum eftir ódýru hjóli, ef einhver skyldi luma á slíku …