25.5.06

Ástkæru fjölmiðlar …

Í eitt skipti fyrir öll: Það heitir Pó-land. Ekki Pól-land, því það er ekki nálægt neinum pól, heldur alls konar hlutum sem heita Pó: á og/eða fjallgarði og/eða gresju. Við lögðum öll nóg á okkur í grunnskóla til að muna þetta, til að orðið ætti að komast óskaddað á forsíður. Nývaknaður og alveg brjálaður.

6 ummæli:

Hildur Lilliendahl sagði...

Tjah. Það eru bæði Wikipedia, Tölvuorðabókin og Google ósammála þér. Þú hlýtur að viðurkenna ósigur þinn.

Birgitta Jónsdóttir sagði...

fjölmiðlar hafa líka endurskírt andfættlingaborgina Syndney í Sidney oftar en einu sinni...

Hver var þessi Sid?

Nafnlaus sagði...

Sid Vicious væntanlega?

Nafnlaus sagði...

Eru their thá kalladìr Póverjar...

Nafnlaus sagði...

Póland heitir Póland og ekkert rugl! Ég mun aldrei segja annað en Pó-land það sem ég á eftir ólifað!
Þór

Anna Kristjánsdóttir sagði...

Vegurinn frá Reykjavík inn að Þvottalaugum heitir Laugavegur, en dalverpið sem Þvottalaugarnar eru í heitir Laugardalur og nesið heitir Laugarnes.
Hvaðan kemur þetta r í Bolungarvík?

Bara að velta því fyrir mér.