24.2.06

Stríðið langa og siðferðisvísitalan Egill Helgason

Að síðustu, þessi grein sem Kistan pantaði eiginlega af mér, en ég, fégráðugur og bíræfinn, sendi á Fréttablaðið. Þar birtist hún í dag:



Það tekur fimm ár að umturna heiminum, hugmyndafræðilega og siðferðilega. Fimm ár. Heimsfréttir og fréttaskýringar eru nú gerðar úr setningum sem hefðu verið allt að því ósegjandi fyrir fimm árum síðan. Það sem hefur, gróft á litið, verið gert á þessum fimm árum er að skipta heiminum í „okkur“ og „þá“. Og við vitum öll hverjir þeir eru. Og við vitum öll hvernig þeir eru – börnin þeirra skera sig í höfuðkúpuna með rakhníf eins og mátti á dögunum sjá í ljósmyndasyrpu af daglegu lífi hér og hvar í heiminum.

Hvernig gerðist þetta? Hvernig var heiminum skipt upp í kvíar svo snögglega? Með einfaldri tækni sem var enduruppgötvuð í árdaga kvikmyndarinnar og þá kölluð „montage“ – skeyting – en hafði áður verið þekkt sem galdrar. Þannig var aldrei sýnt í orði að Saddam Hussein hefði haft hönd í bagga við fall tvíburaturnanna í New York – en það var gefið nógu oft til kynna með myndmáli til að verða viðtekin hugmynd í Bandaríkjunum. Saddam, Bin Laden, 911. 911, Bin Laden Saddam. Það voru ekki bara dagblöð og sjónvarpsstöðvar sem stunduðu þessa vel kunnu myndsköpun, heldur og Bandaríkjaher sjálfur, í skæslegri auglýsingaherferð (auglýsingastofan Leo Burnett hefur séð um markaðssetningu hersins upp á síðkastið. Meðal annarra viðskiptavina hennar eru Kellogg's, Visa, McDonalds, Coca-Cola, Philip Morris og Walt Disney. Betur má þó ef duga skal og verður samningurinn boðinn út á næstunni. Sjá vefinn army.com.)

Saddam, Bin Laden, kallarnir á spilastokknum (Bandaríkjaher dreifði spilastokk á meðal hermanna með fyrirmönnum í ríki Saddams Hussein, í mikilvægisröð), Tsjetsjenar, Palestínumenn – þetta liggur allt ljóst fyrir, þeir líta allir eins út. Fimm ár, þetta var auðvelt.

Og þá, þegar frjálslyndi lýðræðissinninn Egill Helgason og súrrealistinn Sjón hafa fallið fyrir myndunum, kalla Friedrich Nietzsche til vitnis og hrópa „Lifi málfrelsið – leyfum þeim að móðgast“, „Birtum fleiri skopmyndir“ og „Hættum griðkaupum“ (þetta eru fyrirsagnir á nýlegum pistlum Egils Helgasonar á Vísi.is og eru einkum merkilegar fyrir það hve vandræðalaust hann beitir 1. og 3. persónu fleirtölu) – þá er kominn tími fyrir næsta fasa, segir Bandaríkjastjórn, og tilkynnir: við eigum ekki lengur í „stríði gegn hryðjuverkum“. Við erum nú stödd í „stríðinu langa“ – „the Long War“. Og það mun vara í áratugi, spáir Varnarmálaráðuneytið í skýrslu sem það sendi frá sér í síðustu viku (Quadrannial Defense Review Report). Meðal atriða sem skýrslan tiltekur í slagorðakenndri sundurliðun þróunarinnar eru:

• Frá takti friðartíma – til tímaskeiðs hins óvænta og óvissa. [From a peacetime tempo – to an era of surprise and uncertainty.]

• Frá viðbrögðum eftir að neyðarástand skapast – til fyrirbyggjandi aðgerða svo vandamál verði ekki að neyðarástandi. [From responding after a crisis starts (reactive) – to preventive actions so problems do not become crises (proactive).]

• Frá herjum hæfum til orrustu (friði) – til herja sem hafa harðnað í orrustum (stríðs). [From a battle-ready force (peace) – to battle-hardened forces (war).]

Ennfremur gerir skýrslan ljóst að bardagar í Afghanistan og Írak séu aðeins upphafið á stríði sem verði langtum víðfeðmara, og langvinnara, en þessar fyrstu lotur. Nú eru þetta ekki tíðindi fyrir alla. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, sem skrifar undir skýrsluna er meðlimur í samtökum sem kalla sig Project for the New American Century. Samtökin voru stofnuð árið 1997 og hafa að markmiði að tryggja hnattlæg yfirráð Bandaríkjanna á 21. öldinni. Aðrir meðlimir eru m.a. Dick Cheney, og hugsuðurinn Francis Fukuyama sem í lok síðustu aldar lýsti yfir endalokum sögunnar.

Á heimasíðu samtakanna – www.newamericancentury.org – má lesa stefnuyfirlýsingu og greinar um einstakar aðgerðir, nauðsynlegar til að „byggja á þeim árangri sem náðist á síðustu öld og tryggja öryggi okkar og mikilleik á þeirri næstu“: stríð í Írak. Stríð í Íran. Stríð í Kóreu. Og svo framvegis, þar til meðlimum samtakanna þykir einsýnt að Bandaríkin munu þurfa að sýna Kína styrk sinn.

Þannig er hugmyndin um „stríðið langa“ ekki ný eða óvænt: en framsetningin er það. Að ríkisstjórnin, sem reyndi að draga dul á raunverulegar hvatir til innrásar í Írak fyrir þremur og fjórum árum síðan, telji nú hina hugmyndafræðilegu nýsköpun nógu langt komna til að tala svo purrkunarlaust um langtímaásetning sinn.

Egill Helgason, Sjón og aðrir sem telja brýnna að sýna Múslimum hvar Vesturlönd keypt málfrelsið en sýna þeim sömu mannvirðingu og Egill Helgason heimtaði nokkrum vikum fyrr af DV, þá í garð innfædds Íslendings, sem áreiðanlega var frjálslyndur, lýðræðissinnaður og kristinn – eru til marks um árangur Bandaríkjastjórnar í baráttunni um hug og hjörtu.

Egill: Þegar þú þarft að vitna í Nietzsche til að verja frjálslyndi og lýðræði, þá er eitthvað skrítið að ske.

Dagamunur

Hm … já … vikudagarnir vekja mér ugg og gera mig óróan, þá er opið á lögfræðiskrifstofum og ég kem litlu í verk. Helgarnar eru langtum betri, þá er jafnvel hægt að vinna heila tvo, þrjá tíma á dag. Hvað mun gerast á morgun?

Talandi um: í dag skrópaði ég á fund við grunnskólastjóra, þar sem ég hafði af rælni sótt um vinnu. Við nánari umhugsun sá ég að mér. Ég hef reynt þetta einu sinni, það er ekki til meira lýjandi starf.

Svona býð ég góða nótt.

Annars …

Veit einhver hvað verður um blogg þegar maður deyr? Sér einhver um eftirlit með andlátum sýndarpersóna?

Ferðamaður

Gott og vel, úff … nú hef ég ekkert birt lengi. Fyrst: Velkomin í nýja lúkkið. Þetta er allt miklu betra, þykir mér. Og þó að myndin af mér sé mæðuleg þá er hún töff og jafnvel dáldið sönn. Þarna er jafnvel komið fram ákveðið lykilatriði: hömlulaus sjálfsvorkunn asnans.

Þess utan: Mikið getur þetta ár orðið gott! Svona fyrir einstaka manneskjur, þó heimsbyggðin fari til fjandans. Árið hófst í Svíþjóð, hérna:
cabinboys
– og raunar er það ekki alveg satt, fyrstu daga nýja ársins var ég á Álandseyjum, sem samkvæmt úrskurði Sameinuðu Þjóðanna eru finnskar. Í Svíþjóð, í öllu falli, lagði ég línur ársins 2006 … með Halldorion, vini mínum. Línurnar felast, nánar tiltekið, í tíu kvikmyndum og einni bók. Fyrsta kvikmyndin er tilbúin. Bókin er að skrifa sig. Yfirlýsingagleði er þörf. Bókin er geðveik.

Ef ég dugi ekki þá drepst ég: ég er að fara að gera heimildamynd. Ég sit við skrifborðið mitt á Vesturgötu og er að fara að gera heimildamynd. Sit. Einhverjir þröskuldar eru enn á milli mín og þeirrar tegundar framkvæmdagleði sem krefst þess að maður standi upp frá borðum og geri tiltekna hluti með tilteknu fólki á tilteknum tíma. Sömu þröskuldar held ég að standi á milli mín og fjármuna. Þeir sem hafa ábendingar um hvernig maður getur yfirstigið slíka persónuleikabresti mega gjarna vera í bandi.

Ég ætla bara að tala um sjálfan mig á þessu bloggi, héðan af … skrif um annað verða seld Fréttablaðinu og Múrnum fyrir morð fjár. Það er góður peningur í andófsbransanum, mótmælendurnir á Kárahnjúkum voru víst með 250 þúsund á mánuði.

Hér er þá ein mynd enn: lógóið sem Danni vinur minn gerði fyrir tíu mynda seríuna – íslenska heitið Ferðamaður, útlenska Voyageur. Þetta leit vel út og hljómaði rétt eina kvöldstund en svo óttast ég að það sé tilgerð í þessu … minni kannski ef maður segir voyager. Lógóið á fyrst og fremst að vera hattur, en tvíræður hattur þó. Álit á þessu líka vel þegin. Virkjum alþýðuna, virkjum fallvötnin.

voyageur logo.gif

1.2.06

CV - Haukur Mar

CV
Haukur Már Helgason
b. 1978 | 2381km@gmail.com

---

SELECTED WRITINGS

2005 Rispa Jeppa – prose collection
Publ. Nýhil, in the collection Nordic literature.
2005 „Önnur Másabók“ – 2nd part of a rhapsody
Appeared in the collection Ást æða varps. Publ. Nýhil. Ed. Ófeigur Sigurðsson & HMH.
2002–2003 We Are Water – radio play for the BBC World
Co-author of a 60 min. piece for The Royal Court Theatre in London. Premiered on BBC-World, March 29, 2003.
2003 Sókratesarfélagið – play
Premiered by the theatre group Living Theatre, in Reykjavík, August 16, 2003.
2003 2004 – book of poetry
64 pages. Publ. Nýhil.
2002 Untitled monologue for Iceland State TV (RÚV)
Director: Lárus Ýmir Óskarsson. Premiered 2006.
2001 „Fyrsta Másabók“ – 1st part of a rhapsody
Appeared in the anthology Ljóð ungra skálda 2001. Publ. Mál og menning.
2000 Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja – book of poetry
42 pages. Publ. author.

---

EDITING etc.

2005-2006 Editing of catalogue for gallery Klink&bank
2004–2005 Writer and journalist for Reykjavík Grapevine magazine
2004 Editor and film festival correspondant for Land & synir magazine
2003 Af stríði – essay collection on the war in Iraq
132 pages. Editor and writer of introduction. The first in Nýhil's Af-series. Publ. Nýhil.
2003 Heimsendapestir, book of poetry by Eiríkur Örn Norðdahl
64 bls. Editor. Publ. Nýhil.
2001–2002 Berlin culture correspondant for State Radio 1
Summer 2001 Journalist at newspaper Morgunblaðið
2001 Nýhil
Co-founder of Nýhil, collective and publishing house. Among other things, some 15 titles have been published under the label, by now generally considered the most noteworthy publisher of new Icelandic literature.
2000-2001 Editing of the University of Iceland's Science Web
Editor of humanities.
1999 25 lexíur í upplýsingatækni for secondary and grammar school
Co-author. Two text-books on Information Technology.
Publ. Námsgagnastofnun (the state-run publisher of paedagogic material).

---

TRANSLATIONS

2005 The Plague of Fantasies – book by philosopher Slavoj Zizek
A current undertaking. Will be published by Iceland's oldest running publishing company, Hið íslesnska bókmenntafélag.
2002–2004 Translations for philosophy periodical Hugur
Maurizio Ferraris „Phenomenology and the Messiah“, 2005. Italian.
Sara Heinämaa „Descartes and the Unity of Soul and Body“, 2005.
Slavoj Zizek, „Kant with (or against) Sade“, 2004.
Minna Koivuniemi, „In the Spiderweb – Spinoza on Affects“, 2004.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir „The limits of Logic“, 2004.
Bernard Williams, „Philosophy as a humanistic discipline“, 2003.
Teresa Orozco, „The art of insinuation – Gadamer's philosophical appearance in the Third Reich“, 2003. German.
Hans Georg Gadamer, „Man and Language“, 2002. German.
2003–2004 Translations for Nýhil's Af-series
Slavoj Zizek, „The Ongoing Soft Revolution“, Af okkur, Nýhil 2004.
Slavoj Zizek, „The Iraq War – where lies the real danger?“, Af stríði, Nýhil 2003.
Arundhati Roy „Instant-mix Imperial Democracy!“, Af stríði, Nýhil 2003.

---

SELECTED FILMS & VIDEOS

2006 Papagena – Voyager 1
Author. The first in a planned series of ten documentaries on the obscurity of desire. 16 min.
2003 Áróður – Propaganda
Writer/director. Premiered in Festival Shorts&Docs, Reykjavík 2004. 13 min.
2002 Annað fólk – Andere Leute – Altre Gente – Other People
Writer/director. A short film made in three different versions, where poetry of three different authors is employed as musical score.
Poets: Veronica Raimo, Italy; Reto Pulfer, Switzerland, and HMH. 12 min.
2001 Homo activitus
Writer/director. Comedy on nihilism. 7 min.
2001 In the Trenches – short film about a priest
Writer/director. 15 min. Awarded. Bought and shown on State TV.
2000 Vei! Hryðjuverk! – Yibbie! Terrorism! – TV film
Writer. Produced by Böðvar Bjarki Pétursson for State TV. 25 min.

---

HAPPENINGS

2006 Kviksaga – the Reykjavík Academy's documentary film center
Founding member of Kviksaga. The center produces, screens and gives courses on documentary filmmaking.
2005 La dolce fucking vita in Berlin Expo, Germany
Poetry happening on art fair Berlin Expo. A joint project with gallery Klink&bank.
2005 La dolce vita in Lys over Lålland, Denmark
Poetry happening in in co-operation with gallery Klink&bank.
Summer 2003 Poetry parties – touring Iceland
Nýhil toured Iceland giving readings and throwing parties 5. til 24 júlí 2003.
2002-2003 Nýhilkvöld – Neuhil Abend
The first Nýhil happenings took place in Berlin, 2002, organized by Eiríkur Örn Norðdahl and HMH. Among appearances were the members of Icelandic group múm.
2000 Spakstundir, philosophical happenings
Open discussioins of philosophical matters, that I planned and started as head of Soffía, The University of Iceland's Philosophy Students Club. They are still held monthly, in Reykjavík.

---

TEACHING

2005-2006 Associate Professor, Iceland Acadamy of the Arts
Courses: Útópía/Alkemía and Political Visuality, design department.
2005-2006 Part-time teacher at Iceland Film School
First year Film-analysis.
Spring 2001 Assistant to Prof. Erlendur Jónsson, University of Iceland
Spring 2000 Kindergarten Instructor, Tjarnarborg, Reykjavík.
1998–1999 Secondary School Instructor, Ísafjörður.
1998 Director in Teenage Drama Club, Ísafjörður.
Staged: Grease, the musical.

---

EDUCATION

2003–2004 Cinema Studies, at FAMU, Prague Arts Academy
Emphasis: Screenwriting. Instructors included: Jean-Claude Carrière, J. Sofr, Brendan Ward, Linda Aronson, Pavel Jech, M. Bregant, Vojtechosvský and Barbara Ericsson.
2003 Kurz&Gelb, course in film directing at UdK, the Berlin Arts Academy
Instructors: Edward Berger og Lars Kraume.
1999–2003 Graduated in Philosophy from The University of Iceland
2001-2002 Exchange studies at Humboldt and Tächnische Universities, Berlín
– two semesters, supported by the Erasmus programme.
2002 Attended the congress Espaces d'action – espaces de perception
at Université de Technologie, Compiègne, France. Funded by the Socrates programme.
2001 Attended the congress Cognitive Science and Philosophy
at Brighton University, UK. Funded by the Socrates programme.
1998 University Admission Exams at Menntaskólinn við Hamrahlíð
Physics major.

---

LANGUAGES

Fluent: German, English, Icelandic.
Limited: French and Danish.
Can read: Italian and the Nordic languages.

Ferilskra

Ferilskrá
Haukur Már Helgason
f. 1978 | 2381km@gmail.com

---

HELSTU RITSTÖRF

  • 2005 Rispa Jeppa – prósasafn
    Útg. Nýhil, í ritröðinni Norrænar bókmenntir.
  • 2005 „Önnur Másabók“ – ljóðabálkur
    Birtist í safninu Ást æða varps. Útg. Nýhil. Ritstj. Ófeigur Sigurðsson og HMH.
  • 2002–2003 We Are Water – útvarpsleikrit fyrir BBC World
    Meðhöfundur 60 mín. verks fyrir Royal Court Theatre í London. Frumflutningur fór fram á BBC-World útvarpsstöðinni, 29. mars, 2003.
  • 2003 Sókratesarfélagið – leikrit
    Höfundur. Frumflutt af leikhópnum Lifandi Leikhús í Iðnó, á menningarnótt 16. ágúst 2003.
  • 2003 2004 – ljóðabók
    Höfundur. 64 bls. Útg. Nýhil.
  • 2002 Eintal, án titils, fyrir RÚV sjónvarp
    Höfundur. Leikstýrt og framleitt af Lárusi Ými Óskarssyni fyrir RÚV. Frumsýnt 2006.
  • 2001 „Fyrsta Másabók“ – ljóðabálkur
    Birtur í safnritinu Ljóð ungra skálda 2001. Ritstj.: Sölvi Björn Sigurðsson, útg. Mál og menning.
  • 2000 Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja – ljóðabók
    Höfundur. 42 bls. Útgefið af höfundi.

---

RITSTJÓRNARVINNA

  • 2005-2006 Ritstjórn katalógs fyrir Klink&bank
  • 2004–2005 Blaðamaður og pistlahöfundur fyrir tímaritið Reykjavík Grapevine
  • 2004 Ritstjórnarmeðlimur og pistlahöfundur fyrir fagritið Land & syni
  • 2003 Af stríði – ritgerðasafn um Íraksstríðið
    132 bls. Ritstjóri og höfundur inngangs. Útg. Nýhil.
  • 2003 Heimsendapestir, ljóðabók eftir Eirík Örn Norðdahl
    Ritstjóri. 64 bls. Útg. Nýhil.
  • 2001–2002 Pistlahöfundur fyrir þáttinn Víðsjá á Rás 1
    Sumar 2001 Blaðamaður við Morgunblaðið
  • 2001 Nýhil
    Félagsskapurinn Nýhil var stofnaður af Hauki og Eiríki Erni Norðdahl. Nýhil telur nú um 18 unga listamenn og skáld og undir merkjum Nýhils hafa verið gefnir út um 15 titlar ljóðabóka og annarra ritverka.
  • 2000-2001 Ritstjórnarmeðlimur Vísindavefs HÍ
    Ritstjórn hugvísinda.
  • 1999 25 lexíur í upplýsingatækni fyrir miðstig og unglingastig
    Annar tveggja höfunda. Tvær kennslubækur ásamt kennsluleiðbeiningum.
    Útg. Námsgagnastofnun.

---

ÞÝÐINGAR

  • 2005 The Plague of Fantasies – Óraplágan - eftir heimspekinginn Slavoj Zizek
    Er í vinnslu. Mun koma út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags.
  • 2002–2004 Þýðingar fyrir heimspekitímaritið Hug
    Maurizio Ferraris „Fyrirbærafræðin og Messías“, Hugur, 17. árg. 2005.
    Sara Heinämaa „Eining sálar og líkama“, Hugur, 17. árg. 2005.
    Slavoj Zizek, „Kant með (eða á móti) Sade“, Hugur, 16. árg., 2004.
    Minna Koivuniemi, „Í kóngulóarvefnum – Spinoza um hrif“, Hugur, 16. árg, 2004. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir „Takmörk rökvísinnar – Tilfinningalíf og ímyndunarafl í uppeldi spinozískra þegna“, Hugur, 16. árg. 2004.
    Bernard Williams, „Heimspeki sem hugvísindi“, Hugur, 15. árg., 2003.
    Teresa Orozco, „Skírskotunarlistin – Heimspekileg íhlutun Gadamers í Þriðja ríkinu“, Hugur, 15. árg., 2003.
    Hans Georg Gadamer, „Maður og tunga“, Hugur, 14. árg. 2002.
  • 2003–2004 Þýðingar fyrir afbækur Nýhil
    Slavoj Zizek, „Framvinda mjúku byltingarinnar“, Af okkur, Nýhil 2004
    Slavoj Zizek, „Íraksstríðið – hvar liggur hin raunverulega hætta?“, Af stríði, Nýhil 2003.
    Arundhati Roy „Instant-mix heimsveldislýðræði!“, Af stríði, Nýhil 2003.

---

KVIKMYNDAVERK

  • 2006 Papagena – ferðamaður 1
    Höfundur. Heimildamynd um fáránleika löngunarinnar. 16 mín.
  • 2003 Áróður
    Handrit og leikstjórn. Frumsýnd á hátíðinni Shorts&Docs í Reykjavík 2004. 13 mín.
  • 2002 Annað fólk – Andere Leute – Altre Gente
    Handrit og leikstjórn. „Rannsókn á persónulegum hraða“ – kvikmynd gerð í þremur útgáfum, þar sem ljóð þriggja ólíkra skálda eru notuð með, eða í stað, tónlistar. Skáld: Veronica Raimo, frá Ítalíu, Reto Pulfer, Sviss, og ég sjálfur. 12 mín.
  • 2001 Homo activitus
    Handrit og leikstjórn. Grínmynd um tómhyggju. 7 mín. „Mynd mánaðarins“, Bíó Reykjavík, apríl 2002.
  • 2001 Í fremstu víglínu – stutt mynd um prest
    Handrit og leikjstórn. 15 mín. Þriðju verðlaun á Stuttmyndadögum í Reykjavík, 2001. Sýnd á RÚV.
  • 2000 Vei! Hryðjuverk! – sjónvarpsmynd
    Handrit. Framleitt af Böðvari Bjarka Péturssyni fyrir RÚV. 25 mín.

---

UPPÁKOMUR

  • 2006 Kviksaga – heimildamyndamiðstöð Reykjavíkurakademíunnar
    Stofnmeðlimur og hugmyndasmiður Kviksögu, sem stendur fyrir framleiðslu, sýningum og kennslu í heimildamyndagerð.
  • 2005 La dolce fucking vita á Berlin Expo
    Á sölumessunni Berlin Expo, endurtók ég leikinn frá Danmörku, í samfloti við meðlimi Klink og Bank, lokaði mig inni í litlum klefa og las ljóð fyrir einn gest í einu.
  • 2005 La dolce vita á Lys over Lålland
    Á listahátíðinni Lys over Lålland í Danmörku setti ég í fyrsta skipti upp ljóðlestur í sýningarrými undir yfirskriftinni La Dolce Vita – þar sem ég lokaði mig inni í litlum klefa og las ljóð fyrir einn gest í einu, þegar þeir þorðu að stíga inn.
  • 2003 Ljóðapartí – ljóðlestraferðalag
    Nýhil lagði í ljóðlestraferðalag um Ísland 5. til 24 júlí 2003. Viðkomustaðir voru: Seyðisfjörður, Höfn í Hornafirði, Mosfellsbær, Akureyri, Sauðárkrókur, Ísafjörður og Reykjavík.
  • 2003 Nýhilkvöld
    Fyrstu uppákomur Nýhil skipulagði ég í Versuchsstation, Berlín, haustið 2003. Fram komu Eiríkur Örn Norðdahl, meðlimir múm, ungir þýskir rithöfundar, ég sjálfur o.fl.
  • 2000 Spakstundir, heimspekispjall
    Reglulegar uppákomur sem ég skipulagði sem formaður Soffíu, félags heimspekinema við HÍ. Fram komu, m..a., Róbert Haraldsson, Sölvi Björn Sigurðsson, Stefán Jón Hafstein, Vilhjálmur Árnason, Viðar Þorsteinsson o.fl. Kvöldin voru opin öllum. Spakstundir eru enn haldnar.

---

KENNSLA

  • 2005-2006 Stundakennari við Kvikmyndaskóla Íslands
    Kenni kvikmyndagreiningu með Ásgrími Sverrissyni, kvikmyndagerðarmanni.
  • 2005-2006 Stundakennari við Listaháskóla Íslands
    Kenni áfangana Útópía/Alkemía og Pólitískt myndmál á hönnunarbraut.
  • Vor 2001 Aðstoðarkennari Erlends Jónssonar, prófessors við HÍ
  • Vor 2000 Leiðbeinandi við leikskólann Tjarnarborg
  • 1998–1999 Leiðbeinandi við Grunnskólann á Ísafirði
    Umsjónarkennari í 6. bekk.
  • 1998 Leikstjóri í leikklúbbi unglinga við Grunnskólann á Ísafirði
    Settur var á svið söngleikurinn Grease.

---

NÁM

  • 2003–2004 Cinema Studies, Kvikmyndanám við FAMU, listakademíuna í Prag
    Aðalfag: Handritsskrif. Á meðal kennara: Jean-Claude Carrière, J. Sofr, Brendan Ward, Linda Aronson, Pavel Jech, M. Bregant, Vojtechosvský og Barbara Ericsson.
  • 2003 Kurz&Gelb, leikstjórnarnámskeið við UdK, listakademíuna í Berlín
    Leiðbeinendur voru leikstjórarnir Edward Berger og Lars Kraume.
  • 1999–2003 B.A. gráða í Heimspeki frá Háskóla Íslands
  • 2001-2002 Skiptinám við Humboldt og Tächnische háskólana í Berlín
    – tvær annir með styrk frá Erasmus.
  • 2002 Þátttaka í málstofunni: Espaces d'action – espaces de perception
    við Université de Technologie, Compiègne, í Frakklandi. Sókrates-styrkþegi.
  • 2001 Þáttaka í málstofunni: Cognitive Science and Philosophy
    við Brighton University í Bretlandi, Sókrates-styrkþegi.
  • 1998 Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
    Af eðlisfræðibraut.

---

TUNGUMÁL

Leikandi: Þýska, enska og íslenska
Nokkur: Franska og danska
Læs á: ítölsku og Norðurlandamál