Haukur Már Helgason
f. 1978 | 2381km@gmail.com
---
HELSTU RITSTÖRF
- 2005 Rispa Jeppa – prósasafn
Útg. Nýhil, í ritröðinni Norrænar bókmenntir. - 2005 „Önnur Másabók“ – ljóðabálkur
Birtist í safninu Ást æða varps. Útg. Nýhil. Ritstj. Ófeigur Sigurðsson og HMH. - 2002–2003 We Are Water – útvarpsleikrit fyrir BBC World
Meðhöfundur 60 mín. verks fyrir Royal Court Theatre í London. Frumflutningur fór fram á BBC-World útvarpsstöðinni, 29. mars, 2003. - 2003 Sókratesarfélagið – leikrit
Höfundur. Frumflutt af leikhópnum Lifandi Leikhús í Iðnó, á menningarnótt 16. ágúst 2003. - 2003 2004 – ljóðabók
Höfundur. 64 bls. Útg. Nýhil. - 2002 Eintal, án titils, fyrir RÚV sjónvarp
Höfundur. Leikstýrt og framleitt af Lárusi Ými Óskarssyni fyrir RÚV. Frumsýnt 2006. - 2001 „Fyrsta Másabók“ – ljóðabálkur
Birtur í safnritinu Ljóð ungra skálda 2001. Ritstj.: Sölvi Björn Sigurðsson, útg. Mál og menning. - 2000 Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja – ljóðabók
Höfundur. 42 bls. Útgefið af höfundi.
---
RITSTJÓRNARVINNA
- 2005-2006 Ritstjórn katalógs fyrir Klink&bank
- 2004–2005 Blaðamaður og pistlahöfundur fyrir tímaritið Reykjavík Grapevine
- 2004 Ritstjórnarmeðlimur og pistlahöfundur fyrir fagritið Land & syni
- 2003 Af stríði – ritgerðasafn um Íraksstríðið
132 bls. Ritstjóri og höfundur inngangs. Útg. Nýhil. - 2003 Heimsendapestir, ljóðabók eftir Eirík Örn Norðdahl
Ritstjóri. 64 bls. Útg. Nýhil. - 2001–2002 Pistlahöfundur fyrir þáttinn Víðsjá á Rás 1
Sumar 2001 Blaðamaður við Morgunblaðið - 2001 Nýhil
Félagsskapurinn Nýhil var stofnaður af Hauki og Eiríki Erni Norðdahl. Nýhil telur nú um 18 unga listamenn og skáld og undir merkjum Nýhils hafa verið gefnir út um 15 titlar ljóðabóka og annarra ritverka. - 2000-2001 Ritstjórnarmeðlimur Vísindavefs HÍ
Ritstjórn hugvísinda. - 1999 25 lexíur í upplýsingatækni fyrir miðstig og unglingastig
Annar tveggja höfunda. Tvær kennslubækur ásamt kennsluleiðbeiningum.
Útg. Námsgagnastofnun.
---
ÞÝÐINGAR
- 2005 The Plague of Fantasies – Óraplágan - eftir heimspekinginn Slavoj Zizek
Er í vinnslu. Mun koma út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags. - 2002–2004 Þýðingar fyrir heimspekitímaritið Hug
Maurizio Ferraris „Fyrirbærafræðin og Messías“, Hugur, 17. árg. 2005.
Sara Heinämaa „Eining sálar og líkama“, Hugur, 17. árg. 2005.
Slavoj Zizek, „Kant með (eða á móti) Sade“, Hugur, 16. árg., 2004.
Minna Koivuniemi, „Í kóngulóarvefnum – Spinoza um hrif“, Hugur, 16. árg, 2004. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir „Takmörk rökvísinnar – Tilfinningalíf og ímyndunarafl í uppeldi spinozískra þegna“, Hugur, 16. árg. 2004.
Bernard Williams, „Heimspeki sem hugvísindi“, Hugur, 15. árg., 2003.
Teresa Orozco, „Skírskotunarlistin – Heimspekileg íhlutun Gadamers í Þriðja ríkinu“, Hugur, 15. árg., 2003.
Hans Georg Gadamer, „Maður og tunga“, Hugur, 14. árg. 2002. - 2003–2004 Þýðingar fyrir afbækur Nýhil
Slavoj Zizek, „Framvinda mjúku byltingarinnar“, Af okkur, Nýhil 2004
Slavoj Zizek, „Íraksstríðið – hvar liggur hin raunverulega hætta?“, Af stríði, Nýhil 2003.
Arundhati Roy „Instant-mix heimsveldislýðræði!“, Af stríði, Nýhil 2003.
---
KVIKMYNDAVERK
- 2006 Papagena – ferðamaður 1
Höfundur. Heimildamynd um fáránleika löngunarinnar. 16 mín. - 2003 Áróður
Handrit og leikstjórn. Frumsýnd á hátíðinni Shorts&Docs í Reykjavík 2004. 13 mín. - 2002 Annað fólk – Andere Leute – Altre Gente
Handrit og leikstjórn. „Rannsókn á persónulegum hraða“ – kvikmynd gerð í þremur útgáfum, þar sem ljóð þriggja ólíkra skálda eru notuð með, eða í stað, tónlistar. Skáld: Veronica Raimo, frá Ítalíu, Reto Pulfer, Sviss, og ég sjálfur. 12 mín. - 2001 Homo activitus
Handrit og leikstjórn. Grínmynd um tómhyggju. 7 mín. „Mynd mánaðarins“, Bíó Reykjavík, apríl 2002. - 2001 Í fremstu víglínu – stutt mynd um prest
Handrit og leikjstórn. 15 mín. Þriðju verðlaun á Stuttmyndadögum í Reykjavík, 2001. Sýnd á RÚV. - 2000 Vei! Hryðjuverk! – sjónvarpsmynd
Handrit. Framleitt af Böðvari Bjarka Péturssyni fyrir RÚV. 25 mín.
---
UPPÁKOMUR
- 2006 Kviksaga – heimildamyndamiðstöð Reykjavíkurakademíunnar
Stofnmeðlimur og hugmyndasmiður Kviksögu, sem stendur fyrir framleiðslu, sýningum og kennslu í heimildamyndagerð. - 2005 La dolce fucking vita á Berlin Expo
Á sölumessunni Berlin Expo, endurtók ég leikinn frá Danmörku, í samfloti við meðlimi Klink og Bank, lokaði mig inni í litlum klefa og las ljóð fyrir einn gest í einu. - 2005 La dolce vita á Lys over Lålland
Á listahátíðinni Lys over Lålland í Danmörku setti ég í fyrsta skipti upp ljóðlestur í sýningarrými undir yfirskriftinni La Dolce Vita – þar sem ég lokaði mig inni í litlum klefa og las ljóð fyrir einn gest í einu, þegar þeir þorðu að stíga inn. - 2003 Ljóðapartí – ljóðlestraferðalag
Nýhil lagði í ljóðlestraferðalag um Ísland 5. til 24 júlí 2003. Viðkomustaðir voru: Seyðisfjörður, Höfn í Hornafirði, Mosfellsbær, Akureyri, Sauðárkrókur, Ísafjörður og Reykjavík. - 2003 Nýhilkvöld
Fyrstu uppákomur Nýhil skipulagði ég í Versuchsstation, Berlín, haustið 2003. Fram komu Eiríkur Örn Norðdahl, meðlimir múm, ungir þýskir rithöfundar, ég sjálfur o.fl. - 2000 Spakstundir, heimspekispjall
Reglulegar uppákomur sem ég skipulagði sem formaður Soffíu, félags heimspekinema við HÍ. Fram komu, m..a., Róbert Haraldsson, Sölvi Björn Sigurðsson, Stefán Jón Hafstein, Vilhjálmur Árnason, Viðar Þorsteinsson o.fl. Kvöldin voru opin öllum. Spakstundir eru enn haldnar.
---
KENNSLA
- 2005-2006 Stundakennari við Kvikmyndaskóla Íslands
Kenni kvikmyndagreiningu með Ásgrími Sverrissyni, kvikmyndagerðarmanni. - 2005-2006 Stundakennari við Listaháskóla Íslands
Kenni áfangana Útópía/Alkemía og Pólitískt myndmál á hönnunarbraut. - Vor 2001 Aðstoðarkennari Erlends Jónssonar, prófessors við HÍ
- Vor 2000 Leiðbeinandi við leikskólann Tjarnarborg
- 1998–1999 Leiðbeinandi við Grunnskólann á Ísafirði
Umsjónarkennari í 6. bekk. - 1998 Leikstjóri í leikklúbbi unglinga við Grunnskólann á Ísafirði
Settur var á svið söngleikurinn Grease.
---
NÁM
- 2003–2004 Cinema Studies, Kvikmyndanám við FAMU, listakademíuna í Prag
Aðalfag: Handritsskrif. Á meðal kennara: Jean-Claude Carrière, J. Sofr, Brendan Ward, Linda Aronson, Pavel Jech, M. Bregant, Vojtechosvský og Barbara Ericsson. - 2003 Kurz&Gelb, leikstjórnarnámskeið við UdK, listakademíuna í Berlín
Leiðbeinendur voru leikstjórarnir Edward Berger og Lars Kraume. - 1999–2003 B.A. gráða í Heimspeki frá Háskóla Íslands
- 2001-2002 Skiptinám við Humboldt og Tächnische háskólana í Berlín
– tvær annir með styrk frá Erasmus. - 2002 Þátttaka í málstofunni: Espaces d'action – espaces de perception
við Université de Technologie, Compiègne, í Frakklandi. Sókrates-styrkþegi. - 2001 Þáttaka í málstofunni: Cognitive Science and Philosophy
við Brighton University í Bretlandi, Sókrates-styrkþegi. - 1998 Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Af eðlisfræðibraut.
---
TUNGUMÁL
Leikandi: Þýska, enska og íslenska
Nokkur: Franska og danska
Læs á: ítölsku og Norðurlandamál
Engin ummæli:
Skrifa ummæli