4.6.05

Tiðindalaust

Æi …

nenni ekki neinu. Í dag.
Geri ekki neitt í dag. Þarafleiðandi.

Er með bíl í láni frá vestfirska tröllinu … fékk mér bíltúr um Grafarholt í von um að hrista úr mér leiðann. Haha! Djöfull getur maður fengið afspyrnuslæmar hugmyndir.

Þarna er vatn sem heitir Reynisvatn og í því liggja þúsund dauðir fiskar, eldisfiskar sem er sleppt í vatnið á vorin til að skapa meiri náttúru - eins og grenitrjánum sem er plantað allt í kring – hann fiskaði mest í dag sem gekk um með gráan poka og safnaði fiskunum saman með höndunum.

Þeir eru svo lífsleiðir að þegar þeir stranda á milli steina liggja þeir bara þar og bíða dauðans.

Sólin var samt ágæt.

Róm er á bömmer. Og svo var ég að hlusta á Víðsjá, það er maður þarna úti sem er hættur að skrifa, segist snúa sér að stangveiðum og kukli. Ég skil.

Ég var búinn að treysta á veðurspána sem sagði að í dag myndi rigna.

3.6.05

Þrjár forsíðufréttir herma að ekkert hafi gerst

Tíðindafátt nema ég held ég hafi verið að mæta grundvallarspurningu lífsins og manndómsins: Hvort er betra að yrkja eða rúnka sér? Svarafátt.

31.5.05

Bréf til bloggsins

Ágæti ritstjóri.

Ég hef nú farið nokkuð víða og heyrt margt um ævina og ekki allt við eina fjölina fellt eða báran stök. En það er nú svo að hver á rennur að ósi og ósana dreymir um uppspretturnar en það verður að hafa það, ekki í þessu lífi. Gott og vel, ég vildi fá að koma að smá erindi við lesendur blaðsins áður en ég hverf úr landi fyrir fullt og allt og mun ekki muna minn fífil fegurri hvað þá annað. Það er nú svo að það hefur legið í augum uppi eða mér þótt ljóst frá því ég var ungur maður, yngri en flestir menn leyfi ég mér að segja, en hvað um það, að veröldin, það er mennirnir í veröldinni, mannkindin og þetta er kannski það sem greinir hana frá sauðkindinni en sauðkindin er meira sjálfri sér lík en maðurinn, skiptist í okkur og hina. Þetta liggur í augum uppi og þarf í sjálfu sér ekki að nefna það. En hitt er líka ljóst, eða hefur mér orðið ljóst á ferðalögum mínum sem eins og ég hef minnst á eru allnokkur og skrautleg og ekki öll skaut skuð á þeim bæjum, að uppi er nokkur ruglingur í veröldinni með þetta, semsagt hvorir eru við og hvorir hinir. Nú veit ég ekki hvernig ég á að skýra þetta fyrir þeim sem ekki þekkir, en það er skáldið sagði á íslensku má alltaf heyra svar og það virðist vera einhvern veginn svo í pottinn búið að hinir telji sig okkur og okkur þá. Ekki í þeim skilningi að við séum þeir, þeir sjálfir enda er það dagljóst jafnvel halangrunum sem ég hef hitt í Ameríku og konunum þeirra og ég hugsa að jafnvel indíánar skilji þetta og márar en við þá ræði ég helst ekki en það er önnur saga og snýst um ýmislegt. En semsagt, svo ég víki mér aftur að meginefni þessa bréfs og sem mér finnst rétt að ritstjórn átti sig á eða fái í öllu falli að heyra af, þá grunar mig þetta, nei, ég hefi staðfestan grun um það að hinir líta upp til hópa svo á að þeir séu við og að við séum hinir eða í þann minnstan kostinn hluti af hinum. Á meðal hinna.

Nú sé ég eins hvernig af þessu hljóta, og þykir það liggja í augum uppi þó ég hafi hvergi heyrt um það rætt og þá ekki í þessum löndum þar sem ég hef verið aðkomumaður og margir lagt sig fram og í lima um að kynna mér staðhætti og hvernig best má búa og finna sér konu allvíða, að hljóta nokkur vandræði og eins erjur manna á millum og þá ekki aðeins á milli okkar og hinna enda erum við friðhægðarmenn og stöndum yfirleitt ekki í karpi um það sem er ekki olía á eldinn að því er ég best veit en nei ég hef ekki síður og jafnvel heldur áhyggjur af hinum sín á milli sem mér sýnist að gætu jafnvel átt þess hætt að karpa um það hver þeirra er við! Þó að, þó að, nú vöknar mér um augu, ég, lungun mín, þetta er ekki, já, aha, aha. Haha! Jæja, já, þó að þurfi ekki mörg orð um það að hafa að vitaskuld og ljóslega er eins og ég hef svo margsinnis minnst á, enginn þeirra við. 

Nú jæja. Og hvað þá kann einhver að spyrja og vonandi ekki en jafnvel þó að örvænta en örvæntið ekki! Hvað þá? Hvað er til bragðs? Er nokkur leið að útskýra þetta fyrir mönnum sem þá væntanlega enga glóru hafa og engan sens að sjá ekki sjálfra sín skil, eins og bakkabræður að vita ekki hverjir hafa hvern fót og hverja hönd og lúskra hvor á öðrum og sjálfum sér fyrir vikið vænti ég þó ég sé nú orðinn ryðgaður í því þessum sögum. En okkur hefur alltaf þótt gaman að segja sögur. Og þeim eða sumum þeirra í öllu falli, jájá.

Jæja. Það er nú það. Ég sé að sólin rjátlar svona yfir jöklinum, bráðum verður nú komið sumar og þá ekki úr vegi að kalla þetta gott. En það er sums staðar vetur á öðrum slóðum um svipað leyti og hér er sumar, rak ég mig á en ég man ekki vel hvar það var, ekki þó í Danmörku, þar þekki ég vel til.

Danir eru ekki svo ólíkir okkur.

Ég þakka þetta.

Sælinú og guð geymi okkur og alla hina og veiti þeim sinn skilning, þá fer næst víst allt á skástan veg,

Örn.

28.5.05

Drykkja

Spurningin „af hverju er ég svona mikill hálfviti?“ gúglast heldur ekki, fyrr en þá nú.

Já, ég varði 12 klukkustundum af takmarkaðri ævi minni í fyllerí í gær. 12 klukkustundum. Sirka frá sex til sex. 12 klukkustundir í að grafa undan æru minni og hamingju.

Ég held ég noti tækifærið núna þegar ég sé fram á óendanlegt magn ókeypis áfengis, þar sem ég hef verið skipaður bæði veitingahúsa- og listgagnrýnandi enskumælandi tímarits í borginni, og hætti að drekka.

24.5.05

Sálat

Hvalveiðiófétið heldur áfram að fylla upp í gloppur internetsins. Google finnur hvorki „friðlaus sál“ neins staðar, né „sálin finnur engan frið“. Því er þá hér með komið til skila, til almættisins.

20.5.05

Libido eykur kynhvöt

Svar við síðustu pöntun: Benjamín var kúl.

Og afsakaðu, Þór, afsakið þið, þetta brást, þetta prójekt, þetta gengur engan veginn, þetta er lamandi, mér tekst ekki að gera áhuga annarra nógu fyllilega að áhuga mínum. Uppskafningslegri tilrauninni telst lokið og niðurstaðan er neikvæð. Ég segi þá eins og Halldór Ásgrímsson um Íraksstríðið: Hættum að tala um það sem liðið er og snúum okkur að framtíðinni.

„Libido er náttúrleg vara sem reynst hefur auka kynorku karla.“ Þetta fann ég gegnum leit.is, í von um íslenska þýðingu á orðinu libido. Kynhvöt er ekki nógu skemmtilegt orð. Ekki nógu satt. En textinn heldur áfram: „Libido er ekki enn ein "testosterón-blandan" heldur safi úr fjóvguðum eggjum sem á vissu stigi innihalda efni sem ýmist örva beint framleiðlsu testosteróns í líkamanum eða þau líffæri sem sjá um hana. Þarsem Libido er eingöngu unnið úr náttúrlegum fæðuvörum fylgja því engar aukaverkanir nema hjá þeim sem hafa ofnæmi fyrir eggjum. Þegar egg er frjóvgað nærist fósturvísrinn sjálfur á 90% kólesterólsins í egginu þannig að Libido er nánast laust við kólesteról.“

Nei, þið sem haldið að þetta sé úr nýrri ljóðabók Nýhils, nei, Nýhil þarf ekki að semja sínar ljóðabækur, héðan af er ekkert eftir nema að afrita: „Flestir verða varir við jákvæð áhrif Libido strax eftir þrjá daga.  Eftir þrjár vikur finna 25,8% veruleg áhrif og 84% jákvæða aukingunu.“

Ég. Læt. Þetta. Duga.