25.3.05

Obærilegur lettleiki frettaflutnings

Cutnpaste póesían tröllríður heiminum, hér fer smá mega-meta-cutnpaste, af mbl.is sem sjálfsagt verður búið að leiðrétta sinn texta innan stundar og draga þannig dulu yfir þá annars vel kunnu staðreynd að fréttamiðlar lítilla landa eru fyrst og fremst ljósritunarstofur. Feitletrun er hvalsins:

Samkvæmt skjölum bandaríska hersins, sem gerð hafa verið opinber, hafa bandarísk stjórnvöld staðfesta vitneskju um það að Osama bin Laden, leiðtogi al Qaeda-samtakanna, hafi verið á Tora Bora hellasvæðinu in Afganistan er Bandaríkjaher gerði áhlaup á það í desember árið 2001. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

---

Fyrst og fremst ljósritunarstofur – helvíti var þetta samt smart hjá Stöð 2. Í fyrsta sinn á Íslandi: Hin hreina frétt. Koma Bobby Fischer er ekki atburður, hún er frétt. Enda hafa atburðir og heimurinn sjálfur verið sams konar óþolandi vesen fyrir fréttastofur hingað til og kúnnar eru fyrir starfsfólk verslana, námsmenn fyrir starfsfólki LÍN. Ég játa það á mig að hafa horft á hálfa beinu útsendinguna – eftir á – og ég get svo svarið það að ekkert gerðist. Þó var ekki um að villast og mátti ráða af svip allra sem að málinu komu að þarna var frétt á ferðinni – frétt flogið inn í beinni útsendingu á einkaþotu Stöðvar 2, með sjálfan fréttastjórann til að fylgja henni yfir landsteinana. Fréttamaðurinn í stúdíóinu lét móðann mása um fréttina og þar kom meðal annars fram að fréttin væri óvenju hraðskreið, hún færi á 800 kílómetra hraða og kæmist auk þess í 40.000 feta hæð, sem er og óvenjulegt fyrir einkafrétt – flestar farþegafréttir færu ekki hærra en 30.000.

---

Hvað gekk síðan unga manninum til, þessum snyrtilega með Sigurrósar/netbanka-hárgreiðsluna? Var hann svona hrifinn af yfirlýsingum Fischers um Gyðinga, Bandaríkin eða Japani? Eða hélt hann almennt að allt sem Fischer segi sé snjöll og djúp analýsa á ástandi heimsins? Hann var í öllu falli með ljóst hár og blá augu.

Ef til vill fæðist loks í kringum Fischer kynþáttahatursfylkingin sem íslenskir vinstrimenn hafa beðið óþreyjufullir eftir að fá að berjast gegn í yfir áratug.

Hvað sem öðru líður: Velkominn HEIM! Fischer, nú ertu ÍSLENDINGUR, sem þú varst eiginlega alltaf því þú talar eins og hver annar sjómannsraftur.

24.3.05

Samruni? Getatahji!

Þessi færsla er sett inn til þess eingöngu að bæta úr því netlýti að orðið synþesa, með íslenskri stafsetningu, gúglast ekki.

23.3.05

Nasiskir græningjar – nei, i alvörunni!

Strákurinn sem skaut skólafélaga sína í Bandaríkjunum í gær hafði víst skilið eftir einhver skilaboð á þessum vef hér … verufræðilegt undur: Libertarian national socialist green party.

22.3.05

Myndir

Talandi um smekkleysi – þessi myndafítus sem ég bætti á bloggið er alltof alltof smekklegur, sem á þessum post-smekkleysu tímum þýðir smekklaus – allar myndirnar líta út eins og smækkaðar skjáborðsmyndir gefnar út af Microsoft corporation … er til sú mynd í heiminum sem lítur ekki út eins og skjáborðsmynd frá Microsoft – eða þá hugsanleg, verðandi skjáborðsmynd frá Microsoft?

Jú, kúkur færi aldrei á opinber skjáborð … rétt eins og hann finnst ekki í tölvuorðabókum nefnds fyrirtækis. Og ekkert orð yfir kynfæri síðast þegar ég gáði og ég held að ég hafi oft minnst á það og sé dæmdur til að endurtaka það sama til æviloka – hefur annars einhver sagt eitthvað nýtt á Íslandi upp á síðkastið?

Ég er á leiðinni heim, heim, heim, heim í björgin, ég ætla að síga og tína egg, týna lambhúshettu, tíma ekki að kaupa í matinn … það gæti orðið stuð.

20.3.05

Og frir snakkpoki með hverri spolu

Gallerí Fold við Rauðarárstíg verður með opið hús á laugardaginn. Þeir sem ganga frá umsóknum um listmunalán á laugardaginn fá grafíkverk eftir Kristján Davíðsson að gjöf. – Af vef KBbanka.

Kapítalisminn er svo frámunalega smekklaus … ég held að Stefán Jónsson hafi bent á þetta sem stærsta vanda hans.

Jæja … ákvarðanir og einbeiting. Hananú!

1.3.05

Eitt af 1500 .doc skjölum a tölvunni minni

Athuganir

Grimmu smáfuglarnir á stéttinni.
Stelpan með byssuna.
Sá sem reynir aldrei að drepa viðfang ástar sinnar undir eiginleikakvíar, og hinn sem segir alltaf þegar hann kynnist nýju fólki: „Já, þú ert svona …“
Óhugur þegar einstaklingnum er lokið upp. — blóð, uppskurðir.

Leiðarspurning

Fagna ég þessum fíflum
eða finnst það miður
þau séu til?

Fagna ég
syndum mínum?

Fagna ég
löstum heimsins?

Vegsama ég sjálfan mig?

Skrásetning rannsóknar

Rétt eins og í kvikmynd
rignir nú úti
einmitt um leið og rignir inni.
Við erum öll svo fegin
– náttúran,
borgin
og ég –
fengum öll fréttir
af unnum orrustum.
En ég þarf að fara.

I.

Gluggi á lest.
Grænar línur.
Blóm í flugumynd.
Eyjur úr trjám
í grashafinu
– eyja úr trjám og húsi
– á plægðum akri,
enn ósáðum,
ógurlega endast teinarnir.

II.

Æ, þessi endurteknu helvítis mistök
að fróa sér í morgunsturtunni,
í dag verður þoka.

III.

Stóð heima. Ég er á skipi. Hafið hefur loks látið freistast og leitar á himininn og himininn leitar á okkur, mennina með fartölvurnar, konurnar með börnin, sem erum á leiðinni milli borga og skiljum ekki þennan – stað? Veruleikinn rétt situr eftir í bláum plastdúk á þilfarinu og vélarhljóði, dempuðu vélarhljóði.

Niðurstaða

Ég vegsama sjálfan mig.
Og lestirnir eru líf mitt.
Og heyrðu þetta:
löngu úrelt tónlist
tilheyrir næstum
æsku minni. – (?)