– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
29.10.07
Móses 21:6 í nýju Biblíunni
Getur nokkur sent mér línuna, úr glænýju þýðingunni, hér í athugasemdir? Með þökk, H.
2 ummæli:
Nafnlaus
sagði...
Það eru reyndar fimm Mósebækur. En nýji textinn er víst kominn á netið á www.biblian.is.
En hér eru versin frá Móse 1 til 5.
Og Sara sagði: „Guð hefur gefið mér hlátursefni. Hver sem heyrir þetta mun hlæja með mér.“
skal húsbóndi hans leiða hann fram fyrir Guð og að dyrunum eða dyrastafnum. Síðan skal húsbóndi hans stinga al í gegnum eyra hans og hann verða þræll hans ævilangt.
Þeir skulu vera helgaðir Guði sínum og mega ekki vanhelga nafn Guðs síns. Af því að þeim ber að færa fram eldfórnir Drottins, sem er matur handa Guði þeirra, eiga þeir að vera heilagir.
Þá sendi Drottinn eitraða höggorma gegn fólkinu. Þeir bitu fólkið og margir Ísraelsmenn dóu.
Þá skulu öldungar þeirrar borgar, sem næst er hinum myrta, þvo hendur sínar yfir kvígunni sem hálsbrotin var þarna í dalverpinu.

Kærar þakkir. Ég var að leita að fyrstu línunni, hún á sér merkilega þýðingasögu.
Skrifa ummæli