
2. Kalifornja. Kann að djamma. En í íbúðahverfum bæjarins sem kýs bara demókrata er tiltölulega rólegt, enda þekkja menn og skilja lífsgæði. Þeir sem brjóta gegn lífsgæðum eru handteknir fyrir quality-of-life crimes, eða lífsgæðaglæpi. Til dæmis þeir sem eru fyrir. Ef menn eru fyrir tvisvar sinnum í röð á innan við 8 klukkustundum er þeim hent í fangelsi, svo þeir hætti því. Blessunarlega var Eiríkur lítill smaladrengur með dreymin augu löngu áður en þessi lög voru sett, annars hefði honum og klettinum hans verið hent í steininn.
3. Þýðir ekki að gráta Björn bónda dæsir þjóðfræðingur. Töff stöff.
4. Peningar óskast.
5. Ég var að vona, enn og aftur, að landið færi á annan endann yfir þýðingu og grein frá mér í Sjónauka, nýja listatímaritinu. Greinin heitir Hallamál. En heimur sem heldur ró sinni gegnum heilu stríðin og hækkar bara í ipodinum þegar hækkar í sprengjunum kallar ekki allt ömmu sína, allra síst enhverjar tímaritsgreinar. Hvað sem því líður er þarna grein sem var mér á tímabili einhvers lags fermingargrein, einhvers lags prívat manifestó, svo mér líðist ekki annað en bretta upp ermar og henda ósóma út í sjó. Mæli með henni. Og mæli með Pasolini, mín grein er viðhengi á hans.
6. Lengi tekur hafið við, dæsir þjóðfræðingurinn.
7. Latíta, latína.
8. Eru ekki örugglega allir að taka þátt í Facebook ævintýrinu? Nýjasta útspil Myspace held ég að verði allri samkeppni rothögg: Myspace er nú eina félagsmiðstöðin á Netinu þar sem gera má óafturkræfan sáttmála við menn og vefstjóra um að tolla saman til dauðadags, þannig að valblaðið „relationship status“ eða radíóhnapparnir einfaldlega hverfi og maður geti aldrei stillt á single aftur. (Kirkjunnar menn skiptast í tvær fylkingar: þá sem fagna innkomu einkvænis í Netheima, og hina sem bölva þeirri upphefð sem þannig hlotnast heimasíðum og kerfisstjórum. Þeir segja: Gjaldið Netinu það sem Netsins er og Guði það sem Guðs er – hjónabandið er fyrir líkama, Netið er einhleypra.
9. Offramleiðsla vensla, dating till I die – það rímar við plötuna hans Brian … Ryan … Adams, þarna frá Kanada: Eighteen till I die, hét hún. Svo hef ég séð íslenskan strætóbílstjóra með „smoking till I die“ á upphandleggnum.
10. Jæja, ég bý í koti, þjóðlegu koti með þráðlausu neti. Það heitir þjóðlegt ef það er gert úr tré.
11. Í dag fer þetta blogg upp í ellefu. Svo kíkir það kannski til Kanada, að kynna sér síróp. Síróp er gert úr tré.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli