8.5.06

Eru visindi heimsk?

leti.jpg
Á forsíðu Morgunblaðsins í dag birtist fréttin hér við hliðina, þar sem vísindamenn – raunvísindamenn – hafa semsagt komist að þeirri niðurstöðu að í hóflegum skömmtum geti leti slegið á streitu. Textinn að neðan er úr grein sem birtist sama dag á mbl.is, um að heili lesbía bregðist öðruvísi við lykt karla og kvenna en heili gangkynhneigðra kvenna. Nú er ljóst að textarnir sjálfir eru ekki unnir af vísindamönnum, heldur blaðamönnum. Því er spurningin opin: hvar er heimski hlekkurinn? Hver er það, á leið vísindarannsókna til almennings, sem ræður því að vísindi virðast einkum beina athygli sína að því að finna mólekúl á bakvið 'frávikshegðun' eins og samkynhneigð er orðuð í helsta inngangsriti að félagsfræði við Háskóla Íslands þessa önn, renna stoðum forheimskaðrar 'skynsemi' undir það sem ýmist er einfaldlega vanþekking eða öllum ljóst (það er, ýmist öllum ljóst og rangt, eða öllum ljóst og rétt). Hvaða mengi persóna sem á í hlut, ef einhver skyldi asnast til að lesa þetta blogg í frístundum, þó mig gruni að eini lesandinn sé bróðir minn:

1. Mólekúl hafa ekki skýringargildi, heldur eru í besta falli vafasöm þýðing á merkingarbærum heimi manneskja.
2. Það er óþarft að sækja vatnið (ágæti hægðarinnar) yfir lækinn (excel-skjalið með rannsóknarniðurstöðunum).
3. Fánýti er fánýti.
4. Óþörf orð eru óþörf.
5. Lesið eitthvað – eitthvað – sem kemur starfi ykkar ekki við, víkkið sjóndeildarhringinn, verðið fyrst manneskjur, síðan vísinda- eða blaðamenn.

Til almennings og ráðamanna: Endurnefnið atvinnuleysisbætur 'nýsköpunarsjóð' og liðkið til í reglunum, svo fólk geti vandræðalaust tekið sér frí frá störfum og ráðið bót á þessari vitleysu og annarri.

Kynhvötin og heilastarfsemi könnuð
Heilinn í lesbíum bregst öðruvísi við kynhormónum en heilinn í gagnkynhneigðum konum. Þetta staðfestir ný sænsk könnun, þar kemur jafnframt fram að heilinn í lesbíum sýnir svipuð viðbrögð og heilinn í gagnkynhneigðum körlum. Frá þessu var sagt í riti sænsku vísinda-akademíunnar í dag.

Með ákveðið óþol vegna bakverkja (og þó er mér nokkur alvara),

Haukur Már.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvaða væl er þetta, ég les þig alltaf, oft. Komdu í hvítvín þegar þú mátt vera að því.
- Rafsuðutækið

Nafnlaus sagði...

Tja... Kannski ekki alveg sami hluturinn, en fyrrum vinnufélagi minn sagði alltaf að það væri gott að vinna með lötu fólki, það væri svo fljótt að sjá út hvernig mætti létta manni vinnuna...

Nafnlaus sagði...

fólk sem takmarkar sig við eina sérhæfða túlkun raunveruleikans verður að lokum það smættað að það gleymir að hlutirnir geti aðeins verið til í samhengi og að aðeins innan samhengisins hafi þeir merkingu. Árangurinn getur aðeins orðið sá að fólk geri sjálft sig óhæft til að starfa í þágu þróunar og finnist það þurfa “ að vinna” fyrir launum, það áttar sig ekki á að metnaðarlaust verk er mun skaðlegra en óunnið verk.