23.3.06

Í tilefni af greiningum greiningardeilda banka á stöðu banka

Vill einhver eldri maður útskýra fyrir okkur börnunum hvað kreppa þýðir? Ef framleiðsla dregst saman um 5-10%, munum við þá bara borða meira Euroshop Corn Flakes og minna Kelloggs eða þurfum við að flytja aftur í moldarkofana? Munu bankarnir vilja fá yfirdráttarlánin sín til baka, svo allir hætta að drekka? Eða getur verið, eins og mig grunar, að kreppa sé fyrst og fremst fyrirtak fyrir menn eins og mig, sem kunna ekki á peninga og hafa þá sama forskot og blindur maður í myrkvuðu herbergi? Er hagfræðingur í húsinu?

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er það ekki þannig að krónan verður bara minna virði, þ.e. þótt þú fáir sömu laun, þá færðu minna fyrir þau. Sem sé meira Euroshopper, minna alvöru kornflex.

gamli sagði...

gémmer hundraðkall.

gamli sagði...

gémmer hundraðkall.

gamli sagði...

gémmer hundraðkall

Heiða sagði...

Kreppa, og hinir síðustu verða fyrstir.

Nafnlaus sagði...

Blessaður!

Það virðist vera hagfræðingur í húsinu á sirka mánuðar fresti eða svo.

Kreppur virka yfirleitt þannig að þeir sem hafa lágar tekjur og engan sparnað missa vinnuna, tekjurnar, heimilið, makann osfrv; þeir óheppnu í millistéttinni missa viðbótarlífeyrissparnaðinn og hlutabréfin og fara að borða euroshop corn flakes; og yfirstéttinni er reddað einhvern veginn.

Síðast þegar var kreppa, 1989-1994, lækkaði landsframleiðsla um 4,5% á einu ári og meðalkaupmáttur launa um 7% í allt á fimm ára tímabili, sem þýðir að meðalmaðurinn sem heldur vinnunni sinni reddast sæmilega. En láglaunafólk sem missir vinnuna er yfirleitt lengur að finna nýja vinnu. Þar að auki gæti húsnæðisverð lækkað ef vextir hækka og kaupmáttur minnkar, sem þýðir að t.d. fólk sem skilur og neyðist til að selja húsið á hugsanlega ekki fyrir höfuðstólnum og fer á hausinn.