Heimurinn linnir ekki látum – við merkjum hann upp með tungumáli en síðustu ár hefur hefðbundnum skiltum verið skipt ötullega út fyrir LCD skjái sem geta varpað þeirri merkingu sem hentar þegar hentar. Verður ekkert orð fasti árið 2010? Verða nafnorð horfiin úr tungumálinu? Verður hvert orð breyta, verður hvert orð LCD skjár?
Hm … ég sit heima hjá mér og skrifa tölvupóst. Heima hjá mér, also heima hjá foreldrum mínum. Í herbergiskytru. Í roki. Skrópa á kvikmyndahátíð … finnst ég ætti að vera þar en vil ekki sýna ímynduðum kvöðum undanlátssemi.
Um leið og orðin verða breytur og skipta litum óðar en flugvallarskjáir uppfæra flugdagskrána, munum við hætta að búa nokkurs staðar og ferðast alla daga? Það er hægt að ferðast án þess að leggja upp af stað a og ætla sér að lenda á stað b – þetta ættu allir að vita eftir Newton. Við erum enn að súpa seyðið af Newton – það eru ár og öld þar til afstæðiskenningin fer raunverulega að hafa áhrif á hugmyndaheim okkar.
Hvers vegna er ekki talað um afstæðiskenningu Newtons?
Hm. Gott og vel. Ég á nokkra daga eftir í landi, þrjá, svo held ég út á sjó, syngjandi kátur. Þú veist að ég uni ekki í landi.
Út á sjó … ekki að mér sé flökurt í Berlín. Ég er hins vegar með væga riðu hér. Og ekki að þetta sé ekki ágætt.
Bleblabla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli