30.6.08

Sósíalismi (hjarta) allir



Hjart hjart hjart
eins og blómspringablóm.

Framundan er trúlega nokkur yfirlýsingagleði.

Í tilefni af þrítugsafmæli mínu er ég kominn út úr skápnum sem sósíalisti og listamaður. Mér sýnist enginn annar ætla að gera þetta fyrir mig. Ég flyt mig á this.is/haukurmar þar sem ég geri ráð fyrir að henda í nokkrar sósíalískar yfirlýsingar. Svo koma bækur. En sósíalistum hættir til að ofanda - við skulum anda rólega.

4.6.08

Fágúgl dagsins

Avant garde poetry post-lyricism. Fjórar niðurstöður. Post-lyricism: 20. Póst-lýrískur: Enginn fyrr en núna.

Gúgla, gaugl, guglum, goglt. Þótt ég gygldi alla leyndardóma og alla þekking væri ég án kærleikans aðeins hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.

Blogga, blag, blágum, blogt. Þótt blægði ég tungum manna og engla en hefði ekki kærleika væri ég ekki neitt. Barekki neitt.

31.5.08

Tilgangur með lífinu lækkar vöruverð

Tilgangur með lífinu lækkar vöruverð því þegar fólki dettur í hug að tími sé verðmætur og annað við hann að gera en borga fyrir nauðþurftir er síður hægt að okra á því.

Hátt húsnæðis- og matarverð á Íslandi er þannig til marks um hrikalega tómhyggju.

Tilgangsvísitala þróast ekki endilega samferða væntingavísitölu.

15.5.08

Við sem fyrirgefum fjárfestum

Ef ég skil rétt, þá fyrirgaf ég fjárfestum í dag um 300 þúsund króna skattaskuld. Og mun halda áfram að fyrirgefa þeim héðan í frá. Alþingi framkvæmdi fyrirgefninguna fyrir mig, fram- og afturvirkt.

Ef ég skil rétt hefur hver fjögurra manna fjölskylda þannig fyrirgefið fjárfestum um 1,2 milljónir króna. Í dag. Enda hefur harðnað í ári, gefið á bátinn og allt það.

Ef ég skil rétt er þetta bæði kristilegt og smart, þó skattstjóri kalli það stílbrot. Afbrot heitir það auðvitað ekki, enda eru þetta lög. Lög um fyrirgefningu.

Munið: Heimurinn er ekki ryksuga sem færir tíma margra í fárra hendur. Sumir eru bara heppnir. Aðrir miskunnsamir.

Hér.

11.5.08

Nýta ljóðskáld … og hljóðmenn


Úr áðurnefndri skýrslu nefndar forsætisráðuneytisins um ímynd Íslands. Hljóðmenn?

Jæja, frétta- og blaðamenn virðast eiga að fá að vera í friði fyrir störfum nefndarinnar, enn sem komið er.

7.5.08

Peninganörd

Orðið gúglaðist ekki, svo mér fannst þurfa að koma því að.

Peninganörd. Samheiti við auðmenn, til dæmis, eða fjárfesta. Á allavega við um alla sem tala um gengi gjaldmiðla í selskap. Ísland allt. Notist annars að vild.

Þá er ég farinn í frí. Sjálfboðaég.