Ef ég skil rétt, þá fyrirgaf ég fjárfestum í dag um 300 þúsund króna skattaskuld. Og mun halda áfram að fyrirgefa þeim héðan í frá. Alþingi framkvæmdi fyrirgefninguna fyrir mig, fram- og afturvirkt.
Ef ég skil rétt hefur hver fjögurra manna fjölskylda þannig fyrirgefið fjárfestum um 1,2 milljónir króna. Í dag. Enda hefur harðnað í ári, gefið á bátinn og allt það.
Ef ég skil rétt er þetta bæði kristilegt og smart, þó skattstjóri kalli það stílbrot. Afbrot heitir það auðvitað ekki, enda eru þetta lög. Lög um fyrirgefningu.
Munið: Heimurinn er ekki ryksuga sem færir tíma margra í fárra hendur. Sumir eru bara heppnir. Aðrir miskunnsamir.
Hér.
1 ummæli:
Þetta er EKKI Í LAGI. Á svo kannski næst að minnka vextina á húsnæðislánunum? Eða afnema verðbætur? Gera fólki kleift að lifa af launum fyrir dagvinnu? Hvar endar þetta eiginlega?
gömul (þreytt) kona
Skrifa ummæli