Jæja. Berlín. Eftir Róm. Fyrst af öllu get ég sagt þessari stúlku sem spyr alltaf við og við hvort ég sé á lausu, hérna á kommentakerfinu, að já, sjálfsagt útleggst það þannig núna, og þegar ég kem til Íslands skaltu endilega reyna við mig, ef þú ert frábær, ég er alveg til í að hitta frábærar stelpur.
Þetta var semsagt þannig ferð til Rómar og þó var hún góð. Á hinn undarlegasta máta.
Hm ... ég er farinn að taka þátt í myndlistasýningum. Sem er undarlegt. Er semsagt að lesa ljóð hérna á Berliner Liste, sem má sjálfsagt gúgla. Stórlaxagrill sýnist mér. Það ætti að vera dáldið heitt, einhver ætti að vilja reyna við strák sem les ljóð á alþjóðlegum listasýningum? Og hoppar svona um Evrópu fyrir peningana sína og kaupir notuð föt frekar en leigja íbúð ...
Hvar á maðurinn heima? Uppi í ristlinum á sjálfum sér. Þar ætlar hann nú að leggjast út af og dvelja fram eftir morgni, meðvitundarlaus, ekki af áfengisofneyslu heldur þreytu einni. Og ef til vill vöntun, einhvers konar vöntun, einhvers konar áfergju og vöntun.
Rafauga, þú varst eitthvað að pota í mig ... ég skil ekki hvers er vænst, veit ekki hvað klukk er, reyndu aftur.
– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
29.9.05
3.9.05
Ógnin
Ókei. Margt. Helvíti margt. Byrja hvar? New Orleans? Ég var í partíi rétt áðan þar sem ég stóð sjálfan mig að því að segja: „Næsta bók frá Zizek hlýtur að vera mögnuð, því heimurinn er bara alltof geðveikur einmitt núna!“ – Ég meinti þetta af einlægni og einmitt þannig þrífst engin kaldhæðni án einlægni – kantískt er kaldhæðni ótæk, því ef allir stunduðu hana alltaf væri hún sjálf þegar úr leik … eða hvað? Er heimur algjörrar lygi mögulegur? Leggjum það til hliðar: New Orleans og snjóflóðin í Súðavík. Ég er að reyna að sjá þetta fyrir mér: Snjóflóð fellur á Súðavík. Nokkrar fjölskyldur redda sér, en einhverjir deyja. Þeir sem redda sér fara í hús hinna og ræna sjónvörpunum. Og haglabyssum. Víkingasveitin er send uppeftir til að stöðva þjófana. Það er blindbylur og erfitt að ná tökum á ástandinu. Fólk liggur deyjandi í snjónum en hjálp er lofað. Víkingasveitinni verður eitthvað ágengt, skýtur manneskju á færi, sem sást bera hluti á milli húsa. Ef til vill hluti úr kaupfélaginu. Neyðaraðstoð er á leiðinni, víkingasveitin kallar eftir liðsauka. Forsetinn mætir og lýsir yfir áhyggjum af ástandinu. Bæjarstjórinn segir að fullorðinn maður hafi grátið, svo hörmulegt sé ástandið – bæjarstjórinn ítrekar: fullorðinn maður. Sú fregn spyrst að sýslumaðurinn hafi orðið undir – rán og gripadeildir færast í aukana - Kaupfélagið er beinlínis tæmt, en Víkingasveitin gómar flesta þjófana glóðvolga. Hjálparsveitin er víst á leiðinni.
Þegar lög og regla eru fyrirsjáanleg er víkingasveitarmönnum skipað að skjóta nokkra gargandi máva, sem gætu borið með sér fuglaflensu.
Það er alltof margt um málið að segja. Maður ræður sér ekki …
En ég var líka að koma úr partíi. Ísland er ofhlaðið merkingu. Raunverulega, það verður ekki þverfótað fyrir einsögu hvert sem litið er … of mörg hlutverk, of fátt fólk. Og stundum mætir maður, í augunum á hinum, þögulli viðurkenningu þess að sumt er ósagt. Og um leið, jafnvel, viðurkenningu þess að maður er ekki viss hvað það sé.
Í dag sat ég á kaffistofu með vini mínum og sagðist vera orðinn dónalegur og leiðinlegur við allar stelpur sem sofa hjá öðrum en mér. Þá gekk inn ung, snotur, gift móðir sem ég kannast við … ég veit ekki hvort henni virtist brugðið því hún heyrði það sem ég sagði eða ekki, en ég var hinn prúðmannlegasti.
Viti einhver af góðri og ódýrri íbúð í Reykjavík vil ég gjarna heyra.

25.8.05
Danmörk
"Something pretty for she" gúglast ekki, hér með bætt úr því. Mig langaði að finna eitthvað fallegt fyrir stúlku, að senda henni. Er búinn að senda gay bar vídeóið of oft …
Saxkjöbing. Þar er ég núna. Voða fallegt. Tré og svona. Mun loka mig af í tveggja manna klefa og lesa ljóð þegar svo ber undir.

22.8.05
Um kynhneigðir þjoðarleiðtoga
Ég vona að einhverjar haldbærar samsæriskenningar séu á ferðinni um hvers vegna gagnauga vefurinn liggur inni einmitt núna, en ef það skyldi vera vegna vísunarinnar sem þeir birtu á þetta háskalega myndband hér þykist ég hér með þegar hafa unnið byltingunni nokkurt lið.
Tiðindi
Ókei, þetta er sennilega komið í ljós. Semsagt, hafið ekki frekari áhyggjur af síðustu færslu. Dagarnir styttast.
Ástin í veröldinni hefur víst aukist verulega frá því smokkaframleiðandinn Durex fór að sinna vöruþróun af meiri mætti en áður.
Og líf manna hefur auðgast að merkingu eftir að Listaháskólinn tók til starfa.

16.8.05
Heitir staðurinn Road Movie?
Já, hm … ég er með spurningu sem ég veit ekki hvernig er rétt að bera fram og ég sé ekki fyrir mér að nokkur geti svarað. Þó er hún þannig séð empirísk, eða snýr að þekkingu á hinum ytri veruleika, frekar en nokkurri krísu hið innra, strangt til tekið … nema að hún falli á gagngerri rannsókn á veruleikanum og í ljós komi, empirískt, að ekkert svar sé til, þá væri í öllu falli rétt að taka hana til skoðunar á öðrum forsendum.
Þorsteinn Gylfason spurði hvar maðurinn ætti heima. Ég spyr semsagt: Hvar á ég heima? Það er, ég geri ráð fyrir að nú þegar sé til staður þar sem ég myndi una mér betur en nokkurs staðar annars staðar á vetrum. Ég veit að einhverju leyti hvaða eiginleikum slíkur staður þarf að búa yfir. Í fyrsta lagi er ágætt að þar sé temmilega hlýtt og bjart – en það er bæði auðsótt og aukaatriði. Í öðru lagi vil ég að þar sé nokkur sægur af manneskjum sem sinna sjálfum sér og sínum af alúð og festu, og rækta anda sinn, en hvort tveggja án þess að gera það beinlínis í þágu nokkurs andamarkaðar, t.d. framsóknar í listageiranum, né fetiséri þau eigin andarækt og tali látlaust um „andlega hluti“ eins og vondir hippar, nýaldarfólk og leiðinlegri hugvísindanemar. Ekki þar fyrir, að svona samfélag gæti samt sem áður verið til innan háskóla eða hippakommúna, en það væri ekki gott í krafti þess að tilheyra slíkum stofnunum. Í þriðja lagi … heyriði, já, ég er raunar að fara að endursegja stjórnarskrána sem Kristrún þýddi og birti á Kistunni … semsagt, vísa þangað, og spyr: hvar er þetta til í alvörunni? Ég geri ekkert frekar ráð fyrir að raunin falli að ídealinu í Litháen, ekki fyrr en ég hef í öllu falli vitni að því.
Ókei, byrjum aftur: Hvar finn ég stað sem stenst nýju stjórnarskrána á Kistunni, og ber mér auk þess stöðuga kennd fyrir einhverju nýju og spennandi?
Semsagt, ég held að ég sé í raun og sanni ekki að leita að faðmi konu … ég held ég sé að leita að stað, landfræðilegum, stjórnarfarslegum stað.
Ég er búinn að byrja á nokkrum tölvuskeytum sem ég hef síðan hætt við og ekki sent, eins og mér væri sjálfsagt hollast að hætta við þessa færslu hérna líka … því frammi fyrir einhverjum einstökum vini, átta ég mig á að hann eða hún getur ekkert gert fyrir mig. Hann eða hún hefur hvorki fundið stað sem þennan, né væri staður sem þessi í þeirra huga endilega staður sem þessi í mínum huga, né er víst að hann eða hún myndi deila slíkum stað með mér, þrátt fyrir allt og allt …
Í öllu falli. Svo ég geti farið að rukka fólk fyrir verkefni með það í huga að kaupa mér flug, því ég rukka aldrei pening fyrr en mig langar að fljúga eitthvert … látið mig vita ef ykkur dettur eitthvað í hug. Nei, ég er búinn að prófa Tékkland.
Getur verið að mig langi ekki á stað, heldur af stað, í ferðalag? Já … já … já … nú uppgötva ég dáldið og set það í fyrirsögn.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)