Hvers vegna heyrist meiri gagnrýni vestrænna vinstrimanna í garð eigin stríðsherra en annarra? Því þeir eiga að heita fulltrúar okkar … mér finnst þetta nokkuð augljóst en pantaði mér samt bókina frá þessum Cohen, sem allir eiga víst að lesa til að hætta þessum linnulausa stuðningi við íslamska einræðisherra og ofsatrúarmenn.
Ég var að lesa viðtal á vef Framtíðarlandsins og þá kom þetta í hugann … vitaskuld er Framtíðarlandið skárri kostur en Sjálfstæðisflokkurinn, einmitt núna, vitaskuld er náttúruvernd mikilvæg – og maður gengst jafnvel við sameiginlegum upphafsreit, þó að allt í einu megi hann ekki heita vinstri … það fælir víst of marga frá. Gott og vel, norrænir menn hættu einhvern tíma að tala um klungur og tóku að segja „rós“ í staðinn og alltíeinu varð öllum ilmurinn ljós. Fínt. En síðan les maður viðtal:
„Þjóðin og atvinnulífið eru búin að sýna hvers lags afl býr í því sem ekki þarf að eyðileggja neitt land til að nýta. Horfum t.d. á þann árangur sem bankarnir hafa náð, gríðarlega góð uppgjör sem eru árangur af starfi þess hæfileikaríka og vel menntaða fólks sem þar vinnur. Hefurðu komið inn í álver? Maður verður hálf miður sín. Það er fjarlæg hugsun að maður vilji búa afkomendum sínum að vinna í því umhverfi.“
– og grunar allt í einu að kannski finnist Andra Snæ þetta líka eitthvað öfugsnúið. Að draumsýnin sé bankar í stað álvera og einmitt bankar í stað álvera.
„Ég veit að það hentar ekki öllum að vinna í hátækni eða fjármálaheiminuum – en við eigum eftir að kanna svo margt þar. Góður árangur þar á mjög stuttum tíma gefur tilefni til að kanna þá möguleika betur. Þar munu líka verða til tengd störf í framtíðinni.“
Álver eða jakkaföt og sojalatte. Hvort viltu? Svona, hvort viltu!?
Það er freistandi að gerast stórtækur, gífuryrtur talsmaður stóriðju. Leyfist mér að benda háttvirtum varaþingmanni Reykjavíkurkjördæmis norður á að stóriðja á Íslandi er ekki aðeins vistvænn kostur, ef á heiminn er litið og einkum með tilliti til gróðurhúsaáhrifa, heldur býður og landið upp á infrastrúktúr og ikea-verslanir til að tryggja því verkafólki sem í álverunum starfa mannsæmandi kjör og aðbúnað?
Þeim sem vilja ekki láta verkafólk trufla sig við latte-drykkju býðst hlutur í einkaþotu á visa-raðgreiðslum … og verkafólkinu sjálfu býðst sambærilegur hlutur gegn eilífðarskuldbindingu til þátttöku í íslensku bankakerfi, tíu þúsund kynslóðir fram í tímann.
Það sem ég er að reyna að segja: maður óttast meir og meir að umhverfisverndin snúist fyrst og fremst um ofvaxinn metnað efnaðrar millistéttar til innanhússarkitektúrs. Að Vala Matt sé á bakvið þetta allt saman.