10.2.07

Lost

Ég var að hafna einu skemmtilegasta boði sem mér hefur borist: að fara til Akureyrar fyrsta mars til að flytja erindi um losta. Ég væri þá í fyrsta sinn svonefndur sérfræðingur að sunnan, sérfræðingur í losta. En tími. Faktor. Ýmislegt.

Helsti lostaspesíalisti sem ég þekki er einmitt frá Akureyri en dvelur eftir fremsta megni annars staðar.

Alþjóðahúsið, morgunsár, hádegi.

8.2.07

Vinstri vinstri vinstri … eða Soja-Ísland, draumalandið, hvenær kemur þú?

Hvers vegna heyrist meiri gagnrýni vestrænna vinstrimanna í garð eigin stríðsherra en annarra? Því þeir eiga að heita fulltrúar okkar … mér finnst þetta nokkuð augljóst en pantaði mér samt bókina frá þessum Cohen, sem allir eiga víst að lesa til að hætta þessum linnulausa stuðningi við íslamska einræðisherra og ofsatrúarmenn.

Ég var að lesa viðtal á vef Framtíðarlandsins og þá kom þetta í hugann … vitaskuld er Framtíðarlandið skárri kostur en Sjálfstæðisflokkurinn, einmitt núna, vitaskuld er náttúruvernd mikilvæg – og maður gengst jafnvel við sameiginlegum upphafsreit, þó að allt í einu megi hann ekki heita vinstri … það fælir víst of marga frá. Gott og vel, norrænir menn hættu einhvern tíma að tala um klungur og tóku að segja „rós“ í staðinn og alltíeinu varð öllum ilmurinn ljós. Fínt. En síðan les maður viðtal:

„Þjóðin og atvinnulífið eru búin að sýna hvers lags afl býr í því sem ekki þarf að eyðileggja neitt land til að nýta. Horfum t.d. á þann árangur sem bankarnir hafa náð, gríðarlega góð uppgjör sem eru árangur af starfi þess hæfileikaríka og vel menntaða fólks sem þar vinnur. Hefurðu komið inn í álver? Maður verður hálf miður sín. Það er fjarlæg hugsun að maður vilji búa afkomendum sínum að vinna í því umhverfi.“

– og grunar allt í einu að kannski finnist Andra Snæ þetta líka eitthvað öfugsnúið. Að draumsýnin sé bankar í stað álvera og einmitt bankar í stað álvera.

„Ég veit að það hentar ekki öllum að vinna í hátækni eða fjármálaheiminuum – en við eigum eftir að kanna svo margt þar. Góður árangur þar á mjög stuttum tíma gefur tilefni til að kanna þá möguleika betur. Þar munu líka verða til tengd störf í framtíðinni.“

Álver eða jakkaföt og sojalatte. Hvort viltu? Svona, hvort viltu!?

Það er freistandi að gerast stórtækur, gífuryrtur talsmaður stóriðju. Leyfist mér að benda háttvirtum varaþingmanni Reykjavíkurkjördæmis norður á að stóriðja á Íslandi er ekki aðeins vistvænn kostur, ef á heiminn er litið og einkum með tilliti til gróðurhúsaáhrifa, heldur býður og landið upp á infrastrúktúr og ikea-verslanir til að tryggja því verkafólki sem í álverunum starfa mannsæmandi kjör og aðbúnað?

Þeim sem vilja ekki láta verkafólk trufla sig við latte-drykkju býðst hlutur í einkaþotu á visa-raðgreiðslum … og verkafólkinu sjálfu býðst sambærilegur hlutur gegn eilífðarskuldbindingu til þátttöku í íslensku bankakerfi, tíu þúsund kynslóðir fram í tímann.

Það sem ég er að reyna að segja: maður óttast meir og meir að umhverfisverndin snúist fyrst og fremst um ofvaxinn metnað efnaðrar millistéttar til innanhússarkitektúrs. Að Vala Matt sé á bakvið þetta allt saman.

Meðan ég man

Fyrir þá sem halda að femínismi sé tepruskapur, blygðunarkennd og bann við nautnum: Stelpur sem fíla klám.

Ljóð til að lesa upp á þingi þegar Frjálslyndir reyna að segja eitthvað

Grafi grafi grafi grafi grafi kaldhæðni grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi ókunnugar raddir muldur grafi grafi grafi grafi grafi grafi með lokuð augun grafi grafi grafi grafi grafi grafi þó ekki væri nema bein Eva? nei Lucy grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi nýtt ljóðform grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi raf demantur eða eitthvað grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi fingur á lyklaborði alltaf sömu leið grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi hola grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi jarðvegur grafi grafi grafi uppljómun samstilling ókei allt grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi í læ grafi grafi grafi grafi grafi með lokuð augun breytir engu grafi dimmt grafi allt grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi hvers vegna aftur? grafi grafi grafi grafi grafi varstu að segja eitthvað grafi grafi grafi grafi grafi það er grafi enginn grafi annar grafi grafi hérna grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafit grafi grafi og árfram grafi grafi grafi grafi grafi áfram grrafi grafi grafi skekkja grafi grafi grafi síðasta berg grafi haftið grafi grafi grafi grafi

skáldinu fannst sem eitthvað læddist aftan að sér og það setti að því ugg en það náði ekki að gera úr honum hugsun áður en fyrr en varði grafi í síðasta hinsta sinn loksins því þegar þá tættist það sundur í bornum sem ítalska verktakafyrirtækið átti og var ekki gert til að serða fjallkonur heldur tröllskessur og hvernig hefði það átt að gruna

væri það bara slímhúð í leggöngum eða yrði æi

aðeins illska alla daga

Daginn skal héðan í frá nefna vingul en nóttina var.
Daginn skal nefna er en nóttina lín.
Daginn skal nefna dyramottu í banka, nóttina opna varlega.
Daginn skal nefna ámót, nóttina sss, komdu,
þig vinu,
mig ha

Af þingi

Þegar er farið að handtaka á Keflavíkurflugvelli þekkta hryðjuverkamenn. (– Það er þessi málflutningur sko, heyrist utan úr sal) – Já þú vilt fá semsagt þekkta hryðjuverkamenn í landið hérna, og vilt kannski bara bjóða þeim heim til þín?

Það birtist grein frá mér í Fréttablaðinu næstu helgi, sem upphaflega var um Zizek, en á endanum fyrst og fremst um Frjálslynda og þetta allt … mér finnst eins og hún þarfnist uppfærslu daglega en er búinn að sleppa henni, held ég.

Framtíðarlandið ekki fram, ágætt, þá er ennþá séns á vinstristjórn. Hver ætlar að bjarga Samfylkingunni? Og hvernig?

5.2.07

Saklausi litli Freud

Þetta verður lagað eins og annað, en einmitt núna stendur á mbl.is: Ítalskir fótboltaleikvangar verða ekki opnaðir almenningi á ný fyrr en öryggisráðstafanir hafa verið gerðar, þetta sagði Giuliano Amato, innanríkisráðherra Ítala að loknum neyðarfundi um íralska knattspyrnu.
Og mann grunar að þessi saklausa prentvilla, um íralska knattspyrnu, sé sprottin úr undirmeðvitund sem gerir ráð fyrir að allir neyðarfundir heimsins hljóti að vera um annað hvort Íran eða Írak eða Íral ...

Ég verð annars að lofa Rafaugað fyrir nýtt fitubrennsluátak. Verulega góðir sprettir.