„Mér er sagt að ein helsta skilnaðarorsök í hjónaböndum þar sem karlinn er Frakki, konan Íslendingur, sé að Frakkarnir fái nóg af hæfnileysi kvennanna til að ala börn upp.“ Stefán Snævarr í Fréttablaðinu. Greinin öll er tilvitnanahæf.
Mér finnst annars, ég hef sterklega á tilfinningunni, eftir eitt dægurviðtal og einn draslpistil, þetta liggur í maganum á mér, að öll orð sem ég og aðrir láta út úr okkur um annað en Írak séu lygi. Ekki að það sé hægt að segja neitt viturlegt um Írak, ekki einu sinni bretta upp ermar og taka til hendinni – en spurning dagsins er þessi: Þarf í alvörunni, samkvæmt einhverju freudísku/hegelísku/lacanísku/foucaultísku lögmáli allt að fara til fjandans einhvers staðar til að annars staðar svigni öll borð undan lífrænt ræktuðu grænmeti? Ef svarið er já, ef þetta er einhver óyfirstíganleg formgerð, þá er skynsamlegast að slökkva á samviskubitinu og segja bara „tough luck, krakkar“ við þriðja heiminn etc. „Bara óheppilegt að það skuluð vera þið, skiljiði?“
Önnur útlegging á sömu spurningu væri þá: hversu alhæfingaglaður er heimurinn?
Í Blaðinu má vænt ágætrar myndar af mér við viðtal um sjónvarpsfýsn liðinnar viku. Já, ég er ennþá kvefaður, alveg hellaður, og mannfælinn og óhugsandi, með hor í staðinn fyrir heila lungann af deginum, en ég er búinn með allt sjónvarpsefni sem ég hef nokkra trú á. Ábendingar vel þegnar.
P.S. Ekki það, að Stefánn Snævarr hefur trúlega rétt fyrir sér um alla hluti. Hann er skarpskyggn. Kannski að sefasjúkur stíllinn komi til af því að í raun veit hann að einmitt með því að hafa rétt fyrir sér er heimurinn sem hann talar frá, sjónarhóllinn sem hann sleppur ekki undan, þegar liðinn undir lok. Greinarnar eiga við það að stríða, svo að segja, að vera ekki mögulegar og þar með varla til.
– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
27.10.06
24.10.06
Drykkjumannavisur fyrir börn?
Off … úff … sit og læt frá mér búkhljóð, er búkhljóð, mér finnst nefið vera einhvers staðar yfir þriðja auganu, þetta heitir kvef eða flensa og ofnarnir í fallegustu íbúð Reykjavíkur virka ekki enn. Þarf að velja og hafna: taka leigubíl í vinnuna á eftir eða kaupa ofnalykil í Brynju.
Flutti óskrifaðan bráðapistil á Rás 2 í gær. Aldrei aftur, skrifa næst. En vandi minn er þó einkum sá að ég hef ekkert að segja eftir að ljúka við þessa blessuðu bók. Ég nenni ekki að tala við fólk, mig langar að rétta þeim sem nálgast mig miða sem á stæði: „lestu bókina“ – taka svo upp frekari samræður í febrúar. Jæja, ó jæja, látum hann hlæja … og önnur vísa sem rifjaðist upp fyrir mér rétt í þessu:
Maðurinn með hattinn
stendur upp við staur
hann borgar ekki skattinn
því hann á engan aur.
Hattinn oní maga
og maginn oní skó,
reima svo fyrir
og hendonum út í sjó!
Hver gerir annars ekki ráð fyrir að síminn hans sé hleraður? Og hver þorir að vera róttæklingur um þessar mundir, annar en Hreinn Hjartahlýr sem mun áreiðanlega aldrei fá vegabréfsáritun til Þingvalla? Ef Helgi Hjörvar óskar þessari þjóð sterks leiðtoga, óska ég þess að það verði Hreinn Hjartahlýr. Skrifa ég og sýg upp í nefið. Er veröldin óðamála og brotakennd, eða eru það bara blogg kvefaðra?

23.10.06
Hun er komin!
18.10.06
9.10.06
Brauð og njosnaleikir
Það teljast trúlega nokkuð vel heppnuð klókindi að tilkynna um lækkun matarskattarins, sem á að ganga eftir næsta mars eða kortéri fyrir kosningar eins og Egill Helgason orðaði það, um leið og ríkisstjórnarflokkarnir standa frammi fyrir, að því er virðist, raunverulegum pólitískum skandal – jafnvel skandal á heimsmælikvarða.
Hvort tveggja kemur svo upp um leið og tappað er á stífluna þarna upp frá … á næsta ári vil ég að eitt gerist í einu, kæri Jóli, eitt í einu.
Annars, forsíða Fréttablaðsins í dag: Marel stærst í heimi, og Yoko helgar stað súlunnar sem á að standa að eilífu. Eitthvað stærst í heimi og eitthvað eilíft á sömu forsíðu – ég held að við höfum flutt í heim frummyndanna, ég held að hinn heimurinn sé horfinn, ég held að Baudrillard hafi alltaf haft rétt fyrir sér um alla hluti.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)