8.5.06

Eru visindi heimsk?

leti.jpg
Á forsíðu Morgunblaðsins í dag birtist fréttin hér við hliðina, þar sem vísindamenn – raunvísindamenn – hafa semsagt komist að þeirri niðurstöðu að í hóflegum skömmtum geti leti slegið á streitu. Textinn að neðan er úr grein sem birtist sama dag á mbl.is, um að heili lesbía bregðist öðruvísi við lykt karla og kvenna en heili gangkynhneigðra kvenna. Nú er ljóst að textarnir sjálfir eru ekki unnir af vísindamönnum, heldur blaðamönnum. Því er spurningin opin: hvar er heimski hlekkurinn? Hver er það, á leið vísindarannsókna til almennings, sem ræður því að vísindi virðast einkum beina athygli sína að því að finna mólekúl á bakvið 'frávikshegðun' eins og samkynhneigð er orðuð í helsta inngangsriti að félagsfræði við Háskóla Íslands þessa önn, renna stoðum forheimskaðrar 'skynsemi' undir það sem ýmist er einfaldlega vanþekking eða öllum ljóst (það er, ýmist öllum ljóst og rangt, eða öllum ljóst og rétt). Hvaða mengi persóna sem á í hlut, ef einhver skyldi asnast til að lesa þetta blogg í frístundum, þó mig gruni að eini lesandinn sé bróðir minn:

1. Mólekúl hafa ekki skýringargildi, heldur eru í besta falli vafasöm þýðing á merkingarbærum heimi manneskja.
2. Það er óþarft að sækja vatnið (ágæti hægðarinnar) yfir lækinn (excel-skjalið með rannsóknarniðurstöðunum).
3. Fánýti er fánýti.
4. Óþörf orð eru óþörf.
5. Lesið eitthvað – eitthvað – sem kemur starfi ykkar ekki við, víkkið sjóndeildarhringinn, verðið fyrst manneskjur, síðan vísinda- eða blaðamenn.

Til almennings og ráðamanna: Endurnefnið atvinnuleysisbætur 'nýsköpunarsjóð' og liðkið til í reglunum, svo fólk geti vandræðalaust tekið sér frí frá störfum og ráðið bót á þessari vitleysu og annarri.

Kynhvötin og heilastarfsemi könnuð
Heilinn í lesbíum bregst öðruvísi við kynhormónum en heilinn í gagnkynhneigðum konum. Þetta staðfestir ný sænsk könnun, þar kemur jafnframt fram að heilinn í lesbíum sýnir svipuð viðbrögð og heilinn í gagnkynhneigðum körlum. Frá þessu var sagt í riti sænsku vísinda-akademíunnar í dag.

Með ákveðið óþol vegna bakverkja (og þó er mér nokkur alvara),

Haukur Már.

5.5.06

Hnefun ljoða

yibbie! monstrous city centre corner Reykjavík

Hr. Z var að láta frá sér nýja bók, the Parallax view. Á s. 13 má lesa: „The fist (focus of purposeful work, the hand as the most tightly controlled and trained part of our body) replaces the phallus (the organ out of our conscious control par excellence, since its erection comes and goes independently of our will), in a kind of correlate to somebody who approaches a state that should emerge "spontaneously" in a well-planned instrumental way (a poet who constructs his poems in a "rational" way, for instance, is a poetic fist-fucker).“ Ekki að hnefun hafi ekki komið fyrir í heimspeki og ljóðum áður …

við hnefum öll, á einn hátt eða annan.

27.4.06

Shining on me, shining on you!

Sólskinsmynd!

Andi Lennons

The most important musical talent of our time was taken from us much too soon.

Now a world premiere special television event will take you around the world as psychics travel to the most significant places in Lennon's life, hoping to make contact with his spirit.

Mhm …

Annars fordæmi ég fordæmingu Eiríks á Fréttablaðsljóðinu og segi: tja. Also, hvernig er hægt að blammerast svona út í tiltölulega venjulegt en alveg óhræðilegt ljóð, en skemmta sér vikulega yfir Idol? Eða með öðrum orðum, kæri, hvenær fæddist lotning þín fyrir „ljóðinu“ með stóru og það allt?

Ímyndaðu þér allt fólkið
lifandi saman í friði,
júhú!

21.4.06

Glitnir hressir upp á ímynd

Á maður að skrifa þeim og láta vita af stafsetningarvillum og bjagaðri ensku? Svona fyrst við erum öll saman í þessu? 244 EUR million.

Glitnir is a leading financial group that offers universal banking, and a leading global niche player in three segment: Seafood/food, sustainable energy and offshore supply vessels/shipping. The bank has an branch in London in UK and in Copenhagen in Denmark. Glitnir is the sole owner of banks in Luxembourg and Norway (BNbank and Glitnir bank, the factoring company Glitnir Factoring as well as 50.1 % of the Union Group). Glitnir plan to open a office in Halifax in Canada during the spring of 2006 and in Shanghai in China during the fall of 2006. Glitnir is listed on the Icelandic Stock Exchange. Glitnir recently announced record profit for 2005 - the best in the bank's history. Total assets by December 31, 2005 were EUR 19.7 billion. The record high profit for 2005 was 244 EUR million.

10.4.06

Verðlaun


Já, krakkar mínir, hafi það farið fram hjá einhverjum var það þessi líkkista sem hlaut hönnunarverðlaun CNN Money 2005. Þeir vita hvað og hverjum klukkan slær og glymur.