Eins og glöggt má sjá á þessu korti frá CNN þarf ekki að fara út fyrir Ameríku til að finna jaðarríki heimsins - valdamiðjan er raunveruleg landfræðileg valdamiðja, og Bush er kjörinn í ríkjum sem ekki hafa aðgang að sjó. Það er á jöðrum hins frjálsa heims sem fólk er svo víðsýnt, umburðarlynt og snargeggjað að það kýs gegn Neró, Kaligúla og Kristi endurbornum og með Kennedy. Kennedy var með of stóra höku eins og bróðir minn hélt fram allan tímann.
Annars sagði Jesú þetta, að hann kæmi með eldi og brennisteini og þá skyldu hinir bersyndugu passa sig því þeir kæmust ekki inn í hús föðurins. Faðirinn, sonurinn – er Rumsfeld heilagur andi? Í öllu falli yrkir hann og þó ég sé ekki alveg með það á tæru hvað heilagur andi er grunar mig að hann hljóti að hafa með skáld að gera frekar en hin tvö meginlíffæri guðdómsins.
Eldur og brennisteinn, gall, gnístran tanna. Hvern hefði grunað að við yrðum hinu megin á efsta degi? Hús föðurins er sannarlega ekki ætlað samkynhneigðum Aröbum sem sníða sjálfir stuttbuxur úr snjáðum gallabuxum, hlusta á góða tónlist og eru vísir með að taka þátt í mótmælasamkomum. Sonurinn fæddist í Palestínu, í fyrra sinnið, en sá að sér og kom nú undir í miðjum hinum frjálsa heimi og borðar gravy. Sonurinn er hráolíugreifi og framtíðin er svört, björt og gljáandi.